Fréttablaðið - 27.10.2018, Page 30
konan hennar var ófrísk og með
telpuna á brjósti. „Þetta voru hlutir
sem ég þráði að gera og þrái enn,“
segir hún.
Þú framleiddir sem sagt það sem
þurfti til að verða faðir hennar, segi
ég og leyni ekki fávisku minni um
undur náttúrunnar.
„Já, já, ég á líka sautján ára son.“
Veiga segir fáa hafa vitað hvað hún
var að glíma við. „Ég var reyndar
búin að eiga tímabil þar sem ég
skilgreindi mig sem klæðskipting,
fór mikið á djammið um helgar, ég
kynntist ákveðnum hópi af fólki í því
og var búin að segja vissum vinum
það.“ Hún kveðst hafa byrjað ferlið
í Noregi, þar sem hún bjó frá 2012 til
2016. „Sálfræðingur minn þar, sem
gerir ekkert annað en að sinna fólki
í minni stöðu, segir að flestar trans-
konur þar fari í herinn til að blekkja
sig og þykjast vera eitthvað annað
en þær eru. Ég fór ekki í herinn en
ég fór á skotvopnanámskeið til að
geta farið að veiða í Noregi. Hafði
stundað veiðar mikið hér heima og
það var mín leið. Það eru til myndir
af mér með blóðugar hendur, hrein-
dýr á bakinu og étandi lifrina hráa.
Þar var ég að ofleika strákahlutverkið
og þykjast vera eitthvað annað en ég
var. Það fattaði þetta enginn, enda
var það auðvitað markmið hjá mér,“
segir Veiga.
Sálarástand Veigu var oft slæmt,
eins og hún lýsir. „Þetta tók allt
svakalega á. Ég get sagt að ég hafi
farið til helvítis og til baka. Ég var
tvívegis ansi nálægt því að stytta
mér aldur og hugsaði oft um það þar
fyrir utan. Veit ekki hversu marga
daga ég lá uppi í rúmi full angistar,
allt var ömurlegt og enginn skildi
mig. Konan var farin frá mér. Það
var erfiðast af öllu – að missa kon-
una. Ég lenti í svakalegri ástarsorg.“
Vissi hún að þú værir í röngum
líkama?
„Hún vissi að ég hafði verið að
klæða mig upp en ekki að ég væri
í röngum líkama enda var ég ekki
búin að átta mig á því sjálf. Ég eyddi
miklum tíma í að sannfæra mig um
að ég væri ekki trans. Það endaði
með því að konan mín sagði við
mig að ég yrði að sætta mig við hver
ég væri því ég yrði aldrei hamingju-
söm annars. Þannig að ég fékk
ofboðslegan stuðning frá henni og
er henni ævinlega þakklát. Það var
ekkert auðvelt fyrir hana að horfa á
manninn sinn í svona miklu þung-
lyndi – og breytast í konu.“
En þú fórst að hennar ráðum.
„Já, sálfræðingur á norska ríkis-
spítalanum, þar sem ég byrjaði ferl-
ið, var hræddur um að ég mundi sjá
eftir því að fara þessa leið og ég vissi
ekki hvernig ég ætti að segja honum
það nógu skýrt að ég væri ákveðin.
Svo ég sagði honum að ég hefði átt
konu sem ég hefði getað dáið fyrir,
nú væri hún farin.“
Enn kveðst Veiga bera sterkar til-
finningar til fyrrverandi konu sinn-
ar. „Hún er besti vinur sem ég hef
nokkurn tíma eignast og í dag get
ég alltaf leitað til hennar – og öfugt.
Ég held að við eigum báðar heiður
skilinn fyrir hvað við eigum gott
samband í dag og hvað við erum
samstiga í uppeldi dóttur okkar.“
Ólík framkoma við kynin
Kynleiðréttingarferlið byrjaði í
janúar 2014, fyrst hjá sálfræðingi,
að sögn Veigu. „Ári síðar fór ég á
hormónalyf og í nóvember 2015 í
brjóstastækkun en í stóru aðgerð-
ina í nóvember 2016. Síðan þá hef
ég farið í tvær aðgerðir, þá seinni í
desember í fyrra, þannig að það er
ekki komið ár síðan,“ lýsir hún og
segir aðgerðirnar gerðar hér á landi
af tveimur læknum, Hannesi Sigur-
jónssyni og Höllu Fróðadóttur.
En hvað fannst foreldrum hennar
um þetta allt saman?
„Þetta var auðvitað sjokk fyrir
þau, búin að ala upp og umgangast
strák í tæp 40 ár. Í dag finnst mér ég
eiga betra samband við þau en áður
og ég held að þau séu bara mjög
sátt. Ég held að þau finni að þau eigi
hamingjusamara barn.“
Það hlýtur að vera lærdómsríkt að
upplifa bæði karl- og kvenhlutverk,
er það ekki?
„Já, bara í samfélaginu. Áður var
mér aldrei boðin aðstoð á bensín-
stöð þegar ég var að athuga olíuna á
bílnum mínum í bænum, eða skipta
um ljósaperu, en það eru breyttir
tímar! En á Ísafirði get ég labbað
inn á verkstæði eins og ég er og farið
að tala um að plana hedd og slípa
ventla, þeir þekkja mig, gaurarnir
þar, og vita um minn bakgrunn.
Það eru bæði kostir og gallar við
að búa í litlu samfélagi. Mér finnst
samfélagið á Ísafirði ofboðslega gott.
Ég get ekki sagt að ég hafi upplifað
nokkra fordóma.“
Ertu ekki líka á góðum tíma? Það
er dálítið búið að ryðja brautina.
„Jú, jú, það vita margir af þessu en
flestir sem ég ræði við um ferlið eru
samt að tala við manneskju um slíkt
í fyrsta skipti. Þeir hafa ekki kynnst
því í nærumhverfinu.“
Tungumálið okkar er erfitt trans-
fólki, eins og Veiga lýsir. „Það er allt
kyngreint í íslenskunni, blessuð –
blessaður – hann – hún, þreyttur
– þreytt, svangur – svöng. Fólk
sem er búið að þekkja mig alla ævi
segir stundum „blessaður“. Það er
bara vaninn. Ef karlmaður segir
„blessaður“ segi ég bara „sæl og
blessuð!“. Þá kveikir hann á per-
unni og við hlæjum. Það hjálpar
að hafa húmor. Ég læt ekkert svona
skemma fyrir mér daginn og geri
mikið grín að sjálfri mér. Svona
mánuði eftir aðgerðina þurfti ég
að pissa og fór á klósettið, var eitt-
hvað utan við mig, lyfti upp setunni
og ætlaði að fara að pissa standandi
en greip í tómt! Var búinn að gera
þetta í tæp fjörutíu ár. Vaninn kikk-
aði inn en þetta gerist ekki lengur.
Það er kominn nýr vani. En maður
getur ekki búist við að aðrir venjist
öllu strax.“
Verður þú ástfangin af strákum
núna?
„Nei, konum. Það breytist ekk-
ert hverjum þú hrífst af við svona
ferli. Kynvitund og kynhneigð er
ekki að það sama. Fólk fæðist gagn-
kynhneigt, samkynhneigt, tvíkyn-
hneigt, alla vega og transfólk getur
verið hvort sem er samkynhneigt
eða gagnkynhneigt, nú eða tvíkyn-
hneigt. Þetta er flókinn heimur.“
Finnst þér þú falla inn í kvenna-
hópa eða leitar transfólk í félags-
skap hvert annars?
„Ég á nokkrar transvinkonur hér
í Reykjavík en umgengst alls konar
fólk af öllum kynjum og hef aldr-
ei átt eins margar stelpuvinkonur
og núna. Ég lít á mig sem eina af
stelpunum, sem ég er. Ein vinkona
mín sem var í einhverju basli með
manninn sinn spurði mig: „Nú ert
þú búin að vera karl, hvernig hugsa
karlar?“ Setti upp eitthvert ákveðið
dæmi um aðstæður sem hún hafði
lent í gagnvart manni. Ég sagði
henni mína skoðun og þá kom til
baka: „Oh, þú ert svo mikil kerling,“
sem ég auðvitað er, þannig að hún
græddi ekkert á mér.“
Ein með selum og fuglum
Veiga er nýkomin frá Bretlandi þar
sem hún var á kajaknámskeiði til að
öðlast réttindi sem leiðsögumaður.
„Ég ætla að leggja það fyrir mig sem
framtíðarvinnu að vera leiðsögu-
maður á kajak en í vetur verð ég í
fyrirtækinu Skaginn 3X stál, það
framleiðir ýmiss konar búnað fyrir
fiskvinnslu og togara. Verð bara að
sjóða og smíða, það kann ég,“ segir
Veiga sem hefur unnið við renni-
smíði í 20 ár.
Um skeið kveðst Veiga hafa unnið
á elliheimili í Noregi og líkað vel. „Ég
prufaði líka, þegar ég lifði sem karl-
maður, að læra förðun og vann við
það á tímabili í aukavinnu, í Make
Up Store, meðal annars. Eins prjóna
ég, hjóla og skíða á veturna og ræ
kajak allt árið, það jafnast á við góða
hugleiðslu þar sem ég er kannski
ein með selum, fuglum og stundum
hvölum.“ Hún sýnir mér myndir af
hvalavöðu sem hún reri innan um út
af Ströndunum í sumar. „Þetta voru
30 til 40 stykki. Sá sem kom næst
mér var svona hálfan metra frá mér
og einn fór undir bátinn.“
Ertu aldrei hrædd?
„Nei, ekki get ég sagt það, þó hefur
alveg farið um mig en þá þýðir ekk-
ert annað en að halda áfram að æfa,
það er það sem líf mitt snýst um
þessa dagana.“
Líf Veigu snýst aðallega um að æfa sig á kajak þessa dagana og hún ætlar að nýta veturinn vel. Mynd/Pétur HiLMarsson
Ég hef aldrei átt eins
lítið og þÉnað eins lítið
en aldrei verið eins
hamingjusöm.
BARCELONA REAL MADRID
vs
KAUPTU STAKAN LEIK:
Tryggðu þér
áskrift á
stod2.is
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-D
5
7
C
2
1
3
3
-D
4
4
0
2
1
3
3
-D
3
0
4
2
1
3
3
-D
1
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K