Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Tölur vikunnar 21.10.2018 - 27.10.2018
14
prósent eru
ánægð með
störf biskups
Íslands.
44
prósent segj-
ast óánægð
með störf
biskups.
42
prósent eru
hvorki ánægð
né óánægð.
var sigur íslenska karla-
landsliðsins í hand-
knattleik á Grikklandi í
undankeppni EM 2020.
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
jeep.is
RENEGADE
2.0 DÍSEL, 170 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR,
HÁTT OG LÁGT DRIF.
COMPASS
2.0 DÍSEL, 140/170 HÖ.
2.0 BENSÍN, 170 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR.
CHEROKEE
2.2 DÍSEL, 185 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
4 DRIFSTILLINGAR.
GRAND CHEROKEE
3.0 DÍSEL, 250 HÖ,
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF.
JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
fjársjóðsleiT Leit að gulli í flaki
þýska flutningaskipsins SS Minden
virðist lokið án þess að leiðangurs-
menn hefðu nokkuð upp úr krafsinu.
Talsverð athygli beindist að
leiðöngrum breska fyrirtækisins
Advanced Marine Services (AMS)
að SS Minden sem áhöfnin sökkti í
september 1939 um 120 sjómílum
undan Íslandi til að forða því frá að
falla í hendur Breta.
Í erindi til Umhverfisstofnunar
í fyrra sagði AMS að gull kynni að
leynast í hirslu í Minden og sendi
stofnuninni mynd sem tekin var
í flakinu og sýndi skáp eða kassa í
póstherbergi skipsins. Miðað við
málin á skápnum mátti áætla að í
honum rúmaðist gull fyrir jafnvirði
um tólf milljarða króna.
AMS fékk leyfi til að rjúfa gat á
Minden og hófst handa í nóvem-
ber 2017 en varð frá að hverfa vegna
veðurs. Þráðurinn var tekinn upp að
nýju 19. júní í sumar. Stóðu aðgerðir
við Minden fram til 10. júlí. Minden
hvílir á 2.240 metra dýpi og því um
flókna og afar dýra aðgerð að ræða.
Ef marka má skýrslu sem nú hefur
verið skilað til Umhverfisstofnunar
gripu útsendarar AMS í tómt í iðrum
Minden. „Vinnan hélt áfram til 19.30
þann 10. júlí þegar lokaskoðun var
gerð. Það var þá staðfest að engir
verðmætir hlutir fundust,“ segir í
skýrslunni. „Enginn farmur fannst
og ekkert var fjarlægt úr flakinu.“
Í þessu sambandi má benda á að
þegar rannsóknarskipinu Seabed
Worker var siglt af vettvangi 10.
júlí virtist AMS vilja halda þeim
möguleika opnum að snúa aftur.
„Framkvæmdaraðili segir að gildis-
tími starfsleyfisins hafi verið fram-
lengdur til 1. október 2018 og gæti
því komið til þess að hann óski eftir
að snúa aftur á svæðið,“ sagði í svari
frá lögmanni Umhverfisstofnunar til
Fréttablaðsins þennan dag. Engin til-
kynning um slíkt hefur þó verið sett
fram, ekki enn að minnta kosti.
Gripið í tómt í fjársjóðsskipinu
Advanced Marine Services segist engin verðmæti hafa fundið í flaki SS Minden sem liggur undan Íslandi.
Umhverfisstofnun telur Landhelgisgæsluna hafa staðfest þetta en Gæslan kveðst ekkert geta fullyrt um það.
Varðskipsmenn á Þór fylgdust með upphafi aðgerða rannsóknaskipsins Seabed Worker. MYND/LaNDheLgiSgæSLaN
Halla Einarsdóttir, sérfræðingur
hjá Umhverfisstofnun, segir stofnun-
ina enga ástæðu hafa til að efast um
þá frásögn AMS að ekkert hafi verið
tekið úr Minden.
„Þar sem við vorum ekki á staðn-
um hafði ég sambandi við Landhelg-
isgæsluna sem var á vettvangi og fékk
staðfestingu á því að þetta myndi
samræmast þeirra skráningum,“
segir Halla. „Við tökum þessu alveg
trúanlega þar sem við höfum engar
forsendur til að rengja það neitt.“
Aðspurð hvort það sé ekki óvænt
að ekkert hafi fundist í Minden
kveðst Halla engar væntingar hafa
haft um það. Áhugi Umhverfisstofn-
un hafi beinst að því hvort mengun
fylgdi aðgerðunum. „Ég hef bara lagt
áherslu á að þeir myndu fylgja sínum
skyldum samkvæmt starfsleyfinu,“
segir hún. Og samkvæmt AMS stafaði
engin mengun af framkvæmdinni.
Varðandi skápinn fyrrnefnda
segir Halla leiðangursmenn væntan-
lega hafa komið að honum tómum.
„Það getur verið að þeir hafi opnað
skápinn og séð að það var ekkert til
að taka úr honum,“ segir hún.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir
að varðskipið Þór hafi verið á fram-
kvæmdasvæðinu til að byrja með í
sumar og fylgst með Seabed Worker,
sem AMS var með á leigu. TF-SIF,
flugvél Landhelgisgæslunnar, hafi
sinnt eftirliti úr lofti.
„Landhelgisgæslan getur ekki
fullyrt að Seabed Worker hafi ekki
fundið nein verðmæti við vinnu sína
við flak þýska skipsins SS Minden.
Aftur á móti höfum við enga ástæðu
til að efast um svör Advanced Marine
Services þess efnis enda hafði fyrir-
tækið leyfi til þess að ná verðmætum
úr flakinu,“ segir Ásgeir.
Þá segir Ásgeir að Landhelgis-
gæslan hafi verið að gæta þess
að tímarammi starfsleyfisins frá
Umhverfisstofnun yrði virtur og að
ekki yrði umhverfistjón vegna fram-
kvæmdanna.
„Löggæslumenn frá varðskipinu
Þór fóru einu sinni um borð í Seabed
Worker og fengu upplýsingar um
framvindu aðgerðanna,“ segir Ásgeir.
„Samkvæmt starfsleyfinu var Sea-
bed Worker bundið af því að veita
Landhelgisgæslunni upplýsingar um
staðsetningu og framvindu tvisvar á
sólarhring. Áhöfnin veitti allar upp-
lýsingar sem óskað var eftir,“ bætir
Ásgeir enn fremur við.
gar@frettabladid.is
Landhelgisgæslan
getur ekki fullyrt að
Seabed Worker hafi ekki
fundið nein verðmæti við
vinnu sína við flak þýska
skipsins
SS Minden.
Ásgeir Erlendsson,
upplýsingafull-
trúi Landhelgis-
gæslunnar
Þorsteinn Víglundsson
þingmaður
Viðreisnar
sagði dómsmála-
ráðherra hætta
sér út á hálan
ís í umræðum
um launamun
kynjanna. Sigríður
Á. Andersen sagði að þegar leið rétt
væri fyrir ýmsum mælan legum
þáttum stæði eftir innan við 5 pró-
senta launa munur á milli kynjanna.
Þorsteinn sagði marga þætti fjarri
því að vera mál efna lega.
Jón Kaldal
talsmaður Ice
land ic Wildlife
Fund
sagði að sér
fyndist það snúast
um tjáningarfrelsi
að fá að hengja upp nýtt og breytt
auglýsingaskilti í Leifsstöð um
íslenska laxastofninn. Isavia
bannar skiltið.
Skúli
Magnússon
héraðsdómari
sagði að ungum
mönnum, sem
væru sviptir lög-
ræði og nauðungar-
vistaðir vegna geðsjúkdóma, hefði
fjölgað. Þeir ættu það sameiginlegt
að hafa byrjað reglulega neyslu
kannabis ungir, yfirleitt 12-14 ára.
Þrír í fréttum
Laun, skilti
og kannabis
6,5
milljónir
hafa verið
dæmdar í
skaða- og
miskabætur
vegna skip-
unar dómara
við Landsrétt.
83
þúsundum tilfellum
af krabbameini
væri hægt að fækka
á Norðurlöndum
á 30 ára tímabili
með því að hætta
alfarið áfengisneyslu.
Helmingun hóflegrar
drykkju hefði í för
með sér fækkun um
21 þúsund tilfelli.
bílferðir
verða
farnar
með 270
þúsund
rúm-
metra
af lóð Landspítalans
vegna framkvæmda við
byggingu nýs spítala.
mældist atvinnu-
leysi í september.
Atvinnuleysi
hefur lækkað um
0,2 prósentustig
á síðastliðnum 6
mánuðum og um
0,4 prósentustig á
síðustu 12 mán-
uðum.
35-21
18.000 1,5%
2 7 . o k T ó b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-D
0
8
C
2
1
3
3
-C
F
5
0
2
1
3
3
-C
E
1
4
2
1
3
3
-C
C
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K