Jökull - 01.01.2009, Síða 140
Magnús T. Guðmundsson
líkur eru á að sett verði upp lítið hús austan við skála
JÖRFÍ. Skálanefndin vinnur að lausn málsins með
Neyðarlínunni, en gæta verður þess að Tetrabúnaður-
inn og það rask sem uppsetningu hans myndi fylgja,
skerði ekki aðstöðu félagsins og stofnana sem reka
mælitæki á fjallinu til að sinna verkefnum sínum.
Nýtt og betra eldhús á Grímsfjalli hefur stórbætt að-
stöðu leiðangra og stærri hópa. – The new kitchen at
Grímsfjall.
BÍLAMÁL
Starf bílanefndarinnar var með hefðbundnum hætti
á árinu. Bíllinn fór í fimm fjallaferðir: Afkomu-
mælingaferð á Mýrdalsjökul, Vinnuferð í Grímsvötn,
Vorferð á Vatnajökul, sumarferð á Vatnajökul og
haustferð í Jökulheima. Verkefnin í þessum ferðum
voru rannsóknir og skálaviðhald. Sem betur fer urðu
ekki alvarlegar bilanir en þó var skipt um millikassa
og ný dekk keypt og sett undir bílinn. Þau eru 46"að
hæð og gera bílinn enn betri jöklafarartæki en áður. Sú
breyting var á starfi bílanefndar að bílinn hafði lengst
af ekki fastan samastað innandyra þar sem húsnæði
það sem Hafliði Bárður Harðarson hafði lánað félag-
inu þurfti að fara í önnur not. Ódýr geymsla fékkst
fyrir bílinn innandyra í Sandgerði í nóvember og verð-
ur hann þar fram undir vorið.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð fór að þessu sinni fram í Viðeyjarstofu
eftir fordrykk hjá R. Sigmundssyni við Sundahöfn.
Skemmtileg stemning var á stofuloftinu og dansinn
stiginn sem aldrei fyrr. Allir urðu samferða úr Eyjunni
að hátíð lokinni enda aðeins ein bátsferð. Skemmt-
inefnd átti að venju heiðurinn að skipulagningu og
hvernig til tókst.
LOKAORÐ
Starf félaga eins og okkar getur verið svipað frá einu
ári til annars. Félagið virðist þó á réttri leið því fé-
lögum fjölgar heldur og reynt er eftir megni að fram-
fylgja þeirri stefnu sem samþykkt var á síðasta ári,
en hana má finna á vefsíðu félagsins. Eitt atriði sem
gaman er að geta hér og bendir til þess að nokk-
uð þokist við að vinna að markmiðum félagsins, er
aukin þátttaka meistara- og doktorsnema í vorferð-
um þar sem þessir nemar vinna að rannsóknarverk-
efnum sínum. Fyrstan skal telja Alexander Jarosch,
en hann lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands á síð-
asta ári. Verkefni hans snérist um notkun ísflæði-
reikninga til að rannsaka hitauppsprettur undir jökli.
Björn Oddsson lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands
á síðasta ári með ritgerð um útbreiðslu gjóskulagsins
úr Grímsvatnagosinu 2004. Bergur Einarsson vinn-
ur nú að meistaraverkefni við HÍ um hlaup úr Skaft-
árkötlum, Hrafnhildur Hannesdóttir hefur hafið rann-
sóknavinnu vegna doktorsverkefnis við HÍ um jökla-
breytingar í Austur Skaftafellssýslu. Að lokum skal
nefna Tönju Jude-Eton sem vinnur að doktorsverkefni
við Edinborgarháskóla um hegðun gossins í Gríms-
vötnum 2004.
Öll hafa þau notið virkra aðstoðar JÖRFÍ, einkum
með vinnu sjálfboðaliða okkar í vorferðum. Félagið
svarar því kalli tímans og gegnir mikilvægu hlutverki
í þjálfun ungra vísindamanna. Samhliða því þjálfar fé-
lagið upp nýjar kynslóðir jöklaferðafólks og þúsund-
þjalasmiði sem gert geta við hvaðeina sem bilar. Nú
sem fyrr gildir að slíkir menn eru bráðnauðsynlegir í
jöklaleiðöngrum.
Magnús Tumi Guðmundsson
140 JÖKULL No. 59, 2009