Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Page 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
28. september 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Íslenska drauga og forynjur á hrekkjavöku!
Í
gegnum tíðina hefur október
alltaf verið ömurlegur mánuður.
Eini ljósi punkturinn er sá að ég á
afmæli í október en að öðru leyti
er brauðstritið í hámarki og frekar
langt í aðventuna. Það var þó áður
en dásamlegur en ævaforn kelt-
neskur siður hóf innreið sína inn
í íslenskt samfélag, hrekkjavakan.
Skyndilega er 31. október orðinn
einn skemmtilegasti dagur ársins,
að minnsta kosti á mínu heimili.
Því miður hafa margir horn í
síðu hrekkjavökunnar. Ein ástæð-
an er sú að vissulega höfum við
einhvers konar hrekkjavökuígildi í
öskudeginum okkar en því miður
erum við búin að klúðra þeim degi
gjörsamlega með því að afnema
öskupokamenninguna. Það þarf
að draga einhvern til ábyrgðar fyrir
það!
Veigameiri ástæða er líklega
sú að Bandaríkjamenn hafa tekið
þessari hátíð fagnandi og gert hana
heimsfræga. Margir eru á þeirri
skoðun fátt gott komi úr vestri.
Þegar kemur að hátíðarhöldum þá
ganga Bandaríkjamenn oftar en
ekki alla leið og því hafa útskorin
grasker, köngulær og afturgöngur
orðið táknmyndir hátíðarinnar
sem og sá siður að ganga á milli
húsa og krefja íbúa um sælgæti
ellegar verða fórnar lömb útsmog-
inna hrekkja. Þessum sið hafa verið
gerð rækileg skil í hinum ýmsu
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Þetta er bandarísk lágmenning eins
og hún er best og áhrifin eru greini-
leg á hvernig Íslendingar fagna há-
tíðinni.
Að mínu mati erum við þó að
missa af frábæru tækifæri til þess
að rifja upp íslenskar þjóðsögur
og fræða börnin okkar á skemmti-
legan hátt. Það er nefnilega þannig
að það eru til ógrynnin öll af ís-
lenskum sögum um drauga og
forynjur. Fyrr á árum voru þessir
draugar á hvers manns vörum en
núna er líklegra að börn og ung-
lingar þekki allar ofurhetjur Mar-
vel-heimsins með nafni frekar
en hrollvekjandi sögu djáknans á
Myrká, hrikaleg örlög Miklubæjar-
Sólveigar og angist Runkhúsa-
Gunnu.
Ég held því að hægt sé að ná
þjóðarsátt um að blása í herlúðra
varðandi markaðsetningu á íslensk-
um hryllingi á hrekkjavökunni. Ís-
lenskir frumkvöðlar þurfa bara að
vaða í verkið og jafnvel gæti hið
opin bera styrkt verkefnið að ein-
hverju leyti. Peningum hefur að
minnsta kosti verið dælt í margt
vitlausara til þess að freista þess
að vernda íslenska menningu og
tungu.
Þegar hrekkjavökunni var fagnað
í fyrra gekk ég með krökkunum mín-
um upp að húsi einu í Garðabæ
þar sem einhvers konar vélknúin
fuglahræða með graskershöfuð garg-
aði á okkur: „Grikk eða gott“ á enskri
tungu. Krökkunum fannst þetta mjög
skemmtilegt en sjálfur hefði ég svo
gjarnan viljað sjá dökklædda veru
segja með með drungalegri röddu:
„Máninn líður, dauðinn ríður; sérðu
ekki hvítan blett í hnakka mínum,
Garún, Garún?“ n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Fáfróð Elfa Ýr
Falsfréttir á íslensku um ágæti
Bitcoin fara nú eins og eldur í
sinu um netheima. Fjölmiðlar
hafa vakið athygli á málinu
enda ber að upplýsa almenn-
ing um slíkar svikamyllur og
hefur DV margsinnis flutt frétt-
ir af falsfréttum á íslensku þar
sem þjóðþekktir einstaklingar
koma við sögu. RÚV ræddi
við Elfu Ýri Gylfadóttur, fram-
kvæmdastjóra Fjölmiðlanefnd-
ar, um málið á miðvikudag.
Fjölmiðlanefnd á að hafa
eftirlit með falsfréttum og hef-
ur Elfa Ýr sjálf tekið þátt í pall-
borðsumræðum um falsfréttir.
Því vakti það óneitanlega
athygli þegar hún sagði í sam-
tali við RÚV að hún hefði aldrei
fyrr séð falsfréttir á íslensku.
Það má því fullyrða að einhver
fáfræði sé á ferð hjá Elfu Ýri og
Fjölmiðlanefndinni.
Daðrað við Pawel
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi
Viðreisnar, og Ragnhildur Alda
M. Vilhjálmsdóttir, varaborgar-
fulltrúi Sjálf-
stæðisflokk-
ins, mættust í
útvarpsviðtali
fyrir skemmstu.
Umræðuefnið
var Borgarlínan sem var eitt
helsta hitamál fyrir kosningar
en lítill ágreiningur virðist nú
vera um.
Voru þau meira
og minna sam-
mála um efnið
en ósammála um
orðalag.
Það sem vakti
athygli var hversu alúðlegt við-
talið var þar sem Ragnhildur
virtist daðra við Pawel. Sagði
hún til dæmis að Pawel hefði
aðstoðað hana í jómfrúar-
ræðunni.
Ragnhildur sagðist eftir við-
talið hafa biðlað til Pawels að
„hætta þessu Viðreisnarrugli“
og koma aftur heim. Henni
varð þó ekki að ósk sinni.
„Hann sagði nei og hjólaði á
brott á fagurbláa hjólinu sínu.“
Spurning vikunnar Hvaða lag viltu að verði spilað í jarðarförinni þinni?
„Lagið hans Vilhjálms, Söknuður“
Margrét Konráðsdóttir
„Stone in Focus með Aphex Twin“
Steinar Fjeldsted
„Það er negrasálmur, ég man ekki hvað hann heitir“
Sveinbjörn Björnsson
„Ég hef ekki spáð í það“
Silja Brá Guðlaugsdóttir
Djákninn
á Myrká