Jökull - 01.01.2009, Blaðsíða 131
Society report
Vorferð Jöklarannsóknafélags Íslands, 30. maí – 7. júní 2008
Magnús Tumi Guðmundsson
Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík; mtg@hi.is
Í þessari ferð dreifðist hópurinn víðar um Vatnajök-
ul en oftast áður því auk margvíslegra mælinga í og
við Grímsvötn, voru mælingaflokkar í Kverkfjöllum
og á Goðahnjúkum mestan hluta tímans. Fyrir vikið
var ferðaáætlunin heldur flóknari en oftast og þátttak-
endur margir, alls 29 manns. Farartæki voru snjóbíll
HSSR og Jöklarauður félagsins auk jeppa og vélsleða.
Fararstjóri var Magnús Tumi Guðmundsson en Sjöfn
Sigsteinsdóttir sá um birgðahald.
Stærstur hluti hópsins lagði upp frá Reykjavík á
föstudagskvöldi og hélt í Jökulheima þar sem allir
gistu. Á laugardagsmorgun, síðasta dag maímánað-
ar, var risið árla úr rekkju, gengið frá farangri, mikl-
um eldsneytisbirgðum komið á kerrur og lagt upp frá
jökulrönd eftir hádegið. Rigning var til að byrja með
en síðan stytti upp og glaðnaði í lofti. Ferðin gekk
að óskum og um kvöldið þegar á Grímsfjall kom, var
orðið bjart um allan jökul. Á sunnudegi 1. júní hóf-
ust mælingar og rannsóknir. Þriggja manna hópur
fór austur á Goðahnjúka að mæla jaðarurðir og fjög-
urra manna hópur í Kverkfjöll til rannsókna á jarð-
hita. Einnig var vitjað um Esjufjallaskála. Þang-
að voru fluttar vistir fyrir leiðangur líffræðinga sem
hélt til í skálanum við rannsóknir seinna um sumar-
ið. Ágætisveður var víðast hvar á mánudag og varð
sá dagur mörgum drjúgur til verka. Þá bættust einnig
fimm manns í hópinn, til mælinga kringum Skaftár-
katla. Á þriðjudagi var vinnuveður á vestanverðum
jöklinum en hvasst og inniseta í Kverkfjöllum og á
Goðahnjúkum. Miðvikudag og fimmtudag var hríðar-
veður lengst af, austan hvassviðri og inniseta í öllum
húsum. Hópur vasks skíðafólks úr Hjálparsveitinni í
Garðabæ heimsótti okkur þó á ferð sinni vestur um
og dvaldi tvær nætur í tjöldum á Grímsfjalli. Þegar
þau síðan lögðu upp var enn austan þræsingur. Ekki
kom það að sök, því með vindinn í bakið gekk ferð
þeirra niður Tungnaárjökul hratt og vel. Fimmtudag-
inn 5. júní skiluðu allir hjáleigubúar sér heim á höf-
uðbólið á Grímsfjalli. Einn vélsleða urðu þó Goða-
hnjúkafarar að skilja eftir þar sem honum varð ekki
komið í gang þegar til átti að taka. Var hann sóttur
seinna um sumarið. Á föstudeginum fórum við svo
til Jökulheima. Fyrir suma var sú ferð með allnokkr-
um útúrdúrum því í leiðinni þurfti að sækja GPS tæki
á skeri í Skeiðarárjökli og á Hamrinum. Veður fór
batnandi þegar kom fram á þennan brottfarardag enda
skjannabjart á Tungnaárjökli á niðurleið.
Helstu verkefni ásamt frumniðurstöðum:
1. Vatnshæð Grímsvatna mældist 1360 m y. s. Hún er
því lág eins og verið hefur um nokkurt árabil. Enda
hagar ennþá svo til að sírennsli er úr Grímsvötnum til
Skeiðarár. Vatnssöfnun er því óveruleg og ekki von á
reglulegum Grímsvatnahlaupum.
2. Vetrarafkoma í Grímsvötnum var rúmir 5 metrar og
vatnsgildi 3,2 m, sem er með meira móti.
3. Vetrarafkoma var mæld á Bárðarbungu, norðan
Grímsvatna og á Háubungu. Einnig var sett upp sjálf-
virk veðurstöð á Bárðarbungu. Þá var vitjað um veð-
urstöðvar á Tungnaárjökli.
4. Grímsvatnasvæðið var kortlagt með GPS eins og
undanfarin ár. Í vestanverðum Grímsvötnum, nærri
gígnum frá 2004, hefur jarðhiti aukist mjög undanfar-
in ár og nýir sigkatlar myndast.
5. Haldið var áfram rannsókn á lagskiptingu gjósku-
lagsins frá 2004 en það verkefni er nú langt komið.
Tanya Jude-Eton, doktorsnemi við Edinborgarháskóla
hefur unnið þessa rannsókn og var þetta fimmta ferð
hennar hingað í þessum tilgangi.
6. Í Grímsvötnum voru settar upp ísskriðsstikur og
JÖKULL No. 59, 2009 131