Fréttablaðið - 27.10.2018, Page 6
FÉLAGSMÁL „Ég er spennt að takast á
við verkefnin sem fram undan eru,
þau eru rosalega stór. Þingið okkar
setur tóninn fyrir það sem koma
skal næstu tvö árin,“ segir Drífa Snæ-
dal, nýkjörinn forseti ASÍ. 43. þingi
ASÍ lauk í gær og á lokadeginum var
kosið í embætti sambandsins og fjöl-
margar ályktanir samþykktar.
Drífa fékk 192 atkvæði í forseta-
kjörinu eða tæp 66 prósent en Sverrir
Mar Albertsson, mótframbjóðandi
hennar, fékk 100 atkvæði eða rúm
34 prósent.
„Veturinn leggst vel í mig. Þetta
verður stuð og þetta verður barátta.
Við þurfum á allri okkar samstöðu
að halda. Við þurfum að hugsa í
lausnum og vera svolítið skapandi til
að þetta gangi eftir. Vonandi munum
við á vormánuðum standa uppi með
betri kjör og betra samfélag,“ sagði
Drífa um þau verkefni sem fram
undan eru en kjaraviðræður hefjast
á næstunni.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, var kosinn
1. varaforseti en hann hafði betur í
kosningu gegn Guðbrandi Einarssyni,
formanni Landssambands íslenskra
verslunarmanna. Hlaut Vilhjálmur
171 atkvæði eða um 60 prósent en
Guðbrandur 115 eða um 40 prósent.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands, var sjálfkjörinn í embætti 2.
varaforseta.
Samstarfið við varaforsetana tvo
leggst vel í Drífu. „Ég þekki þá báða
að góðu einu. Þeir eru ólíkir og
báðir ólíkir mér þannig að þetta er
ágætis breidd.“ Aðspurð segir Drífa
að hennar fyrsta verk verði að kalla
saman forystuna og lesa og fara yfir
ályktanir þingsins.
Vilhjálmur segist þakklátur fyrir
stuðninginn og að sér sýnist ASÍ nú
vera að fá nýja ásýnd sem félagsmenn
hafi kallað eftir.
„Ég hef verið að gagnrýna forystu
Alþýðusambandsins í gegnum tíðina
og ég held að kjör mitt endurspegli
dálítið þessar breytingar sem nú eru
að eiga sér stað í íslenskri verkalýðs-
hreyfingu. Verkefni okkar nú er að
standa undir þessari áskorun sem er
fólgin í því að takast af festu, krafti
og dugnaði á við það að bæta kjör og
réttindi okkar félagsmanna.“
Hann telur ASÍ nú í góðri stöðu
gagnvart sínum viðsemjendum. „Við
erum með 120 þúsund manna sam-
tök á bak við okkur. Ef maður horfir
á það hvernig lobbíistar hinna efna-
hagslegu forréttindahópa hafa verið
í sinni hagsmunagæslu, þá á ASÍ að
sjálfsögðu að vera þarna í broddi fylk-
ingar með þau mál sem lúta að rétt-
indum íslenskrar alþýðu og heimila.“
Vilhjálmur segir að hann hefði
getað tekið þann pól í hæðina að
skríða undir borð þegar tækifærið
gafst, haldið áfram að gagnrýna og
verið leiðinlegur. „Ég er bara ekki
þannig gerður. Nú fékk ég tækifæri
til þess að reyna að sýna og sanna
að það sé hægt að gera betur og það
verður mitt hlutverk að taka þátt í því
með nýrri forystu.“
sighvatur@frettabladid.is
Drífa segir stuð og baráttu fram undan
Drífa Snædal var í gær kjörin nýr forseti Alþýðusambands Íslands. Hún segist spennt að takast á við verkefnin sem fram undan eru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fyrsti kvenforseti ASÍ
Drífa Snædal er fyrsti kvenkyns
forseti ASÍ í rúmlega hundrað ára
sögu sambandsins.
„Það hefur mikla þýðingu fyrir
mig persónulega. Ég held líka að
það hafi þýðingu fyrir Alþýðusam-
bandið því það endurspeglar fjöl-
breytileikann í sambandinu. Konur
eru tæpur helmingur félagsmanna
og það var svo sannarlega kominn
tími til.“
Í framboðsræðu sinni lagði Drífa
áherslu á lausn brýnna úrlausnar-
efna. „Ég hef lagt áherslu á hús-
næðismálin sem allir vita að eru
mjög aðkallandi. Einnig baráttuna
gegn félagslegum undirboðum og
brotastarfsemi á vinnumarkaði.“
Það þurfi að auka jöfnuð í sam-
félaginu. „Við þurfum að vinda
ofan af þeim vaxandi ójöfnuði
sem verið hefur hér síðustu ára-
tugi. Það gerum við best í gegnum
skattkerfið okkar, okkar sameigin-
legu sjóði.“
Ragnar Þór segir viðsemjendur mega vara sig
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, ákvað á þinginu að draga fram-
boð sitt til 1. varaformanns ASÍ til
baka. Gerði hann það í því skyni að
auka samstöðu á þinginu en hann
studdi Vilhjálm Birgisson gegn
Guðbrandi Einarssyni, sem er for-
maður Landssambands íslenskra
verslunarmanna.
Upphaflega voru bæði Ragnar
Þór og Vilhjálmur í framboði í sitt
hvort varaforsetaembættið en þeir
töldu á endanum betra að fulltrúi
iðnaðarmanna kæmi inn í forystu-
sveitina.
„Ég tel mikilvægt að á vettvangi
ASÍ komi fleiri raddir að borðinu.
Við erum í orðræðustríði, ekki bara
við okkar viðsemjendur, heldur
líka lobbíista ákveðinna stétta og
hagsmunaafla. Okkur veitir ekki af
liðsauka í að svara þeirri orðræðu.“
Hann segist ekki hafa áhyggjur
af því að rödd VR heyrist ekki þótt
hann sé ekki í forystusveit ASÍ. „Ég
er gríðarlega stoltur af hreyfing-
unni í dag. Hún tók ákallinu um
breytingar með kjörinu á þessari
forystu.“
Ragnar Þór segir að þungu fargi
sé af sér létt. „Ég held að allt launa-
fólk og allir félagsmenn stéttar-
félaga geti andað léttar og verið
bjartsýnir. Samningsstaða okkar
hefur styrkst alveg gríðarlega með
því að forystan er að fara óklofin til
leiks. Nú mega viðsemjendur okkar
fara að vara sig.“
Ný forysta ASÍ var kjörin
á þingi sambandsins í
gær. Drífa Snædal sem
var kjörin forseti segir
verkefnin fram undan
stór en spennandi. Vil-
hjálmur Birgisson var
kjörinn 1. varaforseti.
Hann segir kjör sitt
endurspegla þær breyt-
ingar sem eigi sér nú stað
í verkalýðshreyfingunni.
Kallað hafi verið eftir
nýrri ásýnd ASÍ.
Hinn 56 ára Cesar Sayoc var hand-
tekinn í gær. NORDICpHOTOS/AFp
BAndAríkin Flórídamaðurinn
Cesar Sayoc var handtekinn í gær
í tengslum við rannsókn á bréf-
sprengjusendingum til áhrifamanna
innan bandaríska vinstrisins. Sayoc
er 56 ára, keyrir hvítan sendiferða-
bíl þakinn stuðningsyfirlýsingum
við Donald Trump forseta og hefur
verið virkur í gagnrýni á Demókrata
á samfélagsmiðlum. Meðal annars
kallað Barack Obama, fyrrverandi
forseta, n-orðinu og sagt hann mús-
lima sem þurfi að taka af lífi.
Fjórar sprengjur til viðbótar upp-
götvuðust í gær. Öldungadeildar-
þingmaðurinn Cory Booker fékk
sprengju og það gerðu James Clapp-
er, fyrrverandi yfirmaður upplýs-
ingamála, Kamala Harris öldunga-
deildarþingmaður og auðjöfurinn
Tom Steyer einnig. Áður höfðu
fundist tíu sprengjur til átta ein-
staklinga en engin hefur sprungið.
Að sögn Christophers Wray
alríkislögreglustjóra fannst fingra-
far Sayocs á einu bréfanna og leiddi
það til handtöku hans í varahluta-
verslun í borginni Plantation. Sayoc
hefur áður komist í kast við lögin,
meðal annars fyrir sprengjuhótun
og er skráður Repúblikani.
Donald Trump forseti þakkaði
alríkislögreglunni kærlega fyrir
vasklega framgöngu í málinu í
gær og kallaði í ávarpi eftir því að
Bandaríkjamenn tækju höndum
saman og reyndu að brúa bilið sem
hefur myndast á milli íhaldsmanna
og frjálslyndra.
Trump er þó enn gagnrýndur
og sagður hafa borið ábyrgð á því
hversu hatursfullt andrúmsloft
bandarískra stjórnmála er orðið.
Meðal annars með því að hafa sagt
fjölmiðla óvini fólksins.
Einnig hefur verið minnt á að for-
setinn hefur ítrekað skotið á fólkið
sem fékk sendar sprengjur. Hefur til
dæmis kallað Hillary Clinton spillta,
sagt Maxine Waters greindarskerta
og Barack Obama ekki fæddan í
Bandaríkjunum. – þea
Handtóku hinn meinta sprengjuvarg
Fjögur til viðbótar fengu
sendar sprengjur í gær.
2 7 . o k t ó B e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r6 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-E
4
4
C
2
1
3
3
-E
3
1
0
2
1
3
3
-E
1
D
4
2
1
3
3
-E
0
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K