Breiðfirðingur - 01.04.1943, Page 14
12
BREIÐFIRÐINGUR
sexæringar og 1 áttæringur. Átta þessara skipa vorn úr
Flatey, hin aðkomuskip. í bókinni er og skrá yfir 27
verbúðir í Skerinu. Eru þær flestar kenndar við eig-
endur sína (búð Ólafs í Múla, búð Þorláks á Kirkju-
bóli o. s. frv.), eða bæinn sem þær eru frá (Fjarðarbúð,
væntanlega frá Firði á Skálmarnesi, búð frá Miðhúsum
o. s. frv.) og sést af þeim nöfnum, að bændur víða i
innsveitum Breiðafjarðar, innan úr Geiradal og út á
Hjarðarnes, bafa átt búðir i Oddbjarnarskeri og vafa-
laust hefur margt manna úr þessum sveitum sótt þang-
að út á vertíðum. Nokkrar búðir höfðu annars konar
nöfn, Sokka, Norðursetur tvær, Hrafnastallur, Neðra-Víti,
og það sýnir bve jafnvel slík nöfn geta verið lífseig,
að enn hétu búðir í Oddbjarnarskeri Norðurseta og
Hrafnastallur um 1870 (sbr. grein Péturs Jónssonar frá
Stökkum í Barðstrendingabók bls. 131). Allt bendir til
þess, að fiskveiðarnar liafi staðið með miklum blóma í
Eyjunum um þessar mundir, og átt drjúgan, máske
drýgstan, þáttinn um afkomu lireppsbúa.
Eyjarnar hafa þá, eins og bæði fyrr og siðar, verið gagn-
auðugar af ýmis konar hlunnindum. Þar hefur mörg
matarholan verið og þaðan hefur margs konar liagræði
dropið í bú þeirra Eyjamanna. Sá ljóður er á jarðabók
þeirra Árna og Páls, að þar er jafnan reynt að gera sem
j^iest úr öllum ókostum jarðanna og sem minnst úr hlunn-
mdum þeirra og gæðum, og því mjög lialdið á lofti, liversu
kostir jarðanna fari þverrandi og' þær gangi úr sér. Verð-
ur úr þessu hlægileg smámunasemi á sumum stöðum.
Er augljóst, að forfeður vorir fyrir hálfri þriðju öld hafa
kunnað vel þá list að berja sér, en á bak við allan þenn-
an barlóm liefur sá tilgangur legið, bæði bjá nefndar-
mönnunum og bændunum, sem lýstu jörðunum fyrir
þeim, að fá dýrleika jarðanna færðan niður i hinu nýja
mati, en því liefði fylgt lækkun bæði á sköttum og lands-
skuldum. í lýsingunum á eyjunum í Flateyjarbreppi ér
getið um margs konar hlunnindi, selveiði, eggjatekju,