Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Side 37
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
VISITOR:
Draumajólagjöfin er ferð á
enska boltann!
Í vetur hefur ferðaskrifstofan Visitor boðið upp á hópferðir á enska boltann með íslenskri
fararstjórn. Allar ferðir hafa selst
upp og vakið mikla lukku. Þó að
ferðirnar höfði vitanlega sterkt til
knattspyrnuáhugamanna þykja
þær líka vera mjög fjölskylduvænar.
„Þetta er kjörið tækifæri til að bjóða
afa í draumaferðina á sjötugsaf-
mælinu hans, svo dæmi sér tekið,“
segir segir Sigurður Hlöðversson,
Siggi Hlö, hjá Visitor, og bætir við
að oft fái fermingarbörn boltaferð
í fermingargjöf. Að sjálfsögðu eru
þessar ferðir líka frábærar jólagjaf-
ir. „Hóparnir okkar eru blandaðir og
þarna gefst tækifæri til að sameina
ljúfa helgarferð sem er í senn versl-
unarferð, fótboltaferð og gert vel
við sig í mat og drykk,“ segir Siggi.
Visitor er með 50 miða á alla
heimaleiki Manchester United á Old
Trafford og Liverpool á Anfield.
„Fyrirtæki sem vilja fara með
starfsfólk sitt til útlanda ættu að
hafa samband við okkur mjög
snemma í ferlinu því þessi far-
gjaldafrumskógur er ótrúlegur.
Fargjöld hækka daglega fram að
brottfarardegi og versti óvinur
skemmtinefnda sem eru að spá í
flugfargjöld og gistingar eru allar
þessar leitarvélar sem sýna þér
hagstætt verð, en þegar þú ert
kannski með 30–80 manna hóp er
bara allt annað í gangi,“ segir Siggi
Hlö, en Visitor sérhæfir sig með-
al annars í árshátíðarferðum og
öðrum hvataferðum fyrirtækja til
útlanda.
Visitor hefur áralanga reynslu af
bókunum og skipulagningu hóp-
ferða og er beintengt við bókunar-
kerfi sem bjóða upp á hagstæðar
ferðir. Visitor veitir persónulega
þjónustu til jafnt lítilla sem stórra
aðila og léttir mjög álagi og streitu
af skemmtinefndum fyrirtækja sem
oft standa í ströngu til að láta hóp-
ferðina verða sem fullkomnasta.
Sala ferða og upplýsingar um
allar ferðir er að finna á vefsíðunni
www.visitor.is eða í söluveri í síma
578-9888. n