Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Page 10
8 6. júlí 2018FRÉTTIR B jörn Hlynur Pétursson er fyrsti karlmaðurinn á Ís- landi sem var lagður inn á göngudeild Landspítalans fyrir átröskunarsjúklinga. Frá unga aldri átti hann í erfiðleikum með sjálfsmynd sína og tók það sinn toll á andlegri og líkamlegri heilsu hans í áraraðir. Hann skammaðist sín fyrir að vera í yfirþyngd og glímdi við lotugræðgi og lystarstol. Blaðamaður settist niður með Birni þar sem hann fór yfir reynslu- sögu sína, sem að hans sögn er hlaðin sorg en í senn ákveðinni gleði. Segir hann að það sé algeng- ur misskilningur að halda því fram að sjúkdómar af þessu tagi snúist um að þola ekki mat. Í hans tilfelli var það þveröfugt. „Ég elska mat, en ég kunni mér ekki hóf vegna lotugræðginn- ar,“ segir Björn og fullyrðir að oft hafi komið fyrir á þessum tíma að hann hafi keypt sér sextán tommu pitsu og tvo lítra af ís, sem var hvort tveggja borðað á skömm- um tíma. Þá segir hann að búlimí- an hafi komið inn í myndina og var matarreikningurinn farinn að slaga upp í verulega háa tölu. Svo ældi ég þessu öllu strax eftir að ég borðaði. Kennarinn hlustaði ekki „Mín hlið á þessu átröskunar- dæmi er að þetta er mynstur sem allir með svona geðröskun upp- lifa,“ segir Björn og að þetta skipt- ist í nokkra flokka. „Þetta er lotu- græðgi, þetta er anorexía og þetta er búlimía og oftar en ekki helst þetta allt í hendur. Þú tekur kannski eitt ár í einu, eitt ár í öðru, nokkra mánuði í þessu en mynstr- ið er alltaf eins.“ Um tólf ára aldurinn var Björn greindur með ofvirkni, þunglyndi og kvíða. Þá var hann í kringum 110 kíló að þyngd. Líf hans átti eftir að versna til muna og hófst það allt með lyfjunum sem læknar skrif- uðu á hann. „Þessi lyf breyttu mér og ég fann fyrir miklum aukaverkun- um,“ segir hann. „Ég var í skól- anum einn daginn og sagði við kennarann að mér væri flökurt og ég þyrfti að æla. Kennarinn hlust- aði ekki á það þannig að ég ældi á gólfið og borðið fyrir framan alla í bekknum.“ Í framhaldi af þessu var Björn alltaf spurður hvort ekki væri allt í lagi ef hann setti upp einhver svip- brigði. Honum fannst það óþægi- legt og það leiddi til þess að hann vildi ekki fara í skólann. Hann fór á slæman stað á þessum tíma en hann tekur fram að síðar hafi hann sæst við kennarann. Sífellt „dröggaður“ og nálægt gröfinni „Með tímanum fór mér að finn- ast ég laða að mér geðraskanir. Ég var með bullandi ADHD og kvíða- röskun og fer í úrræðismeðferð tengda þessu þegar ég var í kring- um tvítugt,“ segir hann. „Ég fór að vilja flottan og heilbrigðan líkama og vildi gera eitthvað í málunum. Ég setti mér fyrst það markmið að vera 90 kíló og svo 80 kíló, en ég var aldrei sáttur,“ segir hann. „Ég byggði upp vöðvamassa og náði góðum árangri, svo fór ég í öfgana, fór að kötta út fæðutegundir og mæta í ræktina í allt að fimm klukkutíma í senn, sem er auðvit- að ekki eðlilegt. Ég bara stoppaði ekki.“ Samkvæmt Birni stýrðist ýmis- legt í lífi hans af ótta, þá sérstak- lega ótta við höfnun. Hann reyndi að hylja ástand sitt fyrir öðrum, sérstaklega fyrir foreldrum sínum. Hann skammaðist sín mikið fyrir allt sem hann lét ofan í sig og hélt að hann myndi þyngjast við það eitt að drekka vatn. Borðaði ekki mat í heila viku Jafnframt tekur hann fram að kom- ið hafi fyrir að heil vika hafi liðið án þess að hann borðaði nokkurn mat. „Foreldrar mínir voru farn- ir að fylgjast vel með mér þegar ég fór á klósettið, á því tímabili þegar geðröskunin var sem verst. Ég leysti það með því að æla ofan í stútinn á kókflöskum. Svo faldi ég flöskuna á bakvið rúmið eða ein- hvers staðar. Þetta var ekki eins- dæmi bara hjá mér. Þetta er líkt og fíkill sem setur birgðir af draslinu sínu til hliðar og finnur það síðar,“ segir hann. „Ég var alltaf tilbúinn til þess að segja við sjálfan mig: „Ég býst við því versta en ég vona það besta.“ Ég átti rosalega erfitt með að treysta fólki. Það var bara eins og ótt- inn stjórnaði öllu hjá mér. Það fór mjög illa í mig að sjá hvernig fjöl- skyldu minni leið, ég var uppfullur af ranghugmyndum, laug að fólki og meira að segja trúði ég sjálfur lyginni í mér. Þráhyggjan var mikil, ég kannski var að reyna setja á mig belti í allt upp í korter, taldi skref- in niður stigann og bakkaði alltaf um eitt þegar ég steig tvö niður. Þráhyggja er afleiðing kvíða. Líf- ið var í algeru rugli og mér fannst ég stundum vera fyrir utan líkama minn. Ég var sífellt „dröggaður“ á lyfjum sem læknarnir gáfu mér. Ég man eftir Rítalín, Konserta, Lyrica, róandi og nokkrum fleirum. Svo var lífsviljinn orðinn svo lítill að ég var farinn að taka þetta allt. Ég var á leiðinni í gröfina og var alveg sama,“ segir hann. „Þegiðu og taktu þetta svo við getum umgengist þig“ Að sögn Björns er hann á móti lyf- jameðferðum í dag. „Ég var á rosa- lega mörgum lyfjum og læknarnir sögðu við mig að ég gæti ekki hætt á lyfjunum því að þá yrði ég ekki í eðlilegu fari. Ég var búinn að vera á lyfjum síðan ég var tólf ára og ég hætti þeim öllum þegar ég varð tvítugur. Öllum. Ég var kannski að taka í kringum níu sortir af lyfjum. Puttarnir mínir voru nánast orðn- ir gulir af lyfjanotkun,“ segir hann. „Það eru margar ástæður fyrir því að ég vil síður taka lyf við mín- um geðröskunum. Þau hafa far- ið illa í mig, ég hef fengið slæm- ar aukaverkanir og oftast hefur mér fundist þau ekki virka á mig. Í dag er ég í meðferð hjá geðlækni sem gefur mér þunglyndislyf. Þau virka ekki á mig en ég er samt að taka þau, aðallega vegna þrýstings frá aðstandendum. Ég held að ég þurfi að komast í meðferð hjá góð- um sálfræðingi en það er ekki séns að maður geti það á meðan tíminn er á um 15 þúsund kall.“ Um leið og Björn ákvað að hætta á öllum lyfjunum fann hann fyrir litlum rafkippum í hausn- um á sér, sem hann lýsir sem frá- hvörfum. Eftir erfitt tímabil voru hlutirnir farnir að breytast til hins betra. Honum leið betur og fann að hann var jarðbundnari. Hann fékk leið á óttanum og setti sér það markmið að hugsa um sig sjálfan. „Það er ótrúlega þreytandi að vera kvíðinn, hnúturinn er svo stór inni í manni og bara mikill sársauki. En ég hef náð að halda átröskuninni í skefjum. Ég er í kjörþyngd í dag, en ég hef aldrei náð að mastera mataræði mitt. Það er hægt að lifa með þessu þetta, en þetta verður alltaf partur af þér og það er stutt á milli þess að borða „rétt” eða fara út í eitthvað rugl.“ Svaf bara klukkustund á sólar- hring allar helgar Björn fór reglulega til lækna en fannst þeir aldrei gera neitt gagn. „Mér leið eins og ég væri eitthvað vandamál sem væri ekki hægt að leysa. Ég var ekki tilbúinn til að láta lækna segja mér hvað ég átti að gera. Ég var ekkert tilbúinn til að sleppa lífi mínu en í rauninni lifði ég bara í blekkingu því ég var ekki að lifa lífinu. Ég var fangi sjúk- dóms, sem gerði það að verkum að ég átti ekkert eðlilegt líf. Ég vildi ekkert stíga út úr því, því mér leið illa með sjálfan mig. Ég var alltaf „Á leiðinni í gröfina og var alveg sama“ n Björn Hlynur glímdi við lotugræðgi og lystarstol n Greindist með ofvirkni, þunglyndi og kvíða Tómas Valgeirsson tomas@dv.is ERT ÞÚ AÐ SMÍÐA PALL ? Pallinn upp á einfaldari hátt með jarðvegsskrúfum „Ég leysti það með því að ég æla ofan í stútinn á kókflöskum. Svo faldi ég flöskuna á bakvið rúmið eða einhvers staðar. Björn Hlynur á yngri árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.