Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2018, Síða 78
78 16. nóvember 2018FÓKUS
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Gerður í Blush gengin út
Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush.
is, er komin með nýjan kærasta. Sá heppni heitir Jakob, 27 ára, og starfar
hann hjá WOW air.
Samkvæmt heimildum Fókus hefur parið verið að hittast í rúmt ár, en
haldið sambandinu fyrir sig, en nú er ástin komin á fullt flug og fregnir af
sambandi þeirra því farnar að spyrjast út.
Gerður skildi í fyrra við Hollendindinn Niels van der Voort, en þau voru
saman í fjögur ár í fjarbúð og flugu milli landa til að rækta sambandið. n
Anna Lilja nælir í athafnamann
Anna Lilja Johansen og Grímur Alfreð Garðarsson eru eitt af glæsilegri
pörum landsins. Parið hefur verið að hittast í nokkra mánuði og geislar af
ást og hamingju.
Anna Lilja giftist Þorsteini M. Jónssyni, sem ávallt var kallaður Steini í kók.
Ekkert var til sparað í brúðkaupi þeirra, athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju
og veislan í Súlnasal Hótel Sögu. Þremur árum síðar voru þau skilin.
Anna Lilja var einnig í sambandi með hæstaréttarlögmanninum Vilhjálmi
H. Vilhjálmssyni til nokkurra ára.
Grímur var giftur Helgu Árnadóttur, einum eigenda Best Seller-veldisins,
sem rekur meðal annars verslanirnar Vero Moda, Jack and Jones og fleiri
verslanir. Grímur hefur einnig verið öflugur í viðskiptalífinu og er meðal
annars einn eigenda fjárfestingarfélagsins Varða Capital. n
Simmi ekki lengur einhleypur
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, sem lengi var kenndur við Ham-
borgarafabrikkuna, skildi í vor eftir 20 ára samband.
Hann hefur nú fundið ástina að nýju í örmum lögfræðingsins Elínar G.
Einarsdóttur, sem starfar sem lögfræðingur hjá Mannréttindaskrifstofu
Íslands. Ástin geislar af parinu sem var nýlega saman í Abú Dabí.
Simmi seldi fyrr á árinu hlut sinn í Hamborgarafabrikkunni, en mun starfa
sem framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar og veitingastaðarins Shake &
Pizza út þetta ár. Simmi endar með stæl. Jólakökusjeik og pítsa með rifnu
hangikjöti og laufabrauði er „uppfinning“ sem hann býður gestum þar
upp á núna fyrir jólin. n