Fréttablaðið - 27.10.2018, Page 2
Veður
Norðlæg átt, 5-10 en 13-20
suðaustan til og víða vindstrengir
við fjöll. Snýst í sunnanátt um landið
vestanvert seinnipartinn, þykknar
upp og hlýnar, 13-23 vestan til seint
í kvöld og rigning eða slydda.
sjá síðu 46
Lásu Ríkharð þriðja
Samlestur var á Ríkharði þriðja í Borgarleikhúsinu í gær. Leikritið, eitt af þeim fyrstu sem William Shakespeare skrifaði fyrir rúmum fjögur
hundruð árum, verður frumsýnt þann 29. desember næstkomandi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir verkinu og eru Arnar Dan Kristjánsson,
Edda Björg Eyjólfsdóttir, Halldór Gylfason og Kristbjörg Kjeld á meðal þeirra sem munu túlka verkið á sviði leikhússins. Fréttablaðið/anton brink
stjórnmál „Eigum við ekki að segja
að eftirlíkingar séu besta hrósið,“
segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
um stimpilgjaldafrumvarp Þorsteins
Víglundssonar, þingmanns Viðreisn-
ar, en virðist ekki skemmt yfir fram-
lagningu frumvarpsins enda hefur
hún sjálf ítrekað lagt fram frumvarp
um afnám stimpilgjalda.
„Ég held það þekkist ekki í vinnu-
brögðum þingsins að leggja fram
frumvörp sem aðrir þingmenn hafa
lagt fram án leyfis eða samráðs,“ segir
Áslaug. Aðspurð segir hún Þorstein
ekki hafa komið að máli við hana
áður en hann lagði frumvarpið fram,
en hann geti ekki hafa velkst í vafa um
að hún hafi lagt sams konar frumvörp
fram enda hafi hann setið í efnahags-
og viðskiptanefnd þar sem frumvarp
hennar hafi komið til umræðu.
Aðspurður kannast Þorsteinn við
málið og segist hafa heyrt pirring
Áslaugar frá henni sjálfri. Frum-
vörpin tvö um stimpilgjöldin séu
hins vegar ekki eins. Hennar lúti að
afnámi stimpilgjalda vegna kaupa á
fyrstu íbúð en hans að afnámi allra
stimpilgjalda, ekki eingöngu einka-
aðila heldur í atvinnulífinu. Hann
sjái ekkert athugavert við að málin
fái sameiginlega meðferð í þinginu
enda skyld.
Þorsteinn snýr talinu að áfengis-
frumvarpinu svokallaða, enda komi
pirringurinn vafalaust þaðan. Það
vakti athygli í fyrra þegar Þorsteinn
varð fyrsti flutningsmaður áfengis-
frumvarpsins; máls sem ungir Sjálf-
stæðismenn hafa lagt fram á svo til
hverju hausti um langt árabil.
Þorsteinn segir að eftir kosning-
arnar 2016 hafi umræða skapast
meðal frjálslyndra þingmanna um að
nú væri lag að koma áfengismálinu í
gegn enda jafn frjálslynt þing ekki
verið kosið í ár og öld. Góður kjarni
hafi verið myndaður um málið þann
veturinn og málið komist alla leið til
nefndar þar sem Pawel [Bartozek],
Innblásinn af Áslaugu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sakar Þorstein Víglundsson um stuld á frumvarpi
um stimpilgjöld. Hann bætir um betur og játar þjófnað á áfengisfrumvarpinu.
Þorsteinn telur málið eiga uppruna sinn í áfengismálinu og að Áslaug hafi
fyrirgefið sér fyrir að hafa lagt málið fram í nýjum búningi á síðasta þingi.
fyrrverandi þingmaður Viðreisnar,
hafi gert á því grundvallarbreytingar.
„Pawel innti mig eftir því eftir kosn-
ingarnar hvort við hygðumst fylgja
málinu eftir og bauðst til að setja mig
inn í þær breytingar sem orðið hefðu.
Ég setti málið í farveg í þinginu og þá
var fyrsta mál á dagskrá að spyrja
þá sem höfðu áður verið með málið
hvort þeir yrðu með aftur. Þá kom
Áslaug til mín og sakaði mig hálf-
partinn um að stela málinu.“
Þorsteinn segir málið alls ekki
það sama og það sem Sjálfstæðis-
menn hafa lagt fram enda ekki verið
að opna á sölu áfengis í verslunum
heldur fjalli frumvarpið að megin-
stefnu um heimild fyrir einkaaðila til
að reka sérverslanir með áfengi.
„Það má vera að það hafi verið
byrjendamistök hjá mér að tala ekki
við þau fyrr en fyrst og fremst vildi
ég koma málinu fyrir þingið að nýju
og ræddi að sjálfsögðu við þau um
meðflutning. Síðan má velta fyrir sér
hvort Sjálfstæðismenn líti á þetta sem
æfingamál fyrir þingmenn sína sem
gott sé að leggja fram á hverju ári en
ekki fá afgreitt. Málið hefur ítrekað
verið lagt fram af þingmönnum
flokksins á meðan hann hefur átt í
ríkisstjórnarsamstarfi en aldrei náð
fram að ganga.“
adalheidur@frettabladid.is
Það má vel vera að
það hafi verið
byrjandamistök hjá mér að
tala ekki við þau fyrr.
Þorsteinn Víglundsson,
alþingismaður
trYGGInGAr Dánarbætur ekkju úr
fjölskyldutryggingu eftir fráfall eigin-
manns hennar voru skertar um helm-
ing vegna ölvunarástands mannsins
á dánarstundu. Þetta er niðurstaða
úrskurðarnefndar í vátrygginga-
málum (ÚRVá).
Maður hennar lést í fyrra vegna
heilablæðingar sem hann hlaut eftir
fall heima hjá sér. Þegar slysið átti
sér stað var maðurinn einn heima og
við skál. Vátryggingafélagið féllst á
greiðslu bóta en vildi skerða þær um
tvo þriðju vegna stórfellds gáleysis
mannsins. ÚRVá féllst á það að hluta
en dró úr lækkuninni. Slysið hefði
orðið á heimili mannsins þar sem
hann var öllum hnútum kunnugur.
Ekkert bendi til annars en að ölvun
mannsins hafi valdið slysinu. - jóe
Skertu bætur
vegna ölvunar
eiginmanns
l Ö G r E G l u m á l
Maðurinn sem
sætti rannsókn
í tengslum við
andlát ungrar
konu um síðast-
liðna helgi hefur
verið látinn laus úr
haldi. Hann var í vikunni úrskurð-
aður í gæsluvarðhald, sem rann út
í gær.
Fréttablaðið greindi frá því í
vikunni að maðurinn hefði verið
handtekinn í tengslum við málið,
en hann er grunaður um að hafa
ekki komið konunni til hjálpar og
látið sig hverfa þegar föður hennar
bar að.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur maðurinn verið sam-
starfsfús og staðfest er að hann var
á heimili konunnar þegar hún lést.
Bráða birgða niður staða krufning-
ar liggur fyrir en niður stöður eitur-
efna rann sóknar er beðið. Unnið er
á fram að rann sókn málsins. – sks
Laus úr haldi
Dómsmál Landsréttardómaramálið
fær flýtimeðferð hjá Mannréttinda-
dómstól Evrópu. RÚV greindi frá í
gær. Um er að ræða kæru fjögurra
umsækjenda sem dómsmálaráð-
herra skipaði ekki í Landsrétt þótt
þeir hefðu verið á fimmtán manna
lista hæfisnefndar yfir umsækj-
endur.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lög-
maður, sem sá um að kæra málið til
dómstólsins, sagðist hafa frest til 23.
nóvember til að gera athugasemdir
við málatilbúnað ríkisins í málinu
„og koma á framfæri bótakröfu fyrir
hönd umbjóðanda míns“. – þea
Dómaramálið
fær flýtimeðferð
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson,
lögmaður.
2 7 . o k t ó b E r 2 0 1 8 l A u G A r D A G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A ð I ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-B
C
C
C
2
1
3
3
-B
B
9
0
2
1
3
3
-B
A
5
4
2
1
3
3
-B
9
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K