Ægir - 01.10.2018, Side 48
48
Íslendingum hefur lánast að fylgja eftir
aldargamalli ákvörðun og halda hér uppi
frjálsu og fullvalda ríki. Verstöðin Ísland
hefur eflst á umliðinni öld, það er þróun
sem hófst með vélvæðingu útgerðar í
upphafi 20. aldar. Meðal þorskafli var
frá 1918 til og með 2017 rétt rúmlega 238
þúsund tonn á ári. Á sama tíma minnk-
aði hlutfall þorsks úr ¾ heildarafla Ís-
lendinga í 21%, en heildarafli hefur auk-
ist úr 98 þúsund tonnum í 1176 þúsund
tonn vegna sóknar í aðra stofna sam-
hliða auknum afköstum og bættri tækni.
Að meðaltali hefur þorskur verið um
26% af lönduðum afla í hinni fullvalda
verstöð. Þorskur er enn sem fyrr mikil-
vægasta tegundin sem við veiðum, um
44% af verðmæti landaðs afla 2017 eru
til komin vegna þorskveiða. Við stofnun
fullveldisins var hlutur þorsks í heildar-
aflaverðmæti nærri 78%. Íslenskur sjáv-
arútvegur er fjölbreyttur og hefur þró-
ast með sérhverju skrefi sem stigið hef-
ur verið. Óskandi er að við fáum að læra
af sögunni og getum stigið fleiri en
færri heillaskref í framtíðinni.
Ný stefna – ný hugsun
Íslendingar ákváðu á þrítugsafmæli full-
veldis að láta vísindalega þekkingu vera
grundvöll stjórnunar fiskveiða á Ís-
landsmiðum. Innan við þremur áratug-
um síðar höfðu Íslendingar óskoruð um-
ráð yfir 200 mílna efnahagslögsögu um-
hverfis landið. Um líkt leyti rann smátt
og smátt upp fyrir okkur að veiðigeta
fiskiskipa okkar var umfram það sem
fiskistofnarnir gætu borið og því þurfti
að stilla saman veiðigetu skipastólsins
og veiðiþol fiskistofnanna. Kröfur á
mörkuðum eru að nýting fiskistofna sé
með sjálfbærum hætti, að ekki sé gengið
nær auðlindunum en þær þola.
Við Íslendingar mörkuðum stefnu,
byggða á ríkjandi fiskveiðistjórnkerfi ár-
ið 2003 um að auka verðmæti sjávar-
fangs fremur en að auka magn sjávar-
fangs. Vaxandi kröfur, sem og vilji til að
sýna ábyrgð í umgengni um auðlindir
sjávar, áttu þátt í ákvarðanatökunni. Við
fylgdum henni eftir með aukinni áherslu
á hagnýtar rannsóknir og þróunarvinnu
með það að markmiði að auka verðmæti.
Stórt skref í þeirri vegferð var stofnun
AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi.
Margvísleg samstarfsverkefni voru unn-
in til að sækja fram í þágu heildarinnar
þannig að útkoma einstakra verkefna
gæti átt þátt í að bæta hag allra lands-
manna.
Stöðug gæði skila verðmætari
viðskiptum
Með hliðsjón af útflutningsverðmætum
þess sem aflaðist á hverju ári má segja
að það hafi tekist giska hratt að auka
verðmæti sjávarfangs, með rannsóknum
styrktum af AVS, eftir að ákvörðunin
var tekin. Verðmætin ríflega tvöfölduð-
ust frá 2003 fram til 2011, í erlendum
myntum, þó lítið hafi þokast í þá átt á
allra síðustu árum.
Miðað við nálgun Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
til að meta verðþróun í alþjóðlegum við-
skiptum með sjávarafurðir (FAO Fish
Price Index) jókst verðmæti íslensks
sjávarfangs hraðar en gerðist og gekk.
Verðmætasköpunin hefur áhrif á rekstur
og rekstrarniðurstöður fyrirtækja í virð-
isneti sjávarútvegsins, þ.m.t. framlegð
sjávarútvegsfyrirtækja.
Hvað svo sem veldur því að þróun
Arnljótur Bjarki Bergsson skrifar
Áherslan verði á
ný á aukna
verðmætasköpun
Arnljótur Bjarki Bergsson.