Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2018, Síða 33
SnæfellsnesHelgarblað 6. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ
LANGAHOLT:
Heimilislegt gistihús –
ljúffengur matur
Langaholt er fjölskyldufyrirtæki í landi Ytri Garða á sunnanverðu Snæfellsnesi og húsráðendur eru
Rúna Björg og Keli Vert. Áhersla er lögð
á heimilislegan anda á Langaholti og
þar er notalegt að gista og snæða.
Fjörutíu herbergi eru í Langaholti og
svefnpláss fyrir yfir 80 manns. Að sögn
Kela er mikill meirihluti gesta erlendir
ferðamenn. „Þetta er þannig staður að
við erum í erlendu túristunum og þeir
eru hryggjarstykkið í öllu hér. En það er
bæði áhugavert og í raun skylda fyrir
Íslendinga að ferðast um Snæfellsnesið
og kynnast því. Ef þú ert að koma hing-
að úr höfuðborginni þá geturðu gert
margt og mikið á einum degi og komið
heim aftur að kvöldi. Slíkt ferðalag get-
ur gert þann dag stóran og upplífgandi
og svo er ekki úr vegi að fá sér að borða
í leiðinni.“
Langaholt liggur töluvert sunnar
en hin þekktu sjávarþorp sem eru á
Snæfellsnesi, Ólafsvík, Hellissandur og
Stykkishólmur, og tekur hámark tvær
klukkustundir að aka þangað frá höfuð-
borgarsvæðinu.
Gera gott úr því sem í grenndinni er
Veitingastaðurinn að Langaholti er öll-
um opinn, jafnt þeim sem gista og þeim
sem eiga leið um svæðið. Er hann opinn
frá morgni til kvölds. Morgunverður er
framreiddur frá 7 til 10 og segir Keli að
auk hótelgestanna séu margir af tjald-
svæðinu í grenndinni sem nýti sér það.
„Frá hádegi og fram eftir degi er
þetta síðan heldur einfaldari matseðill
sem er í gangi, það er súpa og á þess-
um tíma selst líka mikið af plokkfiski. Frá
klukkan sex til níu á kvöldin er síðan stór
matseðill í gildi,“ segir Keli.
En hvað einkennir matseldina á
Langaholti?
„Staðbundið er lykilorð hér. Og svo
er þetta fyrst og fremst fiskiveitinga-
staður. Hér bjóðum við upp á það sem
kemur úr hafinu á Snæfellsnesi. Við
kaupum sjávarfang ferskt af fiskmörk-
uðum, bláskelin kemur úr Breiðafirði frá
manni sem ræktar hana þar, og hér er
ekkert af fiski sett í frost, allt hráefni er
ferskt.
Þetta er líka mikið fullvinnslueldhús,
við marínerum allt meira og minna sjálf,
gerum allar sultur og kæfu sjálf, allan
bakstur önnumst við. Og við tökum
skepnuna með hausi og hala og nýtum
allt sem við mögulega getum af henni.
Hér gildir að gera sér að góðu það sem
í grenndinni er og gera gott úr því.“
Ljóst er að Langaholt er kjörinn
áningarstaður fyrir þá sem eiga leið um
Snæfellsnes, hvort sem er til að njóta
náttúrunnar þar í kring, snæða mat úr
héraði á góðum veitingastað eða gista
við notalegar og heimilislegar aðstæð-
ur.
„Á svona stórum gististað eru
alltaf einhver pláss laus,“ segir
Keli. Langaholt er á öllum helstu
bókunarsíðum en það er líka
hægt að hringja í síma 435
6789, kanna hvað er laust
og bóka herbergi.
Sjá nánar á vefsíðunni
langaholt.is.
Keli flakar lúðu.