Ægir - 01.10.2018, Side 134
134
Íslensk útgerðarfyrirtæki hafa látið
smíða fjölmörg skip á síðustu árum eins
og allir vita en á færra vitorði er að
mörg þeirra eru búin aðalvélum og öðr-
um vélbúnaði frá japanska framleiðand-
anum Yanmar. Það hlýtur að segja eitt-
hvað um gæði vélanna. Marás er um-
boðsaðili þessa þekkta merkis og við
spurðum Hallgrím Hallgrímsson hverju
þetta sætti.
„Ástæðan fyrir þessu er einfaldlega
sú að hönnuðir skipanna og þeir sem
standa fyrir smíði þeirra vita að hverju
þeir ganga þegar vélarnar frá Yanmar
eru annars vegar. Yanmar hefur þróað
vélar fyrir skip af öllum stærðum og
gerðum sem eiga það sameiginlegt að
vera ákaflega sparneytnar á orkuna og
endingargóðar að auki sem leiðir af sér
lága bilanatíðni og þar af leiðandi lítinn
viðhaldskostnað. Við getum ekki verið
annað en ánægðir með viðtökurnar sem
Yanmar hefur fengið hér á Íslandi en
láta mun nærri að eitt af hverjum þrem-
ur skipum í flotanum séu með Yanmar
aðalvél,“ segir Hallgrímur.
Systurskipin öll með Yanmar
Nú er hafin smíði á sjö systurskipum í
Noregi sem eru 28,95 m að lengd og 12 m
á breidd. Fyrsta skipið kemur til landsins
í mars á næsta ári og svo týnast þau
hingað eitt af öðru í framhaldinu. Um er
að ræða tvö togskip fyrir Gjögur hf., tvö
fyrir Skinney Þinganes hf., tvö fyrir
Berg Huginn ehf. og eitt fyrir Útgerðar-
félag Akureyringa. Í öllum þessum skip-
um eru báðar aðalvélarnar frá Yanmar
auk þess sem framdrifsbúnaður, gír og
skrúfubúnaður er frá Finnöy FZ og Yan-
mar. Einnig er Yanmar búnað að finna í
45 m löngu skipi sem verið er að smíða
fyrir Olíudreifingu ehf., í nýju skipi fyrir
Útgerðarfélag Sandgerðis og loks í björg-
unarskipi sem Rafnar ehf. er að smíða
fyrir Landhelgisgæsluna.
„Japanska fyrirtækið Yanmar er ríf-
lega 100 ára gamalt í smíði díselvéla og
hefur síðustu ár verið í fararbroddi þeg-
ar kemur að framleiðslu vistvæns vél-
búnaðar. Þeir hafa fylgst vel með þróun-
inni og sett á markað eyðslugrannar vél-
ar en um leið gríðarlega aflmiklar og
áreiðanlegar. Marás hefur átt gott sam-
starf við þennan framleiðanda í mörg ár
enda sýn og stefna beggja fyrirtækja sú
sama; að vera leiðandi í vélbúnaði fyrir
atvinnumenn í sjávarútvegi og bjóða
eingöngu vottaðan og viðurkenndan
búnað,“ segir Hallgrímur.
Allt fyrir brú og vélarrúm
Marás er einnig umsvifamikið í sölu
sjálfvirks stjórnbúnaðar fyrir togvindur
frá Scantrol í Noregi. Búnaðurinn, sem
kallast „SCANTROL ISYM“, er þegar í fjöl-
mörgum íslenskum fiskiskipum, bæði ný-
smíðuðum og einnig þeim sem hafa verið
endurnýjuð. Þetta er búnaður sem hefur
sannað notagildi sitt og reynst mjög vel.
Auk þess að stýra togvindunum býður
Scantrol upp á „SCANTROL ISPOOL“ bún-
að sem stýrir vírunum inn á tromluna.
Sé Scantrol stjórnbúnaður fyrir í skipinu
er hægt að samtengja hann og vírastýri-
búnaðinn.
„Þá má nefna að fyrir um tveimur
mánuðum tókum við að selja hin marg-
frægu Ibercisa togspil frá Spáni en þau
hafa verið lengi um borð í íslenskum
skipum og reynst vel. Nú flytur Marás
þessi spil beint inn frá Spáni og við
hyggjumst efla sölustarfið og bæta alla
þjónustu við þessi traustu tæki. Að síð-
ustu er vert að taka fram að dótturfyrir-
tæki Marás, Friðrik A. Jónsson, er hér í
sama húsi en þeir hafa lengi selt og
þjónustað heimsþekkt merki í hvers kon-
ar rafeindabúnaði fyrir íslenska flotann.
Saman bjóða þessi fyrirtæki því heildar-
lausnir í bæði vélarrúm og brú þaðan
sem öllu er jú stjórnað,“ segir Hallgrímur
að síðustu.
maras.is
Hallgrímur Hallgrímsson sölustjóri véla hjá Marás við mynd af sjö skipum sem nú eru í smíðum fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki
en öll eru þau með tvær aðalvélar frá Yanmar.
Yanmar
– eyðslugrannar og
endingargóðar vélar
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands