Jökull


Jökull - 01.01.2009, Page 113

Jökull - 01.01.2009, Page 113
Ferðir í Fjöll Suðursveitar ir bændur í Suðursveit leitað sér matbjargar í Máva- byggðir, bændurnir náðu einhverjum kindum þarna í fjöllunum, síðar fékk sýslumaður fregnir af málinu og við rannsókn kom í ljós að féð sem bændurnir tóku var ómarkað og voru þeir dæmdir fyrir þjófnað. (Ferða- bók Sveins Pálssonar bls. 280). Vitað var að villifé eða útigangar héldu sig í fjöll- unum að baki byggðar eða í nágrenni Breiðamerkur- jökuls. Nú vitum við að útilokað er að hópar villifjár hefðu lifað í þeim fjöllum sem við þekkjum sem Mávabyggðir, þau fjöll eru vestan Breiðamerkurjök- uls þannig að ótrúlegt þykir að Suðursveitungar hafi brotist þangað til matbjargar þó hart væri í ári. Sá er þetta ritar hefur komið í Mávabyggðir vestan Jökuls fyrir fáum árum, mat hans er það að í þessum fjöll- um gæti hrafn tæpast lifað af vetur, hvað þá sauðkind. Ekki er hægt að útiloka að einhver ruglingur hafi orðið milli Mávabyggða og Mávatorfu, en með hliðsjón af samanburði örnefna í Öræfum og Suðursveit frá fyrri öldum til nútíma, má telja ólíklegt að einhver vitræn niðurstaða fengist úr slíku. Jökla- og fjallarannsóknir í Suðursveit í 200 ár Sagnir hafa geymst um að fólk úr Suðursveit hafi far- ið til grasa undir Snæfell (Skaftfellskar þjóðsögur bls. 75). Einnig eru heimildir fyrir því að samgöngu- land hafi fyrr meir verið milli Skaftafells í Öræfum og Möðrudals á Fjöllum (Skaftfellskar þjóðsögur bls. 72). Slíkar heimildir sem þessar eru gulls ígildi, en taka verður þeim báðum með nokkrum fyrirvara. Þó hraustmenni hafi byggt Öræfi og Suðursveit um aldir, þá er til of mikils ætlast af þeim að hafa drýgt þær hetjudáðir sem hér var að framan vitnað til. Báð- ar þessar tilvitnanir hafa verið teknar full bókstaflega af seinni tíma mönnum og færðar í þjóðsagnastíl, án þess að málið væri kannað nánar. Hvaða Snæfell var það sem Suðursveitungar áttu að hafa farið til grasa í. Seinni tíma menn þekktu aðeins Snæfell á Héraði og var án efa vísað til þess í Skaftfellskum þjóðsög- um. Það Snæfell sem Suðursveitungar fóru til grasa í er af samgöngulegum ástæðum útilokað að hafi ver- ið Snæfell það á Héraði sem við nú þekkjum. Þang- að er í beinni loftlínu frá Kálfafellsstað í Suðursveit 55 kílómetrar, fær gangvegur um hálendið er nær 100 kílómetrar og af þeim sökum fremur ólíklegt að Suð- ursveitungar einir hefðu farið þessa leið sér til mat- bjargar, frekar en þeir sem nær voru eins og til dæm- is fólk úr Nesjum eða Lóni. Sagan um grasaferðir fólks úr Suðursveit í Snæfell á án efa við um annað Snæfell en það sem við nú þekkjum. Breiðabunga, fjallabákn mikið, 20–30 kílómetra langt frá austri til vesturs og 10–15 kílómetra breitt frá norðri til suðurs, liggur norðan allra byggðarfjalla, frá Kálfafellsdal í Suðursveit allt að Sandmerkisheiði á Mýrum. Síðustu sumur hefur lítill hluti vesturhlíðar Breiðubungu ver- ið snjólaus og er ekki ólíklegt að einmitt á þær slóðir hafi fólk úr Suðursveit farið til grasa á öldum áður. Ekki spillir fyrir að leið sú sem Norðlendingar áttu að hafa farið til sjóróðra í Suðursveit liggur þessa sömu leið. Ekki er tiltakanlega löng leið úr Staðardal í Suð- ursveit um Hálsatind að þeim slóðum Breiðubungu sem nú eru að mestu snjólausar síðsumars. Vegfar- andur um þjóðveg 1 eiga þess kost að fylgjast með á næstu árum hvernig vesturhlíðar Breiðubungu losna smátt og smátt úr viðjum jökulsins. Á hæð austan Kvíár í Öræfum þegar sést heim að Kvískerjum er til- valið að stöðva bifreiðina, taka upp sjónauka ef hann er með í för og skoða fjöllin sem sjást í jöklinum norð- an við Þverártindseggjar. Eyjólfsfjall sést allvel, snýr frá vestri til austurs, 927 metra hátt, sýnist þó eins og hundaþúfa í samanburði við Breiðubungu sem þarna er norðaustan við. Miðað við breytingar á snjóalög- um og jökulþykkt í vesturhlíðumBreiðubungu síðasta áratug er ekki ólíklegt að þarna frá þjóðveginummegi fylgjast með hvernig fjallið smátt og smátt skýrist. Um árið 2020 má gera ráð fyrir að vesturhlíðar þess verði að mestu snjólausar í 750–1200 metra hæð. Um afrek smalanna í Skaftafelli og Mörðrudal og gagnkvæm réttindi þessara jarða samkvæmt æva- gömlum máldaga, er líklegast að einhver biskupinn eða ritari hans, ef til vill hálfblindur og gleraugna- laus, hafimisritað eða mislesið Skaftafell í stað Stafa- fell. Vitað er að lönd Stafafells í Lóni og Möðrudals á Fjöllum hafa á öldum áður legið nálægt hvort öðru, samgangur sauðfjár þessara bæja hafi verið nokkur áður en jöklar tóku að stækka. Skógur í Stafafelli var öldum saman talinn hinn mesti í Skaftafellssýslu. Ferðir Norðlendinga til útróðra í Suðursveit Sagnir höfðu geymst um að Norðlendingar hefðu á öldum áður komið til útróðra að Hálsahöfn í Suður- sveit. Góð hafnaraðstaða og gnægð fiskjar á vormán- JÖKULL No. 59, 2009 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.