Ægir - 01.10.2018, Page 116
116
Fyrirtækið MD vélar ehf. í Reykjavík
hefur frá stofnun árið 1990 annast sölu,
ráðgjöf, viðgerðir og viðhald á vélbún-
aði fyrir skip og báta. Hluti af þessari
þjónustu hefur verið að bjóða upp á
þenslutengi. Nýjasta viðbótin er umboð
fyrir þenslutengi frá danska framleið-
andanum VM Kompensator.
„Nýjungin í þessari þjónustu felst í
þeirri miklu þjónustu og ráðgjöf sem við
og framleiðandinn veitum viðskiptavin-
um hér á landi, einnig mikilli þekkingu
og sérhönnun eftir þörfum viðskiptavin-
arins“ segir Laila Hjaltadóttir hjá MD
vélum ehf.
Þenslutengi samkvæmt þörfum
viðskiptavina
Þenslutengin eru notuð á mörgum stöð-
um og í samstarfi við VM Kompensator
bjóða MD vélar boðið allan pakkann
þ.e.a.s. gúmmí, vef og
stál. Gúmmítengin
koma frá hinum
þekkta fram-
leiðanda Trelle-
borg en vef- og
stáltengin eru
framleidd í Dan-
mörku. „Þetta er mjög sér-
hæft fyrirtæki í Dan-
mörku og hefur
innanborðs sér-
fræðinga á sín-
um sviðum. Þeir
leggja mikið upp
úr þjónustuþætt-
inum, að koma til við-
skiptavina og kynna sér
aðstæður til að geta útfært sem allra
bestar lausnir í samstarfi við notandann
og ef óskað er eftir senda þeir sérhæfða
starfsmenn til að mæla og setja upp
tengin. Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð hér á Íslandi og fulltrúar fyrir-
tækisins hafa þegar komið margar ferðir
hingað til lands vegna verkefna og
kynninga,“ segir Laila.
Solé búnaðurinn þrautreyndur
á Íslandi
Líkt og áður segir hafa MD vélar veitt
báta- og skipaútgerðum á Íslandi þjón-
ustu um áratugaskeið hvað vélbúnað
snertir og er hvað þekktast fyrir að vera
umboðsaðilar Mitsubishi á Íslandi. Fyrir-
tækið er einnig sölu- og þjónustuaðili
fyrir Solé Diesel á Spáni sem býður bæði
aðal- og ljósavélar sem í grunninn eru
byggðar á Mitsubishi og Deutz vélum.
Solé framleiðir einnig skrúfubúnað, gíra,
mæla og annan aukabúnað.
Solé er 100 ára gamalt fjölskyldufyrir-
tæki og nú er fjórða kynslóðin tekin við.
Mikil reynsla og þekking er því innan
fyrirtækisins. MD vélar ehf. hefur verið
umboðsaðili frá árinu 1990 en auk fram-
leiðslu á skrúfuvélum framleiðir Solé
einnig ljósavélar sem fyrr segir. Minnstu
skrúfuvélarnar eru 16 hestöfl og þær
stærstu 272 hestöfl. Solé Diesel býður
einnig vélar frá fleiri framleiðendum en
þær eru ætlaðar fyrir skemmtibáta.
„Miðað við þá reynslu sem við og
kaupendur Solé vélanna höfum fengið á
síðustu árum erum við ákveðin í að efla
þetta merki til muna á Íslandi. Það gildir
bæði um sölu á vélum og búnaði í nýja
báta og eldri auk varahlutaþjónustunnar
og þeirrar viðgerðarþjónustu sem MD
vélar hafa byggt upp,“ segir Laila.
mdvelar.is
MD vélar ehf.
Þenslutengi
– nýtt umboð aukin þjónusta
Risavaxin vef- og stálþensutengi frá VM Kompensator.
Gúmmíþenslutengi frá Trelleborg.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands