Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Síða 32
Íslensk framleiðsla 28. september 2018KYNNINGARBLAÐ
URTA ISLANDICA:
Sælkeravörur úr íslenskri náttúru
Við höldum okkur við það að bjóða upp á fallega matargjafavöru sem fólk getur gefið í tækifær-
isgjafir í staðinn fyrir hina klassísku
vínflösku. Vörurnar eru í boði í fallegum
umbúðum, bæði litlum fyrir tækifæris-
gjafir og stærri fyrir heimili eða fyrirtæki.
Einnig getum við boðið upp á sérmerk-
ingar sem er sérstaklega gaman fyrir
t.d. gjafir í brúðkaupum eða fyrir fyrir-
tæki sem vilja gefa upplýsingarnar um
sig í öðru formi en hinu klassíska nafn-
spjaldi,“ segir Guðbjörg Lára Sigurðar-
dóttir hjá fyrirtækinu Urta Islandica.
Einkunnarorð fyrirtækisins er
„Sælkeravörur úr íslenskri náttúru“ og
eru vörurnar vinsælar bæði hjá erlend-
um ferðamönnum og Íslendingum.
„Við sérhæfum okkur í íslenskum
jurtum og berjum. Síðan framleiðum
við íslensk jurtakryddsölt þar sem við
blöndum berjunum og jurtunum við
saltið. Þetta er allt handtínt og pakkað.
Við erum sem sagt með jurtakryddsölt,
síróp, sultur, kex og jurtate – og nær
vörulínan okkar yfir 200
vörutegundir. Það nýjasta
er framleiðsla á sírópi úr
íslenskum jarðsjó en
fyrstu afurðirnar úr
þeirri línu eru
væntanlegar,“ segir Lára.
Urta Islandica er með starfsstöðvar
á þremur stöðum og selur vörur sínar
í verslanir úti um allt land. Auk þess er
vefverslun á síðunni urta.is þar sem
jafnframt má fræðast um fyrirtækið
og vörurnar. Urta Islandica er ekta
fjölskyldufyrirtæki en stofnendur eru
hjónin Þóra Þórisdóttir og Sigurður
Magnússon. Á heimili þeirra hjóna að
Austurgötu 47 í Hafnarfirði var fyrir-
tækið stofnað og þar er ennþá
tilraunaeldhús, skrifstofa og verslun.
Lára dóttir þeirra sér um markaðs-
mál og hönnun en bræður hennar
tveir starfa við framleiðsluna. Þá
eru einnig fimm aðrir starfsmenn í
Urta-fjölskyldunni.
„Við erum með flotta framleiðslu-
aðstöðu að Básvegi 10 í Reykjanesbæ
og þar getur fólk fengið að horfa inn
í framleiðsluferlið jafnframt því að
skoða vöruúrvalið í verslun okkar á
staðnum. Verslunin og framleiðslan
á Básvegi gengur undir nafninu
Sjóbúð, en þar eru framleidd öll okkar
jurtakryddsölt, jurtasíróp, sultur og
þar erum við einnig með okkar eigin
borholu með íslenskum matvælavott-
uðum jarðsjó.“
Önnur framleiðslustöð er síðan að
Hafnarbraut 11 á Höfn í Hornafirði, í
gömlu sundlaug Hornfirðinga, þar fer
fram öll jurtavinnsla og framleiðsla á
jurtatei.
Fyrirtæki í sífelldri þróun
„Við höfum þróast mikið í kringum
ferðamannastrauminn en undanfarið
höfum við verið að vinna okkur í átt að
útflutningi og það er næsta skref,“ segir
Lára. Hún segir frá því að sírópið frá
Urta Islandica sé mjög vinsælt í mat-
vælaframleiðslu og á veitingastaði, t.d. í
kokteila, skyr og íssósur.
„Jurtakryddsaltið er vinsælasta afurð
Urta Islandica í dag, þá má nefna hið
sívinsæla Black Lava-salt, sem fer vel
og lítur glæsilega út með öllum mat.
Vörulínurnar okkar eru fjölbreyttar og
það ættu allir geta fundið sitt uppáhald.
Fyrirtækið er í stanslausri þróun og bú-
ast má við spennandi
nýjungum frá því í
framtíðinni.
Sjá nánar á
urta.is.