Jökull


Jökull - 01.01.2004, Side 95

Jökull - 01.01.2004, Side 95
ur að fara að gera eitthvað í málinu, þetta getur ekki gengið svona, eða hvað? Verður eitthvað fútt í þessu ef draslið hættir að klikka? Staður og stund, Mýrdals- jökull á páskum 1961. Tilefni, vísindamenn og þeirra þarfir. —– —– —– —– —– —– Gunnar Guðmundsson var fæddur í Reykjavík 26. desember 1924. Foreldrar hans voru Guðmund- ur Matthíasson, fæddur 22. september 1874 og kona hans Sigurrós Þorsteinsdóttir, fædd 16. júlí 1896. Æskuheimili Gunnars var á Lindargötu 23 og skóla- ganga hans til fullnaðarprófs í Miðbæjarskólanum. Þar með var þeim kafla lokið því hugur hans stóð ekki til frekara bóklegs náms heldur framkvæmda. Gunn- ar fór snemma að vinna, var fylginn sér og duglegur sem sést best á því að í Bretavinnuna fór hann um leið og kostur var á en ekki eins og flestir Íslendingar til þess að styðja sig við skóflu heldur til þess að vinna í akkorði við skurðgröft með skóflu, það gaf nefnilega mun meira. Hann varð fljótlega ýtustjóri hjá Almenna byggingafélaginu og endaði þá vist árið 1949 með því að kaupa, í félagi við Óla Páls, stóra ýtu sem Gunnar hafði verið með á Skagaströnd. Ók hann ýtunni suður og ýtti snjó á Holtavörðuheiðinni í leiðinni. Rétt er að rifja upp að ýtur þeirra tíma voru hvorki yfirbyggð- ar né hraðskreiðar og það að handleika stangirnar var ekki á færi meðalmanna. Árið eftir, 1950, var tímamótaár í lífi Gunnars, þá setur hann á laggirnar fyrirtæki utan um rekstur sinn, Gunnar Guðmundsson hf. og síðla sama árs eru stofnuð tvö félög, Flugbjörgunarsveitin og Jöklarann- sóknafélagið, en vettvangur þeirra varð um leið vett- vangur Gunnars allt til dánardags. Innan Jöklarann- sóknafélagsins féll eðlilega strax í hans hlut að halda lífinu í hinum heilsulausu víslum félagsins. Þetta voru afdönkuð stríðstól, keypt af fjárvana félagi og ætlað stórt hlutverk, því kom sér vel að til varð harðsnú- inn kjarni sem mótaðist í fyrstu bílanefnd félagsins. Gunnar varð þar fljótt í forystu og stýrði nefndinni um áratuga skeið. Nýttist nú vel sú reynsla sem hann hafði fengið, við að halda jarðýtunum gangandi, hver svo sem skilyrðin voru, og það oftast án nýrra vara- hluta því að ekkert var til í víslana og þurfti því að beita alls konar óhefðbundnum aðferðum til þess að halda þeim ökufærum. Þá skipti og sköpum kunnátta Gunnars við akstur beltatækja því hann lýtur öðrum lögmálum en akstur bíla og oft má ekki mikið út af bera. Þessu linnti að mestu árið 1972 en þá var Gunnar í framlínu þröngs hóps sem lagði nöfn sín að veði til þess að félagið gæti fjármagnað kaup á nýjum snjóbíl af Bombardier gerð. Þá varð til „Bíll númer eitt“ svo notuð séu orð og áhersla Gunnars. Má af því marka að eitthvað hafa víslarnir verið búnir að missa glansinn. Fyrir okkur sem til hliðar stóðu var það alltaf undr- unarefni að á hverjum aðalfundi félagsins kom í ljós að engu hafði verið eytt til viðhalds víslunum sem þó voru alltaf að bila. Ef þetta var fært í tal við Gunn- ar þá brosti hann og fór að tala um skíðaferðirnar í gamla daga með félögunum í Ármanni. Hætt er við að ef grannt yrði skoðað fyndist ýmislegt frá þessum árum í bókhaldi GG sem hefði átt að eyrnamerkja á annan veg. Innan vébanda Jöklarannsóknafélagsins hefur alla tíð starfað fólk sem hefur verið tilbúið til þess að gefa af sér ómælt, án þess að krefjast annars endurgjalds en samverunnar og þeirra hrifa sem náttúruöflin í blíðu og stríðu veita, en óneitanlega eru skilin eftir misdjúp spor. Víst er að seint mun fenna í Gunnars. —– —– —– —– —– —– Leiftur. Það var verið að syngja um senjoríturnar suður á Spáni og hópurinn lifði sig virkilega inn í hlutverk- ið en ég var hættur öllum söng, orðið hálf ómótt og hafði heldur ekki áhuga á að vökva lífsblómið frek- ar. Settist niður fyrr um kvöldið of nærri ofninum og var einfaldlega orðið of heitt. „Í Barcelona var lag- leg hnyðra með limi netta og svarta brá“ söng fólkið, ég stóð upp, fór fram og út, stóð fyrir utan gluggann og andaði að mér svölu næturloftinu. Í gegnum glerið heyrði ég sönginn „þær syngja um ástir með ljúfum hreim“ og um leið umgang. Út undan mér sá ég að hann stóð þarna skáhallt fyrir aftan mig og horfði upp í himinhvolfið. Við lögðum af stað, ég veit ekki hvor tók fyrsta skrefið, kannski báðir og fórum hægt því hraunhellan milli skálanna er ekki slétt. Frá Gamla- skála heyrðist lágvær hlátur og raddir þeirra sem vildu fremur sitja og spjalla en syngja. Við gengum fram hjá tröppunum sem Pétur Sumarliðason á einna flest JÖKULL No. 54, 2004 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.