Fréttablaðið - 27.10.2018, Qupperneq 32
S ilja Hauksdóttir leikstjóri tekur um þessar mundir upp kvikmyndina Hey hó Agnes Cho á Akranesi. Kvikmyndin er grátbrosleg þroskasaga mæðgna.
Handrit kvikmyndarinnar skrif-
ar Silja ásamt Jóhönnu Friðriku
Sæmundsdóttur og Rannveigu Jóns-
dóttur sem alltaf er kölluð Gagga.
Tökur hafa farið fram víðs vegar
um Akranes frá því í síðustu viku og
munu standa yfir til 9. nóvember.
„Við stefnum á að frumsýna mynd-
ina næsta haust,“ segir Silja um gang
framleiðslunnar.
Með aðalhlutverk í kvikmyndinni
fara Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Þorsteinn Bachmann og Björn
Hlynur Haraldsson. Þá fara með
hlutverk í myndinni Donna Cruz og
Anna Kristín Arngrímsdóttir.
Jóhanna Friðrika útskrifaðist sem
leikari árið 2005 frá Lista háskóla
Íslands og hefur starfað við leik-
stjórn og leiklist, bæði á sviði og í
sjónvarpi. Hún bætti við sig meist-
aranámi í ritlist við Háskóla Íslands
árið 2016.
Silja er reynslumikill leikstjóri
og handritshöfundur, landsmenn
þekkja vel til verka hennar. Fyrsta
kvikmynd hennar, Dís, var í fullri
lengd. Þá stýrði hún sjónvarps-
þáttaröðinni Ástríður, Stelpunum,
Áramótaskaupum og Ríkinu, svo
eitthvað sé nefnt.
Gagga er sjálfstætt starfandi kvik-
myndagerðarkona og hefur starfað
við kvikmyndagerð í tvo áratugi,
sem framleiðandi kvikmynda,
sjónvarpsþátta og auglýsinga, en
nýverið einnig við handritaskrif og
leikstjórn.
Hvernig kviknaði þessi hugmynd?
Að skrifa þroskasögu mæðgna?
Gagga: Hugmyndin er upphaf-
lega frá Mikael Torfasyni. Hann
sendi Silju uppkast að handriti að
kvikmynd þar sem aðalsöguhetjan
var ættleidd og bjó ásamt fjöl-
skyldu sinni á Akranesi. Það sem
okkur fannst strax spennandi var
að þarna var ein aðalsöguhetjan
stúlka, útlitslega af erlendum upp-
runa. Við tók svo vinna við að finna
okkar eigin tón í sögunni, við rifum
allt í sundur og fórum að leita að
sögunni sem okkur langaði að segja.
Það tók töluverðan tíma, mikið röfl
og pælingar við hin ýmsu eldhús-
borð. Við leigðum skrifstofur víðs
vegar um bæinn. Við Silja eignuð-
umst líka hvor sína dótturina á
meðan á ferlinu stóð, það er hálft
ár á milli þeirra. Jósa kom svo inn
í samstarfið eins og stormsveipur
og í meðförum okkar þriggja varð
okkar saga, handritið að myndinni,
til. Þroskasaga mæðgna á Akranesi.
Silja: Við kveiktum svo mikið á
mömmunni. Móðirin varð að vera
aðalpersónan. Og það gerðist ein-
hvern veginn organískt. Við fundum
fljótt að þar var mikill efniviður. Nú
erum við allar að færast á þennan
aldur sjálfar. Efnið stóð okkur nærri.
Við kveiktum svo mikið á mömm-
unni. Þegar við leituðum eftir til-
vísunum komumst við að því að
það eru ekki til margar kvikmyndir
sem skarta fimmtugri konu í aðal-
hlutverki, sem okkur þykir miður,
því þetta er svo ótrúlega spennandi
aldur og þroskaskeið.
Hvernig þekkist þið? Hafið þið
allar unnið saman áður?
Silja: Ég og Gagga kynntumst við
tökur á Kvikmyndinni Draumadísir.
Og við höfum verið vinkonur síðan
þá.
Gagga: Kvikmyndagerð er fjöl-
skyldubransinn. Það var kennara-
verkfall og ég var send á sett hjá
einni frænku til að hella upp á og
smyrja lokur. Amma stjórnaði því
af einskærri umhyggjusemi. Hún gat
ekki hugsað sér að ég væri aðgerða-
laus, það myndi enda illa. Ég hellti
því upp á afar vont kaffi og bar fram
gamalt rækjusalat og sumir fengu
illt í magann.
Silja: Ég var nítján ára. Mér fannst
Gagga vera skemmtileg lítil stúlka
sem gaman væri að fylgjast með í
framtíðinni. Það voru heil tvö ár á
milli okkar.
Þarna varstu leikkona, vildir þú
þá verða leikstjóri?
Silja: Ég var þá ekki komin í
nokkrar pælingar um hvað ég
ætlaði að verða. Það var röð
af tilviljunum sem réð því að
ég fékk hlutverk í þessari kvik-
mynd. En þarna fékk ég skýra
innsýn í kvikmyndagerð. Beint í
æð og mjög óvænt.
Jóhanna: Ég kynnist þeim
báðum í kringum handritaskrifin.
Við höfum hins vegar lengi vitað
hver af annarri. Ég hef ekki mikið
verið í heimi kvikmyndagerðar. Ég
hef mest verið í hlutverki leikkonu
og að elda mat.
Og hvernig líkar þér?
Jóhanna: Ég kem inn í þennan
heim í gegnum skrifin. Það er ofsa-
lega skemmtilegt. Mér líður svolítið
eins og ég hafi bankað upp á bak-
dyramegin. Það er góð leið inn í
þennan iðnað.
Tókuð þið ykkar eigin sambönd
við mæður ykkar í handritaskrifin?
Jóhanna: Ég held að það sé nán-
ast ómögulegt að skrifa án þess að
nýta eitthvað af eigin reynsluheimi.
Að því sögðu er þessi mynd samt
alls ekki um samband okkar við
mæður okkar. Mæðgnasambönd
eru oft og tíðum tilfinningalega
flókin og þar af leiðandi agalega
spennandi viðfangsefni.
Gagga: Myndin fjallar mikið um
samskipti. Ekki bara mæðgna. Líka
hjóna og vina. Doðann í hversdeg-
inum og vanann. Óheilbrigð sam-
skipti sem erfast. Umhyggjusemi
sem verður að sjúklegri afskipta-
semi. Stjórnlausa stjórnsemi sem
eyðileggjandi afl. Okkar kona á
erfitt með að sleppa tökunum. Hún
er svo hrædd við að missa stjórnina.
Og hvað gerist þá?
Við erum alltaf í einhverjum
stellingum út á við, Langar alltaf að
vera einhvers staðar annars staðar
og erum alltaf að hugsa um næsta
áfanga sem á að breyta öllu.
Silja: Stjórnsemi er svo flókin í
foreldrasamböndum, þegar rótin
er ást og umhyggja sem afvegaleið-
ist og verður jafnvel takmarkandi.
En hún er líka svo skiljanleg, þótt
hún geti sannarlega verið alveg
óþolandi.
Gagga: Mömmur þurfa svo oft
að vera leiðinlegar, maður heyrir í
sjálfri sér eins og ókunnugri rödd að
handan. Mig langar oft að segja við
eldri dóttur mína: Ég er ekki svona
hræðilega leiðinleg, ég er mjög
skemmtileg, í alvöru.
Silja: Sambönd stelpna við
mæður sínar hafa miklu oftar
verið rædd í mín eyru en sambönd
þeirra við feður sína og mögulega
fá mömmurnar minni afslátt frá
dætrum sínum en feðurnir. Það er
þessi sterka nánd og þessar kröfur.
Mæður óttast fyrir hönd dætra
sinna. Þær eyða mikilli orku í að
koma í veg fyrir að dætur þeirra
þurfi að reka sig á sömu veggi
og þær sjálfar eða lenda í sömu
ógnum og hafa orðið á vegi þeirra.
Og það er dáldið vanþakklátt verk
og ansi mikil vinna og kannski
alveg vonlaust bara.
Mömmur þurfa oft
að vera leiðinlegar
Silja Hauksdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Rannveig
Jónsdóttir ræða efni nýrrar kvikmyndar sem ber vinnutitilinn
Hey hó Agnes Cho og er í tökum þessa dagana á Akranesi.
Rannveig Jónsdóttir, sem alltaf er kölluð Gagga, Jóhanna Friðrika og Silja við tökur á Akranesi í vikunni. FRéttAblAðið/ERniR
í aðalhlutverkum eru Katla Margrét
Þorgeirsdóttir og Þorsteinn bachmann.
Ítarlegra viðtal og myndir frá
tökum á +Plús síðu Frétta-
blaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PlúS
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
3
-C
1
B
C
2
1
3
3
-C
0
8
0
2
1
3
3
-B
F
4
4
2
1
3
3
-B
E
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K