Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Side 45
Góðar stundir 16. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
SETTU GLEÐISTUND Í JÓLAPAKKANN:
Gjafakort í Þjóðleikhúsið er
tilvalin jólagjöf
Aðsókn að leiksýningum Þjóð-leikhússins hefur verið með eindæmum góð á leikárinu
og vinsælar sýningar verða áfram á
fjölunum eftir áramót, auk þess sem
nýjar og spennandi sýningar verða
frumsýndar á næstunni. Gjafakort í
Þjóðleikhúsið er því kærkomin jóla-
gjöf fyrir marga en kortið er hægt
að kaupa á vef Þjóðleikhússins,
leikhusid.is, eða í afgreiðslunni við
Hverfisgötu.
Hér er yfirlit yfir helstu verkefni
leikhússins í vetur: n
Ronja ræningjadóttir – Uppselt út
2018
Stórskemmtilegur og
æsispennandi söngleikur fyrir alla
fjölskylduna!
Ronja ræningjadóttir er einstök
saga um óvenjulega vináttu, heitar
tilfinningar, hættuleg ævintýri, sorg
og gleði. Salka Sól fer með hlutverk
Ronju og Sigurður Þór Óskars-
son leikur vin hennar, Birki. Meðal
annarra leikara eru Örn Árnason,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Edda
Björgvinsdóttir, en stór hópur
leikara, dansara, barna og tónlist-
arfólks tekur þátt í þessari fjörugu
og fallegu sýningu. Sýningin hefur
hlotið einróma lof áhorfenda og
gagnrýnenda enda er aðsókn með
því mesta sem sést hefur í leikhús-
inu. Ronja ræningjadóttir verður
áfram á fjölunum eftir áramót.
Einræðisherrann
Meistaraverk Charlies Chaplins á
leiksviði, í bráðskemmtilegri, nýrri
gerð.
Leikgerð Nikolajs Cederholms af
kvikmyndinni Einræðisherranum
sló rækilega í gegn hjá Nørrebro-
-leikhúsinu í Kaupmannahöfn á
liðnu leikári, og gagnrýnendur
hlóðu lofi á sýninguna!
Nú gefst íslenskum leikhúsgest-
um kostur á að sjá Sigga Sigurjóns
stíga á svið í hlutverki flækingsins
sem verður einræðisherra fyrir röð
mistaka.
Heillandi, bráðskemmtileg og
frumleg leiksýning um valdasýki,
möguleika mennskunnar í trylltri
veröld og baráttuna fyrir friði í
heiminum.
Samþykki – Spennuþrungið
leikrit um völundarhús sann-
leikans.
Kristín Jóhannesdóttir, sem
leikstýrði hinni geysivinsælu sýn-
ingu Föðurnum, snýr aftur með
magnaða leiksýningu.
Kraftmikið, splunkunýtt verk
sem sló í gegn í Breska þjóðleik-
húsinu á liðnu leikári, og hefur nú
verið flutt yfir á West End.
Hvers vegna er réttlætisgyðj-
an yfirleitt sýnd með bundið fyrir
augun? Er hún óhlutdræg? Eða
getur hún verið blind á tilteknar
staðreyndir?
Í vinahópi nokkurra lög-
fræðinga eru skiptar skoðanir á
umdeildu dómsmáli. Lykilvitnið
er kona sem tilheyrir heimi sem
virðist í órafjarlægð frá lífi vin-
anna. En brátt er mál þessarar
ókunnugu konu farið að hafa
ófyrirsjáanlegar afleiðingar á
samskipti þeirra og ástarsam-
bönd.
Hvernig getum við fengið
fullvissu um hvað er satt og
hvað logið? Hver er munurinn á
hefndarþorsta og leit að rétt-
læti? Eru allir jafnir fyrir lögun-
um?
Fly me to the moon
Nýtt verk eftir höfund hins geysi-
vinsæla leikrits Með fulla vasa af
grjóti
Bráðskemmtilegt verk um tvær
kjarnakonur sem hafa alltaf þurft
að hafa fyrir lífinu, en standa
skyndilega frammi fyrir möguleik-
anum á að eignast svolítinn pening
með auðveldum hætti. Það þarf
kannski bara að svindla smá …
Leikkonurnar Ólafía Hrönn og
Anna Svava sameina krafta sína
og fara á kostum í þessum nýja
tvíleik eftir Marie Jones.
Loddarinn Tartuffe – Hárbeitt verk
eftir meistara gamanleikjanna
Molière er sannkallaður meistari
gamanleikjanna og leikrit hans um
loddarann Tartuffe er eitt hans allra
vinsælasta verk.
Hræsnaranum Tartuffe hefur
tekist að ávinna sér traust og aðdá-
un heimilisföðurins Orgons og vefja
honum um fingur sér, fjölskyldu hans
til óbærilegrar hrellingar. Smám
saman er Tartuffe farinn að stjórna
lífi heimilisfólksins. Þegar Orgon fær
þá flugu í höfuðið að gifta dóttur
sína Tartuffe eru góð ráð dýr.
Leikstjóri sýningarinnar, Stefan
Metz, er íslenskum leikhúsunnendum
að góðu kunnur fyrir sýningar á borð
við Eldraunina og Horft frá brúnni.
Þitt eigið leikrit
Bækur Ævars Þórs Benedikts-
sonar, þar sem lesandinn ræður
því hvað gerist næst, hafa notið
gífurlegra vinsælda meðal yngri
lesenda. Nú er komið að þér að
stjórna framvindunni í þínu eigin
leikriti!
Söguheimurinn er norræna
goðafræðin, full af hrikaleg-
um hetjum og stórhættulegum
skrímslum. Engar tvær sýningar
verða eins, því áhorfendur ráða
því hvað gerist! Muntu sigra
Miðgarðsorminn eða gleypir
hinn hræðilegi Fenrisúlfur þig?
Ætlarðu að gerast barnapía fyrir
Loka eða líst þér betur á að verja
sjálfa Valhöll fyrir jötnum og
hrímþursum?
Ævintýraleg og spennandi sýn-
ing, þar sem allt getur gerst!
Klókur ertu, Einar Áskell
Við fylgjumst með degi í lífi feðganna
Einars Áskels og pabba hans, þar
sem daglegt líf fær á sig ljóma ævin-
týrs, eins og tilvera okkar allra getur
gert í einu vetfangi, ef við opnum fyrir
leikinn, sköpunina og ímyndunaraflið.
Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en
þegar pabbi hans tekur sér tíma og
leikur við hann. Það næstskemmti-
legasta er að fá að leika sér með
verkfærakassann, en það er strang-
lega bannað og stórhættulegt að
leika sér með sögina!
Súper – þar sem kjöt snýst um fólk
Súper – þar sem kjöt snýst um fólk
er nýtt og bráðfyndið leikrit eftir
Jón Gnarr, fullt af „gnarrískum“
húmor og pælingum, í leikstjórn
Benedikts Erlingssonar.
Fólk hittist í stórmarkaði og á
í einlægum samræðum – eða er
það bara að tala við sjálft sig? Fólk
finnur vörur sem næra ekki bara
skrokkinn heldur andann líka og
finnur hluti sem gera það heil-
steyptara.
„Þú þekkir fólk á vörunum sem
það kaupir“, segir ekkert máltæki.
Fjölbreytt samstarfsverkefni
Þjóðleikhúsið er í samstarfi við ólíka
leikhópa, Leiktóna með sýninguna
Ég heiti Guðrún. Stertabenda með
sýninguna Insomnia. Leikkonur 50+
með sýningarnar Fjallkonan fríð
og Dansandi ljóð. Trigger Warning
með sýninguna Velkomin heim og
sviðslistahópinn Marble Crowd
með sýninguna Moving mountains.
ÍTARLEGAR UPPLÝSINGAR UM ALLAR
SÝNINGAR ÞJÓÐLEIKHÚSSINS ER AÐ
FINNA Á LEIKHUSID.IS.