Fréttablaðið - 27.10.2018, Síða 78
Nú þegar er búið að
bóka allar helgar
fram í mars og maí er
þéttbókaður líka.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Ég er búinn að segja þessa sögu svo rosalega oft,“ segir Haukur og kímir þegar hann
er spurður um hvernig Græni
hatturinn varð til. „Í stuttu máli
sagt þá byrjaði Græni hatturinn
sem ballstaður en samkeppnin á
þeim tíma var nokkuð mikil svo
ég fékk þá fáránlegu hugmynd að
einbeita mér að því að vera bara
með tónleika. Svo í staðinn fyrir að
vera að fá fólk inn eftir miðnætti á
dansleik ákveð ég að prófa að hafa
tónleika sem byrja klukka átta eða
tíu á kvöldin og gekk náttúrlega
alveg fáránlega til að byrja með.“
Fyrstu tónleikarnir voru með
Jóni Ólafssyni einum árið 2005
og síðan hefur Græni hatturinn
blómstrað og þar er alls konar
tónlist flutt, allt frá sönglögum yfir
í þyngsta rokk. Græni hatturinn er
að flestra sögn einn besti tónleika
staður landsins í dag. „Það var til
dæmis hljómsveit frá New York að
spila hér á fimmtudagskvöldið,“
segir Haukur. „Þegar ég spurði
hvernig þeim hefði dottið í hug að
koma hingað sögðu þeir að þeir
hefðu flett upp á TripAdvisor og
fleiri stöðum og þar hefði Græni
hatturinn alls staðar skorað hæst
sem besti tónleikastaður á Íslandi.“
Og sá vinsælasti líka en nú þegar
er búið að bóka allar helgar fram í
mars og maí er þéttbókaður líka.
Meðal þeirra sem koma fram á
Græna hattinum á næstunni eru
Stjórnin, Jólagrautur Baggalúts
sem er skemmtun Hjálma, Bagga
lúts og Memfismafíunnar, Jónas
Sig, Moses Hightower, Dúkkulís
urnar, Lay Low, Ljótu hálfvitarnir
og svo mætti lengi telja. Haukur
segir að viðskiptavinahópurinn sé
mjög fjölbreyttur. „Þetta er allt frá
fólki sem rétt sleppur inn vegna
aldurs og yfir í ellilífeyrisþega. Og
fólk er ekkert alltaf að velta fyrir
sér hvað er á dagskránni, langar
bara á tónleika á Græna hattinum.
Eitt fyrirtæki keypti til dæmis 25
Haukur á Græna hattinum í kvöld
Það eru tónleikar á Græna hattinum í kvöld. Haukur Tryggvason, veitingamaður og tónleikahald-
ari, verður á staðnum eins og undanfarin sextán ár, að undanskildum tveimur helgum í sumar.
Haukur Tryggva-
son hefur staðið
vaktina á Græna
hattinum í sex-
tán ár og verður
að sjálfsögðu að
störfum í kvöld.
MYND/SkapTi
HallGríMSSoN
miða á tónleikana í gær án þess að
hafa nokkra hugmynd um hverjir
væru að spila. Og þau spurðu ekki
einu sinni.“
Haukur hefur staðið vaktina í
sextán ár. „Ég er alltaf að vinna
þegar opið er,“ segir hann og
bætir við: „Ég tók mér sumarfrí í
fyrsta sinn á þessum sextán árum í
sumar, var frá í tvær helgar. Það var
dálítið skrýtið, en líka bara fínt.“
Aðspurður hvaða hljómsveitir
honum finnst skemmtilegast að
fá svarar hann: „Ég er kominn í þá
stöðu að geta valið úr og allt sem
ég bóka núna er eitthvað sem mér
finnst skemmtilegt.“
Græni hatturinn hefur staðið
óbreyttur öll þessi ár. „Ég hef eigin
lega ekki breytt staðnum neitt
nema að sviðið hefur stækkað og
græjunum fjölgað. Ég á allar græjur
sem notaðar eru svo það er auðvelt
fyrir stórar hljómsveitir að koma,
þurfa bara að mæta með gítarinn
undir hendinni.“
Fjöldi tónleika á Græna hatt
inum nálgast sextán hundruð og í
kvöld bætist í þann hóp. „Í kvöld
verða það Meistarar dauðans sem
stíga á svið, mjög ung hljómsveit
sem spilar rokk og þungarokk.
Trommarinn er bara fjórtán ára
svo þeir koma í fylgd með full
orðnum.“
Og þá vitum við það: Meistarar
dauðans eru á Græna hattinum í
kvöld og Haukur auðvitað líka.
Hrísey, sem oft er kölluð perla Eyjafjarðar, er önnur stærsta eyja landsins á eftir
Heimaey og vinsæll viðkomustað
ur ferðamanna yfir sumartímann.
Eyjan er þó ekki síður skemmtileg
yfir vetrartímann þegar snjórinn
hylur hana og notalegt myrkrið
tekur við af miðnætursólinni segir
Linda María Ásgeirsdóttir, for
maður Ferðamálafélags Hríseyjar.
„Yfir vetrartímann tekur við annars
konar afþreying hér í Hrísey sem er
vel sótt af íbúum og ferðamönnum.
Ferðamálafélag Hríseyjar hefur t.d.
frá árinu 2008 boðið upp á grjóna
graut og slátur fyrsta laugardag í
mánuði yfir veturinn. Þetta er mjög
vinsæll viðburður og fjölsóttur.“
Margt í boði
Sundlaug eyjunnar er alltaf jafn
vinsæl enda frábær sundlaug segir
Linda María og er opin allt árið.
„Síðan má nefna að gamli skólinn
í Hrísey hýsir nú vinnustofur lista
manna og þar dvelja listamenn
hvaðanæva úr heiminum allt árið.
Sú hefð hefur myndast að lista
menn halda sýningu á afrakstri
dvalarinnar áður en þeir fara
héðan þannig að við erum með
skemmtilegar sýningar allt árið um
kring. Fyrr í vikunni hélt t.d. lista
maður októbermánaðar, Amanda
Maciel Antunes frá Brasilíu,
sýningu og gjörning í Sæborg sem
er gamla félagsheimilið í Hrísey.“
Þessa helgi verður rithöfundurinn
Hallgrímur Helgason með upp
lestur úr nýju bókinni sinni í Ver
búðinni 66 en hann á hús í Hrísey
og dvelur þar í fríum og í vinnu
törnum að sögn Lindu Maríu.
„Fram undan í eyjunni eru síðan
jólahlaðborð, konukvöld, karla
kvöld, kótelettukvöld og árleg og
ómissandi Þorláksmessuskata en
þessir viðburðir verða haldnir í
Verbúðinni 66 sem er veitingahús
í eyjunni sem var opnað snemma
árs 2016 og er opið um helgar yfir
veturinn. Það má því sannarlega
segja að við njótum lífsins fjarri
stressi og umferð.“
Náttúran breytist
Eðlilega fer allt í vetrargírinn
í svona fámennu samfélagi
yfir háveturinn og opnunar
tíminn styttist víða. „Hús Hákarla
Jörundar og Holt – hús Öldu Hall
dórsdóttur eru opin þegar þess er
óskað, verslunin í Hrísey er opin
alla daga nema sunnudaga og
veitingastaðir eru opnir um helgar.
Opnunartíminn styttist líka víða,
eins og t.d. í sundlauginni.“
Náttúran breytir líka um svip yfir
veturinn og verður dásamleg með
sínum norðurljósum, kyrrð og
orku segir Linda María. „Ýmsar
gönguleiðir eru í boði um eyjuna
og er frábært að ganga á meðan
fært er. Mikið er um rjúpu hér
en hún er mjög gæf og hópast í
garðana þar sem hún fær að éta.
Einnig er gott að ganga á göngu
skíðum um eyjuna og frábært að
fara að vitanum og sjá yfir allan
fjörðinn. Síðastliðinn mánuð hefur
líka verið hægt að sjá fullt af hval
austan megin á eyjunni. Þá hefur
hreinlega verið hægt að setjast
á næsta stein og upplifa ókeypis
hvalaskoðun. Því er óhætt að segja
að Hrísey bjóði upp á fjölbreytta
skemmtun við allra hæfi.“
Hægt er að kynna sér Hrísey og
hvað er í boði þar á vef Ferðamála
félags Hríseyjar (hrisey.is) og á
Facebooksíðu Ferðamálafélagsins.
Hríseyjarferjan Sævar gengur eins
allt árið eða 79 ferðir á dag.
perlan er falleg yfir veturinn
Hrísey er skemmtileg heim að sækja yfir veturinn. Eyjan býður upp á fallegar gönguleiðir, vinsæla
sundlaug og söfnin eru opin sé þess óskað. Veitingahúsin bjóða upp á fjölbreytta dagskrá.
linda María Ásgeirsdóttir, formaður
Ferðamálafélags Hríseyjar.
Hrísey skartar sínu fegursta yfir vetrartímann og þá er dásamlegt að heimsækja eyjuna. MYND/FErÐaMÁlaFÉlaG HríSEYJar
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
6 kYNNiNGarBlaÐ 2 7 . o k Tó B E r 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RNorÐurlaND
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
4
-1
A
9
C
2
1
3
4
-1
9
6
0
2
1
3
4
-1
8
2
4
2
1
3
4
-1
6
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K