Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Side 23
FÓLK - VIÐTAL 2328. september 2018 að systkinunum, teikningu, tónlist og fleira og því ekki undarlegt að Ari hafi fundið sinn farveg í sköp- un. „Þetta þótti óvenjulegt heim- ili miðað við heimili skólasystk- ina minna. Það var alltaf mikið í gangi, mamma og pabbi töluðu alltaf rússnesku sín á milli og við systkinin vorum asísk í útliti eins og mamma, en það var mjög sjald- gæft í Reykjavík á þessum tíma. Það var oft mikið fjör á heimil- inu og þess vegna stungum ég og eldri bróðir minn oft af til ömmu minnar, Ragnheiðar Möller, eftir skóla og um helgar. Mér fannst alltaf mikil vernd í því. Hún var með stórt og mikið hjarta, elskaði okkur óendanlega líkt og við hana og hún fór með okkur á endalausa menningarviðburði, frá ungversk- um ljóðalestri í Háskólabíói á Superman.“ Hvernig barn varst þú? „Ég var mjög fjörugur. Eyvindur Erlendsson, leikstjóri og vinur pabba, sagði fyrir mörgum árum að hægt hefði verið að sjá skóförin í loftinu eftir mig, lætin og hama- gangurinn væri slíkur að hann skildi ekkert í þolinmæði föð- ur míns gagnvart náttúruaflinu í barninu. Ætli maður hefði ekki verið settur á lyf í dag og kominn með einhverjar greiningar,“ segir Ari og brosir. „Ég var uppátækja- samur og ævintýragjarn.“ Þú minnist á asíska útlitið. Lentir þú einhvern tímann í for- dómum vegna þess? „Ég upplifi mig alltaf svolítið eins og útlending, alls staðar. Þegar ég var yngri var alltaf sagt við mig að ég hlyti að vera útlendingur og ég spurður hvaðan ég væri því ég talaði svo góða íslensku. Þegar ég svaraði Síberíu þá vissi enginn hvar það var. Ég hef aldrei lent í alvarlegu einelti en þurfti oft að hlusta á rasistaathugasemdir sem ég leiddi mismikið hjá mér. Ég var stór fyrir minn aldur og var fljótur að svara fyrir mig. Síðan var syst- ir mín sætasta stelpan í hverfinu og allir strákarnir voru skotnir í henni,“ segir Ari og brosir. „Það var vernd í því. En ég fann alltaf fyrir því að vera öðruvísi, þessi skrýtna skrúfa, og það herti mig. Á ung- lingsárunum hjálpaði það nú að vera svolítið öðruvísi,“ segir hann kíminn á svip. Missti ömmu og pabba á sviplegan hátt Ari segir að vegna þess fjörs sem fylgdi listamannslífinu hafi for- eldrar hans á endanum skilið. Nokkru seinna, þann 4. febrúar árið 1979, þegar Ari var aðeins ell- efu ára gamall, missti hann Ragn- heiði, ömmu sína, á sviplegan hátt. „Við vorum á amerískri kvik- myndahátíð á Hótel Loftleiðum, við bróðir minn, sem var tólf ára, og amma. Við sátum þar á veitinga- staðnum og vorum að borða þegar hún fékk skyndilega hjartaslag og lést fyrir framan okkur, á gólf- inu,“ segir Ari meyr. „Kallað var á lækni og síðan kom sjúkrabíll og tók hana og við bróðir minn stóð- um þarna agndofa, engin talaði við okkur. Allt í einu sagði einhver maður: voru ekki þessir drengir með henni? og hann keyrði okkur heim. „Þetta fékk mjög á mig. Ég var ekki aðeins að missa ömmu mína heldur minn besta vin.“ Ellefu mánuðum síðar dundi annað áfall yfir. Eftir skilnaðinn flutti faðir hans til Bandaríkjanna en hann ætlaði þá að skipta um starfsvettvang og snúa sér að sál- fræði. Hann var við framhalds- nám ytra þegar hann féll frá eftir hjartaáfall aðeins 41 árs gamall. „Hann hafði fengið vægt áfall skömmu áður og læknarnir voru búnir að segja honum að slaka á. En hann var mikill orkubolti og gat það ekki. Svo dó hann bara, var brenndur og fluttur heim í krukku.“ Þetta hefur verið erfiður tími? „Já, þetta var í fyrsta skipti sem ég upplifði það að fólk gæti farið úr þessari veröld. Það var áfallið og síðan var ekkert unnið með þetta. Ég man eftir að mamma faðmaði mig en svona hlutir voru ekkert ræddir á þessum tíma, þetta var bara grátið út í koddan- um. Það var fleira í gangi á þess- um tíma. Mamma hafði kynnst öðrum manni sem ég kunni ekki vel við og við höfðum flutt til Ár- ósa í Danmörku. Eitt kvöldið í des- ember kom skeyti heim til okk- ar, mamma var með leikhóp úti á landi og við systkinin ein heima. Skeytið kom frá Friðriki Páli, föð- urbróður mínum, og bað hann mömmu um að hringja strax því alvarlegir atburðir hefðu átt sér stað. Það var engin sími á heimil- inu þannig að við fórum út í síma- klefa til að hringja og Friðrik Páll þurfti að tilkynna okkur að pabbi hefði dáið í Bandaríkjunum.“ Ósýnilegi vinurinn og Erró Þegar Ari var barn átti hann ósýni- legan vin í kjallaranum heima hjá sér. Hann sagði Ragnheiði ömmu sinni frá þessum vini sínum og hún tók því mjög rólega en af miklum áhuga og spurði mig hvað hann myndi gera. „Ég sagði henni að hann væri geimfari og hún svaraði: já, er hann það? og leyfði ímyndarafli mínu að þenjast út í ystu æsar um hver hann væri og hvaðan hann kæmi.“ Ragnheiður fór með Ara mörg- um árum seinna á listsýningu Errós á Kjarvalsstöðum, árið 1978, þar sem hann sýndi verk úr geim- faraseríunni sinni og Ari tengdi þetta strax við sinn ósýnilega vin. „Þarna kom þetta saman, ég tengdi svo sterkt við þetta því þarna var alheimurinn minn. Þessi geimfarasýning var því eins konar uppljómun og ég • Bókhald • Afstemmingar • Ársreikningar BÓKHALD • Launavinnsla • Árshlutauppgjör • Virðisaukaskattsskil 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 „Kallað var á lækni og síðan kom sjúkrabíll og tók hana og við bróðir minn stóð- um þarna agndofa, engin talaði við okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.