Ægir - 01.10.2018, Page 124
124
KAPP ehf.
Vaxandi áhugi á kolsýru sem
umhverfisvænum kælimiðli
„Fyrirtæki eru farin að horfa æ meira á
kolefnisspor í sinni framleiðslu og til
lausna sem eru umhverfisvænni. Þau
fyrirtæki sem eru með kæli- og frysti-
búnað hafa í vaxandi mæli áhuga á að
skipta yfir í kolsýru sem umhverfis-
vænni og ódýrari kælimiðil í staðinn
fyrir t.d. freon. Við Íslendingar höfum
verið á eftir nágrannalöndum okkar
hvað þetta varðar en á því er að verða
breyting,“ segir Friðrik Ingi Óskarsson,
véltæknifræðingur og tæknistjóri hjá
fyrirtækinu KAPP ehf. í Garðabæ. Fyrir-
tækið rekur kæliverkstæði, renniverk-
stæði, vélaverkstæði og framleiðsludeild
og veitir mörgum fyrirtækjum í sjávar-
útvegi þjónustu.
Gróðurhúsastuðullinn lykilatriðið
Verkefni KAPP í útskiptum kælimiðla
hafa stöðugt verið að aukast og er þá
gjarnan skipt úr freoni yfir í kolsýru.
„Fyrir nokkrum árum ákvað Evrópusam-
bandið að ráðast í aðgerðir gegn loft-
lagsbreytingum og hluti þeirra snýst um
að draga úr losun F-lofttegunda/kæli-
miðla. Þetta snýst allt um svokallaðan
GWP (Global Warming Potential) stuðul
kælimiðlanna en þann 1. janúar 2020
verða allir kælimiðlar með hærri stuðul
en 2500 bannaðir. Sem dæmi þá er ein
vinsælasta freon tegundin í kælikerfum
með GWP stuðul upp á 3922 en til sam-
anburðar er GWP stuðullinn
1 fyrir kolsýru
(C02). Og sömu-
leiðis er ammoníak
náttúrulegur kæli-
miðill,“ segir Frið-
rik Ingi.
Kolsýra víða góður kostur
í kælingu
Aðspurður segir Friðrik Ingi að kolsýra
henti á öllum þeim stöðum þar sem þurfi
að kæla hráefni, vörur eða rými. „En
auðvitað fer þetta allt eftir hvar og hvað
þú ert að gera. Kolsýra hentar við
ákveðnar aðstæðar og ammóníak við
aðrar. Kolsýra hentar til dæmis mjög vel
fyrir verslanir en ammoníak síð-
ur. Ammoníak hentar
hins vegar mjög
vel eins og það
er notað í dag
fyrir stærri iðn-
aðarkerfin, t.d.
stór frystihús og
stærri frysti-
skip. KAPP
býður uppá
alhliða lausnir á
þessu sviði. Við
höfum mikla
þekkingu á öllum kæli-
og frystikerfum, þar á meðal
freon- og ammóníakskerfum og
höfum mikla reynslu hér á landi í heild-
arlausnum og uppsetningu á kolsýru-
kerfum. Þau höfum við sett upp fyrir
sjávarútveginn, verslanir og heildsölu-
verslanir.“
Framleiða kælibúnað fyrir
sjávarútveg
Starfsmenn KAPP eru í dag 33 talsins.
Meðal annarra verkefna fyrirtækisins er
framleiðsla á OPTIM-ICE ískrapavélum og
forkælum en þessi búnaður er mest not-
aður í sjávarútvegi. „Við höfum mikið
verið að sækja á erlenda markaði eins og
Rússland og Bandaríkin en ískrapavél-
arnar eru notaðar til að kæla hráefni
eins hratt og auðið er til að minnka
bakteríumyndum. Við það aukast gæðin
og líftími hráefnis lengist. Og þess má
geta við erum þessa stundina að þróa
ískrapavél með kolsýru sem kælimiðli,“
segir Friðrik Ingi.
kapp.is
Friðrik Ingi Óskarsson, véltæknifræðingur hjá KAPP.
KAPP ehf. fram-
leiðir OPTIM-ICE
ískrapavélar og
forkæla fyrir sjáv-
arútveg en hér
sést BP-130, önnur
stærsta ískrapa-
vélin sem fyrir-
tækið framleiðir.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands