Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Side 10
Ég er ekki mikið í lífsstílsbransanum. Það er ólíklegtað sjá mig rölta um í bókabúð og skoða sjálfs-hjálparbækur. Ekki búast við því að heyra mig tala um að ég ætli að verða besta útgáfan af sjálfum mér eða að það þurfi þorp til að ala upp barn eða laga hjóna- band eða gera við bíl. Að minnsta kosti ekki í alvöru. En í þessari viku hef ég aftur og aftur hugsað: Lífið er núna. Sem ætti ekki, ef maður hugsar rökrétt, að koma á óvart. Auðvitað er það núna! En ekki hvað? Og flesta daga væri ég líklegur til að gera svolítið grín að svona frösum. Þegar fólk í blóma lífsins fellur frá verður samhengið annað og augljósara. Í þessari viku hefur andlát Stefáns Karls orðið til að minna mig á hvað raunverulega skiptir máli. Út á hvað þessi tilvera gengur. Stefán Karl var ekkert venjulegur maður. Fyrir þá sem ekki þekktu hann nægir að líta á samfélagsmiðlana til að sjá hvaða áhrif hann hafði. Úti um allan heim er fólk að kveðja hann með fallegum orðum. Sumir þakka honum fyrir að hafa hjálpað sér að takast á við einelti og afleiðingar þess. Foreldrar þakka honum fyrir að hafa hjálpað börnum þeirra og glatt þau í Latabæ. Einhverjir þakka honum fyrir að hafa vakið áhuga á leiklist, aðrir bara fyrir að hafa verið til og verið svona svakalega skemmtilegur. Ég man eftir því þegar ég hitti Stefán Karl fyrst og hugsaði: Á hverju er þessi maður? Orkan og gleðin var algjörlega á yfirsnúningi. Sögur og eftirhermur til skipt- is og aldrei stoppað. Allt líf hans var eins og fullt starf við að dreifa hlátri, gleði og góðmennsku. Ég man líka eftir að hafa setið með honum eftir að hann veiktist, einn ógleymanlegan laugardagsmorgun í útvarpinu, og velt því fyrir mér hvernig hægt væri að koma fyrir svona miklu æðruleysi í einum manni. Þegar hann var ekki að grínast var hann að hjálpa börnum að takast á við einelti. Gaf sér tíma til að fara út um allt land til að setja plástra á sár og gera sitt til að breyta heiminum. Það er meira en að segja það. Og eftir sitjum við, eins og fólk gerir þegar lífið sýnir hvað það getur verið ósanngjarnt. En við getum líka tekið Stef- án Karl okkur til fyrir- myndar og lifað lífinu til fulls meðan við getum. Af því að lífið er núna. Við fáum bara eitt tækifæri og það er um að gera að nýta það. Faðma börnin okkar, fagna gleðinni og reyna að láta gott af okkur leiða. Munum það. Lífið er núna Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Ég man eftir því þegar ég hittiStefán Karl fyrst og hugsaði: Áhverju er þessi maður? Orkan oggleðin var algjörlega á yfirsnún- ingi. Sögur og eftirhermur til skiptis og aldrei stoppað. Allt líf hans var eins og fullt starf við að dreifa hlátri, gleði og góðmennsku. 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018 VETTVANGUR Langisjór er eitt af fallegustu stöðuvötnum landsins; fagurblátt og birtan leikur við það allan daginn. Fyrir vikið er vatnið í margbreytileika sínum yndi ljósmyndarans en þessi mynd var tekin á dögunum skömmu eftir Skaftárhlaup. Langisjór er í Vestur-Skaftafellssýslu, suðvestan við Tungnár- og Skaftárjökul, og er 27 km². Vatnið er í 670 metra hæð og mesta vatnsdýpi er 75 metrar. Sunnan við Langasjó er Sveinstindur en austan hans eru Fögrufjöll. Þau ganga víða með þverhníptum klettahöfðum fram í Langasjó. RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.