Ægir - 01.10.2018, Qupperneq 144
144
Gert er ráð fyrir því að bjóða upp á
tengingu skipa við hitaveitu við Mið-
garð í Grindavíkurhöfn eftir að fram-
kvæmdum við hann lýkur. Það verður
þá valkostur til viðbótar við hina tvo
sem er að tengjast rafmagni úr landi eða
keyra ljósavélar. Nú eru þrjú skip í smíð-
um, tvö fyrir Gjögur og eitt fyrir Vísi, en
skip þessara útgerða landa oftast í
Grindavík. Þau verða búin þeim mögu-
leika að geta hitað skipin með heitu
vatni úr landi.
„Sumir segja reyndar að yfirleitt
stoppi skipin svo stutt við að menn verði
ekkert að pæla í þessu, en maður veit
ekkert hvað verður í framtíðinni.
Kannski verður rafmagnsverð í hæstu
hæðum og fylgir olíuverðinu, en hvernig
sem það er, verður alltaf töluvert ódýr-
ara að kynda með heitu vatni en raf-
magni. Bara rétt eins og með húsin. Þess
vegna munum við bjóða upp á þennan
kost. Við verðum með slíka aðstöðu fyrir
fimm skip í senn en til að byrja með
verður hún aðeins fyrir tvö skip,“ segir
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri
í Grindavík.
Viðmiklar framkvæmdir hafa staðið
yfir í höfninni í Grindavík í tvö ár.
„Dýpkunarframkvæmdum er um það bil
að ljúka. Stálþilið er komið og verið að
undirbúa fyllingu fyrir þekju. Mest öll
lagnavinnan er klár og þá er hægt að
fara að steypa ef veður leyfir. Við erum
svolítið í kapphlaupi við tíma. Við von-
umst til að geta klárað helminginn fyrir
áramót og restina á næsta ári. Fyrirtæk-
ið Haftak hefur verið með meginþung-
ann af verkinu en Björgun sér núna um
dýpkunina.“
Ódýrara en áður að dýpka
Hugmyndir eru um að dýpka lengra út í
höfnina framan Miðgarðs og auka með
því athafnarými fyrir skipin. „Nú er orð-
in gjörbylting í dýpkunum. Hingað til
hefur alltaf þurft að sprengja, en nú eru
þeir búnir að hanna skófluna sína það
vel að þeir geta grafið upp þykkar klapp-
ir sem áður þurfti að sprengja og fyrir
vikið er verkið mun ódýrara. Það munar
alveg helmingi. Við sjáum því ágætis
tækifæri í því að halda pínulítið áfram,“
segir Sigurður.
Þilið var fært aðeins meira fram en
upphaflega var gert ráð fyrir, um fimm
metra í stað þriggja. Fyrir vikið fæst
meira hafnarsvæði en minna svigrúm
framan við og þessa vegna er verið að
dýpka þar.
Landfylling við Eyjabakka
„Verkið hefur gengið vel, er nánast á
áætlun og undir kostnaðaráætlun þann-
ig að við erum tiltölulega sáttir. Það sem
Björgun er að gera núna er í raun það
sem við ætluðum að gera eftir 2019 og
fáum þannig fulla nýtingu á hafnar-
mannvirkið strax. Við höfum svo verið
að nota fyllingarefni til að gera landfyll-
ingu við Eyjabakka. Hún er ekki mikil en
þó myndast þar svæði þar sem hægt
verður að geyma þungavarning úr
flutningaskipum um stundarsakir, eins
og stál eða rör eða eitthvað svoleiðis. Við
erum að reyna að skjóta fleiri stoðum
undir tekjuöflunina. Við berjumst svolít-
ið í bökkunum og þó þetta sé stór og öfl-
ug fiskihöfn þá dugir það ekki alveg til
að standa í miklum framkvæmdum. Við
vonum því að fleiri skip skili sér til okkar
í framtíðinni svo við getum betur staðið
á eigin fótum,“ segir Sigurður A. Krist-
mundsson.
grindavik.is/hofnin
Bjóða upp á hitaveitu
fyrir skipin
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík er ánægður með gang mála
við framkvæmdirnar.
Dýpkunarskipið Pétur mikli frá Björgun dýpkar höfnina í Grindavík.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands