Jökull - 01.01.2009, Page 130
Magnús T. Guðmundsson
Grímsvatnagosi og Skeiðarárhlaupi. Á mynd sem þá
var tekin (2. mynd) sést að skerið hafði þá náð svip-
aðri stærð og þegar við sóttum það heim vorið 2006.
Í ferðinni í júní 2006 var komið fyrir fastmerki
á steini og er það nú notað sem GPS landmælinga-
punktur (4. mynd). Tilkoma þessa mælipunkts mun
auðvelda mjög rannsóknir á landrisi vegna þynningar
jökulsins. Fram til þess að skerið var kannað var ekki
öðrum GPS mælipunktum en Grímsfjalli til að dreifa
um miðbik Vatnajökuls. Þótt Grímsvötn séu flestum
stöðum forvitnilegri eru þau og næsta nágrenni þeirra
ekki heppileg til aðmæla áhrif ísfargsins á landið und-
ir jöklinum. Stafar það af því að á Grímsfjalli er mjög
erfitt að aðgreina landhæðarbreytingar vegna kviku-
söfnunar og eldgosa frá breytingum vegna jökulrýrn-
unar.
Sú hugmynd hefur komið fram að nefna skerið
eftir einum af könnuðum Vatnajökuls, William Lord
Watts, en hálfþrítugur fór hann ásamt nokkrum Íslend-
ingum fyrstu skráðu gönguna yfir jökulinn, sumarið
1875. Í Dyngjufjöllum sunnanverðum er dálítið fjall
sem heitir Vatnsfell (eða Wattsfell) eftir þessum harð-
duglega ferðamanni en ekkert örnefni í Vatnajökli er
honum tengt, nema ef hægt sé að taka svo til orða um
Pálsfjall. Watts gaf því nafn eftir samferðamanni sín-
um Páli Pálssyni sem jafnan var nefndur Páll jökull
eftir ferðir sínar með Watts. Íslendingar snéru nafni
Watts og nefndu hann Vött. Um það ber m. a. vitni
kvæði sem flutt var í brúðkaupi Páls jökuls og Önnu
Sigurbjarnardóttur haustið 1876, en þar eru þessar
línur:
Hann er víðförull nóg, því með Vetti hann fló,
yfir vindkaldar hrímþursa slóðir;
og um láðið gervallt, bæði lognheitt og svalt,
hefur leiðirnar kannað vor bróðir.
Hér er nú lagt til að skerið í miðjum Skeiðarárjökli
fái nafniðVöttur. UmWatts, Pál jökul og ferðir þeirra
má fræðast í bók þess fyrrnefnda (Watts, 1962). Jón
Eyþórsson þýddi bókina og skrifaði fróðlegan formála
þar sem m. a. er að finna vísuna hér að ofan. Jón taldi
reyndar aðWatts hefði ekki lifað mörg ár eftir Vatna-
jökulsferðina þar sem heimildir um hann í Bretlandi
voru engar eftir 1877. Nýlega kom í ljós að ástæð-
an fyrir því að Watts hvarf úr skrám og heimildum
á Englandi er sú að hann flutti vestur um haf. Þar
átti hann merkilegan feril sem greint er frá í Lesbók
Morgunblaðsins í júní 2009 (Gerður Steinþórsdóttir,
2009).
A new nunatak in Skeiðarárjökull
Due to the thinning of Vatnajökull, a nunatak has
gradually emerged in the center of Skeiðarárjökull.
On an aerial photo from 1961 it is fully covered by
ice. In 1992, the very top is exposed and in 1997
the exposed part has increased considerably in area.
By 2004 the exposed nunatak was 1.5 km long (east-
west) and a few hundred meters wide (north-south). It
rises to about 1050 m above sea level, and lies just be-
low the equilibrium line of the glacier. It is the source
of a large medial moraine. The nunatak is made of
basaltic hyaloclastites, pillow lava and pillow breccia
and most likely formed in subglacial volcanic activity.
Moss has already formed on parts of the nunatak. It
is suggested that the nunatak is given a name in mem-
ory of William Lord Watts, who led the first crossing
of Vatnajökull in 1875. Traditions in Iceland do not
favour placenames in foreign languages. However,
Watts was nicknamed Vöttur by some of his Icelandic
contemporaries and it is suggested here that this nick-
name is used for this gradually emerging nunatak.
REFERENCES
Gerður Steinþórsdóttir 2009. Undir sigurboga. Lesbók
Morgunblaðsins 13. júní.
Helgi Björnsson, Finnur Pálsson, Oddur Sigurðsson og
Gwenn Flowers 2003. Surges of glaciers in Iceland.
Annals of Glaciology 36, 82–90.
Matthew J. Roberts, Finnur Pálsson, Magnús T. Gud-
mundsson, Helgi Björnsson og Fiona Tweed 2005.
Ice-water interactions during floods from Grænalón
glacier-dammed lake, Iceland. Annals of Glaciology
40, 133–138.
Oddur Sigurðsson 1998. Glacier variations in Iceland
1930–1995. Jökull 45, 3–25.
Svanur Pálsson, Snorri Zóphóníasson, Oddur Sigurðs-
son, Hrefna Kristmannsdóttir og Hákon Aðalsteins-
son 1992. Skeiðarárhlaup og framhlaup Skeiðarárjök-
uls 1991. Orkustofnun, OS-92035/VOD-09B, 41 bls.
William L. Watts 1962. Norður yfir Vatnajökul 1875 (þýð.
Jón Eyþórsson). Bókfellsútgáfan, Reykjavík, 208 bls.
130 JÖKULL No. 59, 2009