Fréttablaðið - 29.01.2019, Síða 8
Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Þungunarrof
er vafalaust
siðferðilegt
álitaefni, en
það verður
seint talið
siðferðilegt
vandamál.
Fyrir okkur
Íslendinga er
mikilvægt að
þekkja til
sjónarmiða
nágranna
okkar og vina
á vestnorræna
svæðinu.
Mikið umrót hefur einkennt stöðuna í alþjóðamálum á undanförnum árum. Við förum ekki varhluta af því hér á okkar
norðlægu slóðum, hvort sem litið er til sviptivinda
í alþjóðastjórnmálum eða afleiðinga hnattrænnar
hlýnunar.
Við þurfum að vera vakandi fyrir þessum breyt
ingum og leggja okkur fram við að skilja þær og geta
brugðist við þeim.
Í þessari viku gefst okkur kærkomið tækifæri til
þess að kryfja þessi mál til mergjar á þemaráðstefnu
Vestnorræna ráðsins sem að þessu sinni fer fram á
suðvesturhorni Íslands.
Margt sem sameinar
Vestnorræna ráðið er samstarfsráð þjóðþinga
Íslands, Færeyja og Grænlands. Það kemur saman
tvisvar á ári, um þetta leyti til þemaráðstefnu og til
ársfundar í haustbyrjun. Samstarfið er okkur öllum
mjög mikilvægt. Margt er það sem sameinar okkur
en ýmislegt er líka ólíkt milli landanna.
Á morgun, miðvikudag, boðar Vestnorræna ráðið,
ásamt samstarfsaðilum, til þemaráðstefnu í Norræna
húsinu þar sem allir eru velkomnir. Þar ætlum við að
ræða stöðu vestnorrænu ríkjanna í breyttum heimi
alþjóðastjórnmála. Á ráðstefnunni koma saman
helstu sérfræðingar á svæðinu og velta umræðuefn
inu fyrir sér. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna
á vefsíðu Vestnorræna ráðsins, vestnordisk.is.
Upptaktur frekari umræðna
Við búumst ekki við neinni lokaniðurstöðu á
morgun, miklu heldur að ráðstefnan verði upptaktur
frekari umræðna í samfélögum okkar. Fyrir okkur
Íslendinga er mikilvægt að þekkja til sjónarmiða
nágranna okkar og vina á vestnorræna svæðinu og
átta okkur á því hvernig við saman getum eflt sam
starfið og styrkt stöðu ríkjanna þriggja í breyttum
heimi.
Staða vestnorrænu
ríkjanna í breyttum heimi
Guðjóns S.
Brjánsson
alþingismaður
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
Blótað hjá blaðamönnum
Þorrablót Miðflokksins verður
haldið á föstudagskvöld í sal
Blaðamannafélagsins, af öllum
stöðum enda vandfundinn
félagsskapur sem er jafn gefinn
fyrir upplýsingaleka hvers konar.
Blótsgestum er því vissara að
gæta tungu sinnar þar sem ekki er
útilokað að salurinn sé vel búinn
upptökutækjum. Matseðillinn er
eðli málsins samkvæmt ákaflega
þjóðlegur og gæti allt eins verið
sérhannaður af flokksformann-
inum, Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni, en á borðum verða
meðal annars súrir lundabaggar,
hrútspungar, sviðasulta, hvalur,
sviðakjammar, hangikjöt, blóð-
mör og lifrarpylsa, sviðasulta,
hákarl, harðfiskur og rófustappa.
Allar helstu kræsingar íslenska
kúrsins. Namminamm!
Mountain Dew í vasapela?
Kaffi er eini drykkurinn á mat-
seðlinum enda Miðflokksfólk
undir smásjá þegar áfengi er
annars vegar og heillavænlegt
að takmarka framboð á öllu
slíku. Sérstök athygli er vakin á
því að „drykkir eru ekki seldir á
staðnum“ og gestum bent á „að
koma með sína eigin drykki“.
Hvort gestir treysti sér til þess
að sporðrenna hákarli án þess
að íslenskt brennivín fylgi með
mun því væntanlega ráða mestu
um innihald vasapelanna. Verði
skynsemin látin ráða er upplagt
að fylla á með Mountain Dew,
eftirlætisgosdrykk formannsins.
thorarinn@frettabladid.is
Umsagnarfrestur fyrir frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á lögum um þungunarrof – frumvarp sem í óbreyttri mynd heimilar þungunarrof til loka 22. viku þungunar – er liðinn og ef það er eitthvað
sem blasir við þegar rýnt er í innsend erindi þá er það
sú staðreynd að trúfélög eiga lítið erindi í þarfa umræðu
um líkamlegt sjálfræði kvenna. Þetta ætti svo sem ekki
að koma neinum á óvart, enda hafa boðberar fagnaðar
erindis af öllum gerðum gert tilkall til yfirráða yfir
æxlunarfærum kvenna í gegnum aldirnar. Á sama tíma
er gleðilegt að sjá þau jákvæðu viðbrögð sem frumvarpið
fær frá þeim sem löngun hafa haft til að kynna sér málið
af yfirvegun.
Umræðan um þungunarrof verður aldrei einföld.
Því sem betur fer eru skiptar skoðanir um málið. Við
erum nefnilega svo lánsöm að búa í lýðræðislegu fjöl
hyggjusamfélagi þar sem allir eiga rétt á að koma sínum
skoðunum á framfæri. En til þess að eiga farsæla umræðu
um þungunarof þurfum við að hafa í huga hver kjarni
málsins er í raun og veru.
Í gær voru 84 ár síðan Ísland varð eitt fyrsta landið í
heiminum til að lögleiða fóstureyðingar. Erfiður veru
leiki fóstureyðinga hefur verið hluti af okkar samfélagi
í hartnær öld, og engin breyting mun verða þar á í fyrir
sjáanlegri framtíð. Umræðan um fóstureyðingar snýst
því um ákveðna grunnþjónustu í okkar samfélagi og
hvernig við veitum hana með skilvirkum og skynsam
legum hætti þar sem við virðum sjálfsákvörðunarrétt
verðandi mæðra og, umfram allt, treystum dómgreind
þeirra. Okkur ber skylda til að veita konum sem finna
sig í þeirri átakanlegu stöðu að taka ákvörðun um fram
hald þungunar bestu mögulegu þjónustu, líkamlega og
andlega.
Það frumvarp sem nú er til umræðu byggir greinilega
á þessari mikilvægu hugsjón og hún virðist vandlega rök
studd af nýjustu vísindum og þekkingu á þessu sviði. Og
um leið ber að hafa í huga að örfá tilfelli á ári koma upp
þar sem þungunarrof eftir 22. viku meðgöngu er gert. En
með rýmri viðmiðunartíma fá verðandi foreldrar mun
betri mynd af stöðu mála og heilsu ófædds barns.
Þungunarrof er vafalaust siðferðilegt álitaefni, en það
verður seint talið siðferðilegt vandamál. Sem álitamál á
það erindi í upplýsta umræðu um hvenær líf raunveru
lega kviknar; af hverju sum pör vilja ekki eignast börn
sem líklega munu glíma við fötlun, hver réttur ófædds
barns er og önnur margslungin siðferðileg álitaefni.
Baráttufólk fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna sem og
þau sem eru á öndverðum meiði ættu að vera óhrædd
við að ræða þessar mikilvægu spurningar. Það er hér,
á vettvangi sálgæslu og stuðnings, sem trúfélög eiga að
beita sér, líkt og þau hafa gert svo ágætlega í aldanna rás.
Í komandi umræðu um þungunarrof munum við
fylgjast með þeim sem sjá pólitísk sóknarfæri í fordæm
ingunni. Þau munu lítið hjálpa við að afmá þá skömm
sem margir upplifa við þungunarrof og munu gera lítið
úr þeim félagslegu aðstæðum sem oft og tíðum búa að
baki ákvörðuninni. Þau sem raunverulega hafa áhuga
á að hjálpa til munu yfirgefa skotgrafirnar, viðurkenna
sjálfsákvörðunarrétt kvenna og stuðla að upplýstri
ákvarðanatöku.
Sjálfræði
2 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
B
-A
7
6
C
2
2
2
B
-A
6
3
0
2
2
2
B
-A
4
F
4
2
2
2
B
-A
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K