Fréttablaðið - 27.10.2018, Page 86
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Örn Ingimundarson
lést þann 21. október
á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
Mosfellsbæ.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 30. október kl. 15.00.
Lóa Ólafsdóttir Sigurður Rúnar Magnússon
Karólína Ólafsdóttir Guðbrandur Einarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Eiríkur Briem
hagfræðingur,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
föstudaginn 12. október síðastliðinn.
Útför hans verður gerð frá Áskirkju
þann 29. október nk. klukkan 13.
Guðrún Ragnarsdóttir Briem
Maj-Britt Hjördís Briem Einar Þorvaldur Eyjólfsson
Eiríkur Briem Hanna Kristín Briem Pétursdóttir
Katrín Briem Þorvaldur Ólafsson
og barnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Okkar kæra
Arndís Markúsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
laugardaginn 20. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju,
miðvikudaginn 31. október klukkan 13.00.
Kristjana E. Kristjánsdóttir Ingi Gunnar Ingason
Sesselja H. Kristjánsdóttir
Reynir Markússon Steinunn B. Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ásgeir Ásgeirsson
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut 23. október. Útför hans fer
fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
1. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjartavernd.
Hjördís Bergþórsdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
Ásgeir Viðar Ásgeirsson Úlfhildur Hilmarsdóttir
Andri Viðar Haraldsson, Erna Sólrún Haraldsdóttir
Við erum á lokametrunum að gera og græja,“ segir Böðvar Pétursson, bóndi í Baldurs-heimi í Mývatnssveit og starfsmaður Landsvirkjun-
ar, þegar forvitnast er um undirbúning
Slægjufundarins 2018. Það er samkoma
sem haldin er í Skjólgarði í dag, hefst
14.30 og stendur í tvo til þrjá tíma. Svo
er ball í kvöld.
Um árlega samkomu Mývetninga er að
ræða sem á sér langa sögu. Fyrstu áratug-
ina eftir að Skjólbrekka var tekin í notkun
og jeppaöldin var gengin í garð voru
gullár þessara skemmtana, samkvæmt
heimildum. „Slægjuræðan“ – aðalræða
dagsins var lengi nokkurs konar annáll
árferðis og uppskeru og viðburðum sam-
félagsins var fléttað inn í hana.
En þýðir það að bændur hafi staðið
við slátt fram í október að hátíðin skuli
kennd við heyskap en ekki réttir og önnur
haustverk?
„Nei, ég held það tengist því nú ekki
beint. Fólk var bara að gera sér dagamun
á skilum sumars og veturs, fagna upp-
skeru af öllu tagi og hressa sig fyrir vet-
urinn,“ svarar Böðvar sem segir aðeins
misjafnt milli ára hversu margir mæti.
„Það er opið hús og þeir sveitungar
koma sem hafa lausa stund og áhuga.
Þarna er fólk á öllum aldri, frá eins árs
og yfir nírætt. Reyndar verður að viður-
kennast að karlpeningurinn hefur ekki
verið eins duglegur að mæta og kven-
þjóðin. Karlarnir þykjast sumir hverjir
þurfa að nota daginn til að skjóta rjúpu
eða fara í eftirleitir,“ segir Böðvar. „Það
hallar á þá varðandi mætingu, þar gætu
þeir staðið sig betur.“
Síðan Böðvar man eftir sér hefur verið
kaffihlaðborð á samkomunni og svo hin
ýmsu skemmtiatriði.
En hver verður með slægjuræðuna í
dag?
„Það verður Ásta Kristín Benedikts-
dóttir bókmenntafræðingur, hún er
búsett í Reykjavík en er frá Arnarvatni.
Ólst þar upp.“
Böðvar segir að ýmist íbúar í sveitinni
eða brottfluttir haldi hina árlegu ræðu,
brottfluttir komi oft með aðeins annan
vinkil.
Skyldu þeir þá rifja upp eitthvað gam-
alt?
„Ekkert endilega. Við gáfum Ástu Krist-
ínu algerlega frjálsar hendur með það um
hvað ræðan snerist, það skiptir meira
máli að hún sé skemmtileg og góð!“
Mývetningar eru þekktir fyrir að vera
söngelskir og Böðvar segir þá alveg pott-
þétt taka lagið í dag. „Það er löng hefð
fyrir því að allir standi upp og syngi
saman á slægjufundinum. Við tökum
örugglega nokkrar tarnir í því.“
Svo er það hljómsveitin Lúxus frá
Húsavík sem leikur fyrir dansi á ballinu
í kvöld, að sögn Böðvars. „Lúxus er sveit
sem var ráðin í fyrra en mætti ekki öll
því einn spilari datt úr skaftinu og annar
flúði til útlanda. Nú ákváðum við að gefa
henni annan séns og eigum von á góðu
stuði.“ gun@frettabladid.is
Fagna uppskeru af öllu tagi
Slægjufundur hefur verið árlegur viðburður í Mývatnssveit fyrsta vetrardag um margra
áratuga skeið. Þeirri hefð verður viðhaldið í dag. Böðvar Pétusson er prímus mótor.
Það er hefð fyrir almennum söng í Mývatnssveit og frá þeirri hefð verður ekki vikið í dag, að sögn Böðvars. Mynd/Hrefna
Skjólbrekka er staðurinn þar sem
Slægjufundurinn er ávallt haldinn.
Mynd/ÞorSteinn GunnarSSon
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
2
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
3
-E
E
2
C
2
1
3
3
-E
C
F
0
2
1
3
3
-E
B
B
4
2
1
3
3
-E
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K