Jökull - 01.01.2009, Side 104
Oddur Sigurðsson
Að lokum má geta þess að mjöll hins nýbyrjaða
vetrar lagðist mjúklega á verulega hjarnskafla til fjalla
og töluvert er enn eftir af Skjaldfönninni nú þegar
þetta er ritað.“
Leirufjarðarjökull – Ásgeir Sólbergsson segir aðmjög
snjólétt hafi verið á norðanverðum Vestfjörðum und-
anfarin tvö ár og lítill snjór til fjall en hann hafi verið
lengi að bráðna vegna lítils lofthita og úrkomuleysis.
Honum finnst andstæður í veðráttu á suðvesturhorninu
og norðanverðumVestfjörðum sífellt vera aðminnka;
sérstaklega á þetta við um snjóalög. Þegar ófært er til
Reykjavíkur landleiðina er það ekki vegna snjóa held-
ur mikilla svellalaga og hvassviðris í Borgarfirði.
Reykjarfjarðarjökull – Þröstur Jóhannesson segir
óvenju mikinn snjó í fjöllum við Reykjarfjörð og lítið
komið upp úr af jökulís í byrjun ágúst. Hann kennir
líkt og Ásgeir í Leirufirði þurrviðri um litla leysingu
og að hvassar vestanáttir hafi sjaldnar verið en oft áð-
ur. Ekki hefur heldur vaxið í Reykjarfjarðarósi á góð-
viðrisdögum eins hann á þó vanda til.
Norðurlandsjöklar
Gljúfurárjökull – Árni Hjartarson frá Tjörn veitti at-
hygli jökulgruggi í ám: „Jökullitur talsverður er bæði
á Svarfaðardals- og Skíðadalsá. Í Svarfaðardalsá kem-
ur mestur aur frá Búrfellsá, sem er enn að hreinsa far-
veg sinn eftir framhlaupið í Búrfellsjökli, þótt löngu
sé komin ró á í jöklinum sjálfum. Þverá í Skíðadal
er vel jökullituð sem og Gljúfuráin. Skíðadalsá inn-
an Gljúfurár er hins vegar tær. Enginn snjór er í gili
Gljúfurár allt inn að jökli. Áin kemur undan vestan-
verðri skriðjökultungunni, eins og hún hefur gert und-
anfarin ár, mest á fjórum stöðum á um 80 m langri
línu vestan viðmiðröndina í jöklinum. Miðröndin nær
nokkur hundruðmetra upp í jökulinn og virðist lengj-
ast með hverju ári.“
Bægisárjökull – Jónas Helgason mælir sporðinn á
fjórum stöðum ef því verður við komið en hér er að-
eins birt mæling á staðnum sem tengist eldri mæling-
um mest. Hann lýsir sviðinu svo: „Að sjá virðist ekki
mikill snjór á sporðinum, en þó lágu víða fannir, miklu
meiri en í hef séð þarna á liðnum árum. .... Einnig var
gaman að skoða litla ruðninginn frá 2001–2002, sér-
lega snotur garður, einkum vestan til.“ Meðfylgjandi
myndir sýna það sem Jónas skrifar um.
Langjökull
Hagafellsjökul eystri – Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir
hefur tekið við mælingum af Theodór Theodórssyni
og mældi nú í fyrsta sinn ásamt Einari Ragnari og
Gunnari Sigurðssonum. Hún sendi vandaða og ríku-
lega myndskreytta skýrslu.
Hofsjökull
Nauthaga- og Múlajökull – Leifur Jónsson flikkaði
upp á fastmerki og merkti með áletruðum álplötum.
Hann tók með sér blaðamenn úr Vesturheimi og það
ekki í fyrsta sinn. Vestasti mælistaður við Múlajökul
hefur spillst enn einu sinni af vatnagangi sennilega frá
lóni ofan við Hjartafell. Við austasta mælistaðinn (S)
er ekki lengur lón sem hefur tafiðmælingar að undan-
förnu. Leifur telur þar upp þrjú merki sem hann mælir
frá en segir gömulmerki mun fleiri og nú í órafjarlægð
frá jöklinum. Þau virðast hafa tekið nafnabreytingum
í áranna rás.
AFKOMA HOFSJÖKULS
– MASS BALANCE OF HOFSJÖKULL
Ár Flatar- Vetur Sumar Árið Jafnv.-
mál lína
Year area Winter Summer Net ELA
km2 m m m (m y.s.)
Sátujökull
2006–2007 81,6 1,53 -1,92 -0,39 1270
1987–2007 -10,07 1320
Þjórsárjökull
2006–2007 235,9 1,71 -2,58 -0,87 1230
1988–2007 -10,53 1220
Blágnípujökull
2006–2007 51,5 1,47 -2.33 -0,86 1365
1988–2006 -8,47 1320
Eyjafjallajökull
Gígjökull – Jökulsporðurinn hefur styst um 955m síð-
an 1996 og er leitun á öðru eins í sögu sporðamælinga.
Vafalaust á lónið drjúgan þátt í afföllum jökulsins en
nú nær hann ekki lengur út í það og má því búast við
hóflegri tölum á næstu árum.
104 JÖKULL No. 59, 2009