Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 40
Skagfirski kammerkórinn frumflutti efnisskrána Í takt við tímann í Miðgarði á sunnudaginn var við gríðargóðar undirtektir. MYND/GuðNý AxelSDóttir
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Svanhildur Páls-
dóttir, formaður
Kammerkórs
Skagafjarðar,
og Helga rós
ingólfsdóttir,
kórstjóri og ein-
söngvari.
Mitt fólk í skagfirska kammerkórnum hafði lengi dreymt um að takast
á við krefjandi verk og við fengum
ábendingu frá Guðmundi Óla
Gunnarssyni, hljómsveitarstjóra
Sinfóníettu Vesturlands, um verk
eftir John Rutter,“ segir Helga Rós.
„John Rutter er núlifandi tónskáld
sem útsetur kórverk sín bæði fyrir
litla og stóra hljómsveit sem þýðir
að það er auðveldara fyrir minni
kóra að flytja verkin hans. Ég fór
að hlusta á verk eftir hann og meta
hvað væri fallegt að taka og þetta
verk, Magnificat, varð fyrir valinu.“
Magnificat er marglaga verk sem
frumflutt var 1990. „Þetta er gleði
óður til Maríu Guðsmóður og Rutt
er sækir innblástur til suðrænna
landa enda segir hann Magnificat
vera fullt af fögnuði, þar sem sólin
skíni frá upphafi til enda. Okkur
fannst verkið því eiga vel við á 100
ára afmæli fullveldis Íslands, í landi
þar sem sólin gengur aldrei undir
á sumrin og vetur eru oft langir
og dimmir en ekki síður þar sem
erlendir straumar hafa haft mikil
áhrif á mótun samfélagsins og á
tónlistarlífið síðustu hundrað árin,“
segir Helga og bætir við: „Við vild
um sýna hvað áhugamanna kórar
eru að fást við í dag á hundrað ára
afmæli fullveldisins. Fyrstu kórar
voru stofnaðir í kringum 1920 og
okkur langaði ekki bara að flytja
gamla tónlist heldur taka eitthvað
svolítið stórt og metnaðarfullt.
Við köllum tónleikana Í takt við
tímann sem okkur finnst réttnefni.“
Á tónleikunum verður íslenska ein
söngslaginu einnig gert hátt undir
höfði. „Við förum vítt og breitt,
með aðeins skagfirska áherslu,
erum með lög eftir Eyþór Stefáns
son og Pétur Sigurðsson í mjög
skemmtilegum útsetningum þar
sem píanóundirleikurinn er færður
út í hljóðfærin, forspil lengd og svo
framvegis og má segja að við séum
að setja þetta í hátíðarbúning með
útsetningum Guðmundar Óla sem
margar hverjar komu skemmtilega
á óvart.“ Skagfirski kammerkórinn
stendur fyrir viðburðinum en hefur
fengið til samstarfs við sig hljóm
sveitarstjórann Guðmund Óla
Gunnarsson, Sinfóníettu Vestur
lands, Kammerkór Norðurlands og
Kalman listfélag á Akranesi.“
„Við erum í kringum sextíu í allt
og það er mjög gott hljóð í öllum
ef svo má að orði komast, mjög
gefandi og skemmtilegt samstarf,“
segir Helga Rós og nefnir sérstak
lega hlut formanns Kammerkórs
Skagafjarðar, Svanhildar Pálsdótt
ur, sem hefur verið framkvæmda
stjóri viðburðarins. „Allir hafa lagt
hönd á plóg og við erum loksins að
sjá árangur erfiðisins. Við héldum
eina tónleika á sunnudaginn
fyrir fullu húsi en svo erum við að
koma suður yfir, verðum í Bíó
höllinni á Akranesi klukkan fjögur
á laugardaginn og í Langholts
kirkju í Reykjavík klukkan fjögur á
sunnudag.“
Hún segir tilfinninguna við frum
flutninginn hafa verið magnaða.
„Við erum búin að vera að æfa allan
síðasta vetur, það starfsár fór meira
og minna í það. Það var dásamleg
upplifun fyrir mig að hugsa til
fyrstu æfingarinnar, sitja þarna og
hlusta á þetta verða að veruleika
þegar allt small saman.“
Miða á tónleikana er hægt að fá
á midi.is.
Metnaðarfullt Magnificat
skagfirska kammerkórsins
Skagfirski kamm-
erkórinn ræðst í
stórverkefni í til-
efni afmælis full-
veldis á Íslandi en
kórastarf er mikil-
vægur hluti af
sögu fullveldisins
og á sér nokkurn-
veginn jafnlanga
sögu. Helga Rós
Indriðadóttir
sópransöngkona
er stjórnandi
kórsins.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
20% afsláttur
af öllum vörum
í dag, laugardag
4 KYNNiNGArBlAð FólK 2 7 . o K tó B e r 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
4
-2
E
5
C
2
1
3
4
-2
D
2
0
2
1
3
4
-2
B
E
4
2
1
3
4
-2
A
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K