Jökull


Jökull - 01.01.2009, Blaðsíða 114

Jökull - 01.01.2009, Blaðsíða 114
Fjölnir Torfason uðum í flestum árum er talin hafa dregið að fjölda ver- manna frá Austur- og Norðurlandi til útróðra, bæði að Horni í Nesjum og einnig að Hálsahöfn í Suðursveit. Útróðar frá Hálsahöfn fengu slæman endi á góu- þræl 1573. Þá varð þar eitt mesta sjóslys sem sögur fara af hér við land. Sagt er að 92 sjómenn sem réru frá Hálsahöfn þennan dag hefðu farist, sumir telja að tala þeirra sem fórust hafi verið nokkru hærri. Þegar Sveinn Pálsson ferðaðist hér um héraðið 1793 þá dvaldi hann að Kálfafellsstað í Suðursveit dagana 15. og 16. september vegna illviðris sem þá gekk yfir. Eftir það taldi hann séra Vigfús Benedikts- son (Galdra-Fúsa) góðvin sinn. Ekki er ólíklegt að þessa daga hafi þeir, séra Vigfús og Sveinn rætt um fyrri tíma og þá borið á góma sagnirnar um sjóslysið mikla frá Hálsahöfn og ferðir Norðlendinga og Aust- firðinga til sjóróðra í Hornafjörð. Nær öruggt má telja að séra Vigfús hafi gert út leiðangur í dalinn strax eftir að Sveinn fór hér um héraðið, en um veturinn 1794 fær Sveinn Pálsson bréf frá þessum góðvini sínum prestinum, þar sem lýst er í nokkrum atriðum niður- stöðu leiðangursins. Guðmundur Jónsson Hoffell lýsir leiðangri þess- um í bók sinni Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir. Þar eru nafngreindir þeir menn sem séra Vigfús sendi á jökulinn 1793. Elstur þeirra og eflaust foringi hópsins, Þorsteinn Vigfússon bóndi á Kálfafelli, oftast kennd- ur við Fell, fæddur 1756 á Smyrlabjörgum, 37 ára þegar ferðin er farin. Næstelstur var Kristján Vig- fússon, síðar sýslumaður Austur-Skaftfellinga, missti það embætti með skömm, en varð síðar hreppstjóri, talinn vel gefinn og hraustur með afbrigðum, mikill söng og gleðimaður. Kristján var fæddur að Stað í Aðalvík 1765, er því 28 ára þegar ferð þessi er farin. Þriðji maður er Eiríkur Einarsson fæddur á Kálfafell- stað 1776. Eiríkur er þarna í ferðinni yngstur leið- angursmanna, aðeins 17 ára gamall. Stutta frásögn af ferð þeirra þremenninga er að finna í bók Guðmund- ar J. Hoffells og eins segir Sveinn Pálsson nokkuð frá þessari ferð í ferðabók sinni sem kom út í íslenskri þýðingu árið 1945. Frásögn Guðmundar J. Hoffells er skráð 150 árum eftir að ferðin var farin, en frá- sögn Sveins Pálssonar er samtímaheimild, rituð nán- ast þá daga sem atburðir eiga sér stað. Sá er þetta ritar hefur alla tíð haft fulla trú á að bréf séra Vigfús- ar Benediktssonar á Kálfafellsstað til Sveins Pálsson- ar frá vetrinum 1794 megi enn finna. Ekki er útilok- að það sé í Kaupmannahöfn ásamt fleiri gögnum sem tengjasta því merka riti sem Ferðabók Sveins er í ís- lenskri mannfræði og náttúrusögu. Hvenær drepur maður mann En víkjum að leiðangrinum haustið 1793. Leið þeirra þremenninga lá inn Kálfafellsdal og þar upp til eggja. Einhver vandræði voru að komast yfir fjöllin en gekk þó að lokum. Leiðangursmenn lentu í miklum mann- raunum, að eigin sögn, fundu útilegumannabyggð í fögrum dal á fjöllum, lentu þar í slagsmálum upp á líf og dauða, en höfðu betur þá er yfir lauk. Lýstu þeir á hendur sér manndrápi í sjálfsvörn þegar komið var til byggða og töldu ekki útilokað að íbúar í fjalla- byggðinni hyggðu á hefndir. Þegar Sveinn Pálsson gekk á Öræfajökul sumar- ið eftir þ. e. 1794 fyrstur manna, þá er hann nokkuð upptekinn af bréfi prests og er sífellt að horfa eftir fjöllum í Klofajökli, (þ. e. Vatnajökli) sem hugsan- legt væri að útilegumenn hefðu sest að í. Sveinn lýsir umhverfinu allnákvæmlega, meðal annars telur hann sig vera að lýsa Breiðamerkurfjalli og Mávabyggðum, sem eru fjöll austan í Öræfajökli, en við nánari athug- un og yfirlestur má sjá að einhvers misskilnings gætir í staðsetningu þessara fjalla hjá honum; þó þarf ekki svo að vera, ef til vill höfðu þeir sem síðar staðsettu þessi fjöll sett þau niður á röngum stað. Uppdrátt- ur eða kort af Vatnajökli og næsta nágrenni, frá árinu 1794 og birt er í Ferðabók Sveins staðfestir, að þegar hann telur sig vera að lýsa Breiðamerkurfjalli, þá er hann að lýsa þeim Mávabyggðum sem við þekkjum og þegar hann telur sig vera að lýsa Mávabyggðum þá er hann að lýsa fjöllum sem við þekkjum sem Esju- fjöll. Sú nafngift kom þó ekki til fyrr en á 20. öld. Breiðamerkurfjall sem við nú þekkjum hét fyrr meir Breiðamerkurmúli, það nafn kemur fyrir í ævagöml- um kirknamáldaga. Sá er þetta ritar hefur um langt árabil verið þeirra skoðunar að Öræfingar og Suðursveitungar eigi heimsmet í því að færa til fjöll og dali, jafnvel milli sveita. Þeir voru jú vanir því að jökulárnar flæmdust sitt á hvað um sandana, ekkert var á þær að treysta um staðsetningar, jafnvel ekki frá degi til dags, því þurftu fjöllin eða dalirnir þá endilega að vera alltaf á sama 114 JÖKULL No. 59, 2009
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.