Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Page 40
Góðar stundir 16. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Innanhússklifur er sívaxandi áhugamál á Íslandi og víða um heim. „Hér á landi eru um tæp-
lega 1.500 félagar sem stunda
klifur reglulega í Klifurhúsinu,“ segir
Benjamin Mokry, framkvæmdastjóri
Klifurhússins. Klifursambandið sótti
fyrir stuttu um aðild að ÍSÍ og hafa
sprottið upp Klifurhús um land allt.
Klifur er lífsstíll
„Þeir eru að byggja klifurhús á
Grundarfirði, einnig er verið að
stækka klifurhús á Akureyri og svo
er verið að setja upp klifurveggi
í Skaftafelli,“ segir Benjamin sem
stundar klifur bæði utanhúss og inn-
an af miklum krafti. „Klifur er lífsstíll
og þegar menn byrja þá eiga þeir
erfitt með að hætta, þetta er svo
gaman,“ segir Benjamin.
Allir geta klifrað
Í Klifurhúsinu eru í boði ýmist opnir
tímar eða lokaðir og margs konar
námskeið fyrir alla aldurshópa. „Við
erum með barna- og unglinganám-
skeið hér fyrir 5 til 18 ára en einnig
kennslu fyrir alla aldurshópa. Elstu
þátttakendurnir eru um sextugt,“
segir Benjamin. Klifurveggirnir eru
smíðaðir úr timbri og á gólfinu fyrir
neðan er stór dýna sem þátttak-
endur hoppa niður á í lok klifursins.
„Í Klifurhúsinu er stunduð svokölluð
„grjótglíma“, þar sem klifurveggur-
inn er mjög brattur en klifurhæðin
lítil, eða um 4–6 metrar. Einnig eru
lagðar línuklifurleiðir fyrir þá sem eru
að æfa það,“ segir Benjamin.
Eflir styrk, liðleika og þol
Að sögn Benjamins reynir klifrið
bæði á styrk og liðleika. „Það er
enginn munur á getu stráka og
stelpna. Þótt strákarnir fari langt á
kraftinum þá eru stelpurnar oftast
með betri tækni. Hugtakið tækniklif-
ur er þekkt enda eru tækni og liðleiki
mikilvægir þættir í þessu sporti.“
Klifrið eflir allt í senn, þol, liðleika og
styrk, og hentar fólki á öllum aldri.
„Til dæmis getur maður aldrei orðið
of sterkur í fingrunum en klifrið eflir
mjög fingrastyrk. Það er nokkuð sem
fólk er almennt ekki að þjálfa með
sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf
erfiðast þó svo að sé óneitanlega
alltaf skemmtilegt að prófa klifur. En
þegar maður byrjar að mæta reglu-
lega í klifur, kannski 2–3 skipti í viku,
er maður fljótur að sjá árangurinn
og er ótrúlegt hvað sumir hafa náð
langt á stuttum tíma,“ segir Benja-
min.
Klifur fyrir byrjendur og lengra
komna
Það þarf ekki að fara á námskeið til
að kynnast klifrinu né þarf að kaupa
sér aðgöngukort, hægt er að mæta
á staðinn og kaupa sér stakan tíma
og leigja klifurskó. Klifurleiðunum er
raðað upp í mismunandi erfiðleika-
stig þannig að byrjendur geta valið
leið sem hentar þeim fullkomlega
á meðan meira krefjandi leiðir eru í
boði fyrir þá sem eru lengra komnir.
Hópar klifra
„Það er kjörið fyrir litla hópa að
koma hingað og eiga góða stund
saman. Klifurhús spretta víða upp
erlendis og eru að verða mjög vin-
sælir samkomustaðir. Fólk hittist,
fær sér kaffi og spjallar, og klifrar
síðan saman í tvo tíma. Þetta kemur
algerlega í staðinn fyrir að hittast á
barnum. Það er alveg jafn sjálfsagt
að hittast í klifri eins og að hittast á
kaffihúsi eða krá. Og svo fær maður
mikla og góða hreyfingu í leiðinni,“
segir Benjamin, en bætir svo við
að það megi líka kíkja á barinn eftir
klifrið, hann hafi ekkert á móti því.
Gefðu klifur
Gjafabréf hjá Klifurhúsinu eru mjög
vinsæl í jólagjafir. „Fólk er ýmist
að kaupa mörg skipti fyrir þá sem
hafa komið áður, eða bara eitt
skipti fyrir þá sem hafa ekki prófað
klifur. Þetta er skemmtileg gjöf sem
menn búast ekki endilega við,“ segir
Benjamin.
Nánari upplýsingar um Klifur-
húsið er að finna á vefsíðunni
klifurhusid.is og Facebook-síðunni
Klifurhúsið.
Opið er alla virka daga frá 11.30–
22.00 og um helgar 12.00–18.00
Netfang: klifurhusid@klifurhusid.is n
KLIFURHÚSIÐ:
Það er engin leið að hætta að klifra