Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Page 34
Verk Steinunnar Önnudóttur; „The boudoir“. Steinunn fæst fyrst og fremst
við málverk og skúlptúra sem renna gjarnan saman og eru skilin oft óljós.
Ljósmynd/Hrafnhildur Gissurardóttir
Þrír af fjórum listamönnum sem eiga verk á sýningunni í Gerðarsafni, þar sem myndverk þeirra eru sett upp samhliða sýningu á verkum Gerðar sjálfrar. Frá
vinstri: Áslaug Íris Friðjónsdóttir, Styrmir Örn Guðmundsson og Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir. Á myndina vantar Steinunni Önnudóttur.
Morgunblaðið/Eggert
Sýningin Skúlptúr / Skúlptúrhefur verið opnuð í Gerðar-safni í Kópavogi. Fjórir
samtímalistamenn eiga verk á sýn-
ingunni sem er sett upp samhliða
yfirlitssýningu á verkum Gerðar
Helgadóttur myndhöggvara. Sýn-
ingin var opnuð formlega á föstu-
dagskvöldið var með viðhöfn og
flutti einn listamannanna, Styrmir
Örn Guðmundsson, m.a. gjörning-
inn „Organ Orchestra“ við tilefnið.
Titill sýningarinnar vísar til ann-
arrar sýningar, Skúlptúr / skúlptúr
/ skúlptúr sem sett var upp á
Kjarvalsstöðum árið 1994, sama ár
og Gerðarsafn var opnað fyrir
gestum. Þar voru sýnd verk eftir á
þriðja tug listamanna en sýning-
unni var ætlað að gefa yfirlit yfir
höggmyndalist þess tíma.
Heiðra listamanninn
Gerði
Sýningin er sú þriðja í sýningaröð
sem Gerðarsafn hefur staðið fyrir
undanfarin ár. Sýningaröðinni er
ætlað að heiðra Gerði Helgadóttur
(1928-1975) myndhöggvara og
framlag hennar til íslenskrar
höggmyndalistar um leið og dregn-
ar eru saman tengingar við ís-
lenska listasögu og hreyfingar í
samtímaskúlptúr.
Að sögn Klöru Þórhallsdóttur,
sýningarstjóra í Gerðarsafni, er
leitast við að draga upp mynd af
því sem er að gerast í samtímalist
og varpa jafnframt ljósi á þrívíða
listsköpun í samtímanum. „Svo er-
um við að bregða aðeins út af van-
anum og setjum saman tvær sýn-
ingar, en fyrr í sumar var opnuð
stór og vönduð yfirlitssýning á
verkum Gerðar. Við buðum fjórum
listamönnum að stíga inn í þá sýn-
ingu, alveg óháð verkum Gerðar.
Þeir fá því sitt pláss en við tökum
Gerði með að þessu sinni. Við höf-
um fengið til liðs við okkur lista-
menn sem hafa verið duglegir við
að sýna undanfarin og fást við þrí-
víða myndsköpun með ólíkum
hætti,“ útskýrir Klara.
Gerðarsafn kallaði eftir umsókn-
um myndlistarmanna til þátttöku
fyrr á árinu. Þátttakendur í sýn-
ingaröðinni í ár voru valdir úr yfir
100 manna hópi listamanna.
Fortíðin mætir framtíðinni
Hún segir að þótt listamennirnir
vinni með ólíka miðla eigi þeir það
sameiginlegt að vinna þrívíð mynd-
verk. „Við erum t.d. með einn
listamann, Styrmi Örn, sem er
þekktari fyrir gjörningalist en not-
ast við skúlptúra í gjörningunum
sínum. Nálgunin er því mjög ólík.“
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Áslaug Íris Katrín
Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg
Sigurðardóttir, Steinunn Önnu-
dóttir og Styrmir Örn Guðmunds-
son, auk Gerðar Helgadóttur.
„Það er gaman að sjá þessi verk
Gerðar við hlið þessara nýrri
verka en hún átti fjölbreytt tímabil
á sínum 30 ára ferli. Koma má
auga á ýmis líkindi í því hvernig
listamenn sá hugmyndum inn í
framtíðina og svo hvernig þær
hugmyndir birtast aftur í samtím-
anum,“ segir Klara. Í tengslum við
sýninguna verða samræður við
listamennina í Gerðarsafni í haust,
þar sem að kafað verður í hugar-
heiminn bakvið verkin. Jóhanna
Kristbjörg mun hefja leikinn og
ræða um sitt verk næsta sunnudag
og halda samræðurnar áfram ann-
an hvern sunnudag út sýninga-
tímabilið. Mun Styrmir Örn end-
urtaka gjörning sinn þegar hann
verður með listamannaspjall.
Sýningin Skúlptúr / Skúlptúr
stendur til 7. október.
Skúlptúralist í
nútíð og þátíð
Sýningin Skúlptúr / Skúlptúr hefur verið opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar má sjá fjölbreytileg þrívíð listaverk
fjögurra ungra listamanna samhliða sýningu á verkum brautryðjandans Gerðar Helgadóttur.
Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is
Verk eftir Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur; „afstand maakt de bergen“. Í
verkum sínum leitast Jóhanna við að samþætta ólíka miðla.
Ljósmynd/Hrafnhildur Gissurardóttir
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018
LESBÓK