Fréttablaðið - 03.11.2018, Side 34
H ljómsveitin Al-Namrood hefur verið virk í rúman áratug. Hún hefur hins vegar aldrei spilað á tónleikum
og er ekki í neinu sambandi við
aðdáendur sína í heimalandinu,
Sádi-Arabíu. Hljómsveitarmeðlimir
hafa aldrei komið fram undir nafni
og engar myndir af hljóm-
sveitinni er að finna á netinu.
Ástæðan er einföld. Hljóm-
sveitin spilar svartmálm (e.
black metal) og með textunum
lýsa þremenningarnir andúð
sinni á þjóðartrúnni íslam. Við
þessu er dauðarefsing.
Fréttablaðið setti sig í sam-
band við manninn sem kallar
sig Mephisto, stofnmeðlim,
hljómsveitarinnar. Að hans
sögn er vonlaust að staðan
breytist á meðan Mohammed
bin Salman er krónprins.
Tjá myrkustu hugsanir
Svartmálmur er hvergi megin-
straumstónlist og hefur helst
ratað á síður blaðanna í tengslum
við kirkjubrennur og ofbeldisglæpi
tónlistarmanna í Noregi. Mephisto
segir að sögu hljómsveitarinnar
megi rekja til þess að þrír arabískir
drengir, í trúaðasta og kúgaðasta
samfélagi jarðar, hafi áttað sig á því
að „trúarbrögð séu ekkert annað en
sviksemi“. Þau efli óréttlátt kerfi og
því hafi drengirnir valið þessa tón-
list sem vettvang til að „tjá sínar
myrkustu hugsanir“.
Saga tónlistarstefnunnar mark-
ast að miklu leyti af andstöðu við
trúarbrögð, einna helst kristni. Á
þetta bendir Mephisto og segir
svartmálm því henta boðskapnum
vel. Innblásturinn kemur, að sögn
Meph istos, frá hljómsveitum á borð
við Darkthrone og Bathory en þjóð-
legri arabískri tónlist er blandað við
hinn hefðbundna svartmálmshljóm.
Í lífshættu
Þótt blátt bann sé í Sádi-Arabíu
við tónlistinni halda meðlimir Al-
Namrood ótrauðir áfram. „Allt sem
stangast á við sjaríalög er ólöglegt í
Sádi-Arabíu. Það er afar auðvelt að
brjóta þessi lög þar sem það sem
telst saklaust í eðlilegum heimi telst
hér saknæmt. Vegna þess ákváðum
við hreinlega að gera bara það sem
við viljum. Við yrðum fordæmdir
sama hvað. Ef ekki vegna tónlist-
arinnar þá vegna þess hvernig við
hugsum. En við þurftum líka að fá
útrás. Að reyna að tala máli hinna
kúguðu og vekja athygli á þeim sem
hafa þorað að brjótast úr hlekkjum
heilaþvottarins.“
En telja hljómsveitarmeðlimir sig
í hættu, í ljósi þess að dauðarefsing
er við broti þeirra?
„Já, að hluta til vegna tónlist-
arinnar sjálfrar en einnig vegna
afstöðu okkar gagnvart trúnni. Að
sjálfsögðu óttumst við að yfirvöld
komist að því hverjir við erum. Við
þurfum að takast á við þann ótta.
En við getum ekki leyft óttanum að
stjórna okkur,“ segir Mephisto.
Að hans sögn halda þeir áfram
sköpun sinni, þrátt fyrir hættuna,
þar sem hljómsveitarmeðlimir vita
að ríkisstjórnin getur illa stjórnað
veraldarvefnum. „Við, og margir
aðrir, notum netið til þess að hafa
samband við umheiminn. Sam-
félagsmiðlar verða sífellt íburðar-
meiri. Það er hægt að skapa nafn-
lausan aðgang og tjá þannig
skoðanir sínar. Sjónvarpið er ekki
lengur eina upplýsingaveitan. Nú
get ég tjáð skoðanir mínar en samt
varið mig gegn ríkisstjórninni.“
Einangraðir
Mephisto segir að áskoranirnar séu
fjölmargar fyrir hljómsveit sem er í
raun bönnuð, talin hættuleg. Hann
nefnir skort á stuðningi, tækjabún-
aði og upptökuverum og baráttuna
fyrir nafnleynd. „Svo er auðvitað
áskorun fólgin í því að búa í landi
þar sem þú veist að þú verður háls-
höggvinn, komist yfirvöld að því
hver þú ert,“ segir Mephisto og
bætir við: „Við erum orðnir einangr-
aðri. Við höfum lítið samband við
fjölskyldu okkar og vini. Við þurfum
að fara afar gætilega svo ekki komist
upp um okkur.“
Og í ljósi þess að tónlist og boð-
skapur Al-Namrood er ekki liðinn í
Sádi-Arabíu segist Mephisto hrein-
lega ekki vita hvernig tónlist þeirra
hefur verið tekið þar í landi. „Ég á
mjög sjaldan samskipti við aðdá-
endur í Sádi-Arabíu. Ég veit að þeir
eru til en þeir geta auðvitað ekki
tjáð stuðning sinn við okkur. Ég veit
að það er hættulegt fyrir þá.“
Mephisto tekur fram að á Face-
book geti hann séð að hljómsveitin
á 45 aðdáendur sem staðsettir eru í
Sádi-Arabíu. „Þetta gætu verið raun-
verulegir aðdáendur. En þetta gæti
líka verið lögreglan í stafrænu dular-
gervi. Ég er ekki viss.“
Ofurharðstjóri
Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar
fjallað mikið um Mohammed
krónprins, sem er eiginlegur leið-
togi Sádi-Arabíu vegna veikinda
Salmans konungs. Talið er líklegt
að Mohammed hafi fyrirskipað eða
að minnsta kosti vitað af morðinu á
blaðamanninum Jamal Khashoggi í
Istanbúl í upphafi mánaðar. Khas-
hoggi var þekktur andstæðingur
prinsins og hafði gagnrýnt hann
harðlega, meðal annars í pistlum í
Washington Post.
Mephisto segir að það breyti
engu, hvorki fyrir hljómsveitina né
almenning, að Mohammed sé nú að
komast til valda. „Það verða engar
breytingar. Einn harðstjóri fer og
annar kemur í staðinn. Bara í mis-
munandi litum með öðruvísi áróð-
ur. Ef þú lítur til þess að hann er að
bjóða upp á ýmiss konar afþreyingu
fyrir almenning geturðu séð að það
er bara til þess að líta betur út. Inn
við beinið er þetta enn sama gamla
ofuríhaldssama trúarofstækiskerfið.
Þungarokk er enn álitið satanískt,“
segir Mephisto og bætir við: „Hann
er ofurharðstjóri. Með gullmedalíu
í sínu fagi.“
Óttist þið, í ljósi Khashoggi-máls-
ins, að krónprinsinn muni nú ganga
lengra til að þagga niður í andstæð-
ingum sínum?
„Það gleður mig að þú spyrjir að
þessu. Þótt það hryggi okkur auð-
vitað að heyra af því að öðrum Sádi-
Araba (ekki þeim fyrsta) hafi verið
slátrað er ég einhvern veginn glaður
yfir að þetta hneyksli vakti heims-
athygli. Þannig hefur heimurinn
fengið innsýn í okkar raunveruleika.
Þessi mikilmennskubrjálæðingur
mun þagga niður í hverjum þeim
sem er ósammála honum. Fyrir það
galt herra Khashoggi.“
Aðspurður um hvort hann sé
bjartsýnn á að tjáningarfrelsið auk-
ist í framtíðinni er svar Mephistos
einfalt: „Það hef ég aldrei verið.“
Hætta lífinu fyrir tónlistina
10 Years of Resistance nefnist safn-
plata sádiarabísku sveitarinnar
sem kom út fyrr á þessu ári.
Dauðarefsing er við
tónlist og boðskap
hljómsveitarinnar
Al-Namrood í heima-
landinu Sádi-Arabíu.
Sveitin hefur samt
sem áður gefið út
plötur í áratug. Stofn-
andi sveitarinnar
ræðir við Fréttablaðið
um óttann og stöð-
una í Sádi-Arabíu.
Öfgar og hraði
Svartmálmur er ein öfgafyllsta
undirstefna þungarokks. Hún
einkennist af hráum upptöku
gæðum, öskrandi raddbeitingu og
miklum hraða. Umfjöllunarefni
söngtextanna getur verið mis
munandi. Í textum sínum hefur
mikill fjöldi sveita þó lýst andúð á
kristinni trú, hvort sem hún er sett
fram með stuðningsyfirlýsingu við
kölska eða heiðna siði. Lítið brot
svartmálms má svo flokka sem
nýnasistasvartmálm en sú stefna
nýtur lítillar hylli í þungarokkssam
félaginu.
Svartmálmur er skandinavísk
stefna og eru stærstu og þekkt
ustu böndin frá Noregi og Svíþjóð.
Sum þeirra hafa vakið heims
athygli, þá einna helst norska
sveitin Mayhem. Sú athygli var þó
ekki vegna tónlistarinnar. Annars
vegar komst sveitin í fréttirnar
eftir að söngvarinn, Per Yngve
Ohlin, skaut sig í hausinn með
haglabyssu. Hljómsveitarmeð
limir fundu hann, tóku mynd af
líkinu og settu á umslag plötunnar
Dawn of the Black Hearts. Hins
vegar komst sveitin í fréttir þegar
bassaleikarinn Varg Vikernes myrti
gítarleikarann Øystein Aarseth. Þá
voru meðlimir Mayhem, líkt og
nokkurra annarra skandinavískra
sveita, viðriðnir kirkjubrennur á
tíunda áratugnum.
Nokkuð blómleg svartmálms
sena er á Íslandi og er senan trú
lega sú stærsta í neðanjarðarheimi
þungarokks hér á landi. Sveitir á
borð við Misþyrmingu, Svarta
dauða, Auðn og Sinmara hafa
verið að gera góða hluti að undan
förnu og þá má ekki gleyma eldri
sveitum á borð við Potentiam,
sem gaf út meistarastykkið Bálsýn
árið 1999, og því að rætur Sólstafa
liggja í stefnunni.
Við höfum lítið sam-
band Við fjölskyldu
okkar og Vini. Við
þurfum að fara afar
gætilega.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-6
7
1
0
2
1
4
6
-6
5
D
4
2
1
4
6
-6
4
9
8
2
1
4
6
-6
3
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K