Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Qupperneq 35
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Pílukastfélag Reykjavíkur (PFR) var stofnað árið 1994, félagið heldur utan um pílukast á Stór-Reykja-
víkursvæðinu og eru félagsmenn í dag
yfir 100 talsins af báðum kynjum.
„Pílukast á Íslandi hefur aukist jafnt og
þétt undanfarin ár og er landslið okkar,
sem er alltaf skipað okkar bestu spilur-
um, farið að skila árangri á alþjóðamót-
um,“ segir Björgvin Sigurðsson, formað-
ur PFR. „Á hverju ári heldur Íslenska
pílukastsambandið (ÍPS) alþjóðamót,
Iceland Open, en þá gefst erlendum
spilurum kostur á að keppa hér heima
og fá stig á heimslistann.“ Samhliða
auknum áhuga á pílukasti hafa komið
nýjungar á kynningu sportsins en það
eru beinar útsendingar á netinu, Live
dart Iceland.
Liðakeppni á mánudögum
Alla mánudaga frá byrjun september til
maíloka heldur PFR liðakeppni, en í henni
eru 16 lið í tveimur deildum, í hverju liði
eru frá 5–8 manns. „Allflesta fimmtu-
daga eru einnig haldin mót á vegum fé-
lagsins. Stórmót eins og Meistaramótin
okkar og mót á vegum ÍPS eru svo haldin
um helgar,“ segir Björgvin. „Þegar þú
gerist félagi í PFR ertu sjálfkrafa með-
limur í ÍPS og getur sótt stigamót, sem
eru haldin fyrsta fimmtudag í hverjum
mánuði, og safnað stigum til landsliðs.“
Frábær aðstaða – Allir velkomnir
n Ertu með spjald í skúrnum ?
n Er píluspjald í vinnunni ?
n Eru þið hópur félaga sem hittast og
kasta pílu ?
PFR er í dag í 300 fermetra húsnæði
að Tangarhöfða 2. Í salnum eru 16 pílu-
spjöld og eitt svið þar sem spilaðir eru
úrslitaleikir. „Það eru allir velkomnir að
kíkja til okkar, spila við aðra og kynn-
ast því sem er í gangi í sportinu,“ segir
Björgvin. „Við í PFR viljum endilega bjóða
fleirum að ganga í klúbbinn og taka þátt
í þeirri miklu starfsemi sem er í gangi hjá
okkur. Pílukast er fyrir alla aldurshópa og
því eru allir velkomnir að ganga í félagið
okkar.“
Öflugt unglingastarf
Fyrir tveimur árum setti ÍPS á stofn
unglingalandslið, auk þess að styðja
við félagsliðin sem halda úti unglinga-
starfi. „Markmiðið var að efla og auka
áhuga ungmenna á pílukasti. Pílukast er
skemmtileg íþrótt sem hentar vel með
þeim íþróttum sem eru stundaðar hér
á Íslandi í dag,“ segir Pétur Rúrik Guð-
mundsson unglingalandsliðsþjálfari.
Unglingalandslið Íslands tók þátt í
Evrópukeppni unglinga 2017 og 2018.
Félagslið halda úti æfingum á Akureyri,
í Reykjavík, Grindavík og Reykjanesbæ.
„Auk þess hafa verið haldnar æfingar
fyrir áhugasama unglinga þar sem ósk-
að hefur verið eftir því.“
Einnig hefur Live Darts Iceland sýnt
frá Íslandsmóti unglinga 2017 og hafa
unglingalandsliðsmenn verið að taka
þátt í mótum erlendis með góðum
árangri. Alex Máni Pétursson, Íslands-
meistari unglinga síðustu þrjú ár, vann
Finnska opna pílumótið á þessu ári. „Það
hafa margir lagt hönd á plóginn og þessi
uppgangur sem á sér stað í pílukast-
heiminum hefur klárlega snert okkur hér
á Íslandi, bæði hjá unglingum sem og
fullorðnum.“
Nýlega fékk PFR boð um að keppa á
einu af stærstu unglingamótum í píluk-
asti, sem er haldið í Bristol á vegum JDC
(Junior Darts Corboration) í Bretlandi,
og eru fjórir drengir að fara að keppa
undir merkjum Íslands. „Þetta gefur
okkur byr undir báða vængi í að halda
áfram að efla unglingastarfið og virkja
bæði foreldra og unglinga til að stunda
þessa skemmtilegu íþrótt.“
Leynist pílukastari í þér
Allir unglingar eru velkomnir að mæta
og prófa pílukast.
Æfingatímar:
Mánudagar kl: 17–18 – Tangarhöfði 2
– Pílukastfélag Reykjavíkur
Þriðjudagar kl: 17–18 – Keilisbraut 755
– Pílufélag Reykjanesbæjar og Pílufélag
Grindavíkur
Allar upplýsingar um Pílukastfélag
Reykjavíkur má finna á heimasíðunni:
www.pila.is, Facebook-síðu: Pílukastfé-
lag Reykjavíkur og í netfanginu: pilapfr@
gmail.com. c
PÍLA ER FYRIR ALLA:
Frábær íþrótt í góðum félagsskap