Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Síða 66
66 MATUR 16. nóvember 2018
S
ælgætið Þristur hefur oftar
en einu sinni og oftar en
tvisvar hrósað sigri í fjöl-
miðlum þegar Íslendingar
eru beðnir um að velja sitt eftir-
lætis nammi. Saga Þristsins nær
aftur til ársins 1990 þegar hann var
fyrst framleiddur en það má segja
að fæðing hans hafi borið að með
óvenjulegum hætti.
„Við fengum bón um að gera af-
mælisköku með karamellukremi
og lakkrís. Hún var ofboðslega
góð,“ segir Jón Sigurður Kjartans-
son, sem stofnaði sælgætisgerðina
Kólus, sem framleiðir Þrist, ásamt
bróður sínum, Kjartani Páli, árið
1962. Út frá þessu var ákveðið að
byrja framleiðslu á Þrist, sem var
í raun þrjár tegundir af sælgæti
í einni sælgætisstöng. Á þessum
tíma var ekki orðið jafnvinsælt og er
í dag að framleiða sælgæti sem var
blanda af lakkrís og súkkulaði, og
sá fólk um það sjálft að kaupa sér til
að mynda Siríus-súkkulaðilengju
og Kólus-lakkríslengju og blanda
því tvennu saman. Þristur var því
mikil nýbreytni á íslenskum sæl-
gætismarkaði.
Gaf strákunum smakk í leikfimi
Jón segist aldrei hafa verið í vafa
um að Þristurinn myndi slá í gegn.
„Við vissum alltaf að þessi vara
væri einstök,“ segir hann, í hand-
skrifuðum svörum við spurningum
DV um Þrist. Jón verður áttræður
á næsta ári og vinnur enn í Kólus.
Hann vildi fremur handskrifa svör-
in þar sem hann hefur aldrei náð
almennilega tökum á tölvuskrifum.
Að eigin sögn gerir hann ekki mik-
ið lengur í framleiðslunni, en þar
eru synir hans, sem vinna einnig í
Kólus, hjartanlega ósammála.
Synir hans komu í raun við sögu
þegar Þristurinn varð til þar sem
einn þeirra, Kjartan Bergur Jóns-
son, stundaði þá nám í Árbæjar-
skóla. Faðir hans sendi hann með
prufu af Þrist í skólann einn daginn
og Kjartan gaf strákunum fyrstu
Þristabitana í leikfimitíma. Smakk-
ið sló í gegn og þá var ekki aftur
snúið.
Uppáhaldslitir afmælisbarnsins
Þristur hefur haldið sínum ein-
kennislitum, rauðum og gulum, frá
upphafi og hafa umbúðirnar nán-
ast ekkert breyst.
„Það sem selst vel, maður breyt-
ir ekki útliti á því. Það var afmælis-
barnið, sem fékk súkkulaðikökuna
frægu, sem hannaði umbúðirn-
ar. Þetta voru uppáhaldslitir þess,“
segir Jón.
En hvað með nafnið Þristur.
Kom eitthvert annað til greina?
„Nei, annað nafn kom aldrei til
greina.“
„Unnendur Þrists fara ekki í
pásu“
Margir muna eftir því að Þristurinn
var eingöngu seldur í litlum stykkj-
um þegar hann kom fyrst á mark-
að fyrir hartnær þrjátíu árum. Árið
1998 kom stærri gerð af Þrist á mark-
að og síðar var hann seldur í pokum.
Nýlega voru svo Þristakúlur settar
á markað, en óvíst er hvort Kólus
ætli að leika sér meira með Þrist-
inn í framtíðinni. Sælgætisframleið-
andinn þarf svo sem lítið á því að
halda þar sem velgengni Þristsins
virðist engan endi ætla að taka.
„Íslendingar eru bragðvís þjóð.
Þeir vita hvort gott er gott. Þristur
er alltaf jafn góður og salan jöfn.
Unnendur Þrists fara ekki í pásu,“
segir Jón aðspurður hvort salan
sé misjöfn á milli árstíða. Þá hafa
nammigrísir eflaust tekið eftir því
í gegnum tíðina að Kólus auglýsir
lítið sem ekkert vörur sínar.
„Þrist þarf einfaldlega ekki að
auglýsa,“ segir Jón og bætir við að
mörg tonn seljist á ári hverju þótt
hann vilji ekki gefa upp nákvæm-
ar tölur. Og þótt húsakynni Kólus
séu ekki ýkja stór er þar mögulegt
að framleiða átta Þrista á sekúndu
með nýjum vélum.
Fyrst við erum að tala um vin-
sældir Þristsins þá verð ég að spyrja
hvort Jón hvort hans fjölskylda hafi
aldrei haft áhyggjur af því að aðrir
nammiframleiðendur reyndu að
apa eftir gottinu. Hann segir það
eiginlega ekki hægt.
„Það er tæknilega séð ekki hægt,
nema að hafa okkar lakkrís.“
Toppurinn á Íslandsferðinni
Til marks um velgengni Þrists-
ins, og annarra vara Kólus, hef-
ur sælgætisframleiðandinn skilað
miklum hagnaði frá ári til árs og var
sá sælgætisframleiðandi sem kom
hvað best undan hruninu á Íslandi.
Jón segir hins vegar að Þrist hafi
aldrei verið ætlað að fara í útrás,
þótt útlendingar séu almennt
hrifnir af kruðeríinu. Þá dettur Jóni
í hug ein gömul skemmtisaga.
„Það komu til okkar þýskir
túristar, hjón sem höfðu áhuga á
að kaupa sælgæti og fara með það
heim í stórveislu sem þeim var
boðið í. Þau fengu að bragða Þrist
og fengu hringferð um fyrirtækið.
Þau sögðu þessa upplifun topp-
inn á Íslandsferðinni og sælgætið
það besta sem þau hefðu nokkru
sinni smakkað. Það sló líka í gegn í
veislunni. Nú halda þessi hjón ekki
Þristlaus jól. Það er bara þannig.“ n
Átta Þristar framleiddir á sekúndu
n Saga Þristsins rakin n Eitt vinsælasta nammi Íslands n Ekki hægt að stela því
„Við vissum
alltaf að
þessi vara væri
einstök
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Fyrst við erum að fjalla um sögu Þristsins ákváð-
um við að deila einni uppskrift þar sem Þristur er
í aðalhlutverki. Þetta Þristagott kemur úr smiðju
Maríu Gomez á paz.is og ætti að renna ljúflega
niður.
Botn – Hráefni:
300 g Þristar (einn poki + einn stór Þristur)
1 poki Apollo lakkrískurl svart (ekki fyllt eða með
súkkulaðihúð, bara „plain“ svart)
120 g smjör eða Ljóma
100 g Rice Krispies
Krem ofan á – Hráefni:
30 g smjör eða Ljóma
200 g hreint Milka-súkkulaði
Aðferð:
Bræðið saman Þrista og smjör í potti við vægan
til meðalhita og hrærið í á meðan. Þegar þetta
er alveg orðið bráðnað slökkvið þá undir pottin-
um. Bætið svo strax við Rice Krispies og lakkrís
og hrærið vel saman. Setjið svo í eldfast mót
með smjörpappa undir og setjið í frysti á meðan
kremið er gert. Bræðið nú saman yfir vatnsbaði
Milka-súkkulaði og 30 g smjöri. Takið þristagottið
úr frystinum og hellið súkkulaðikreminu yfir allt,
jafnt. Stingið aftur í frysti og leyfið
því að vera þar í eina klukku-
stund áður en það er
borðað (að minnsta
kosti, en má vera
mikið lengur). Takið
út um 15 mínútum
áður en þess er
neytt og leyfið að
standa á borði.
Skerið í litla bita
eftir þessar 15 mín-
útur og geymið svo
ávallt í frysti ef eitthvað
verður eftir.
Þristagott
Handskrifaða bréfið
frá stofnanda Kólus.
Húsakynni Kólus.