Fréttablaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 10
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS? Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með 3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél, 580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að framan og aftan, regn- og birtuskynjara, Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum. Volkswagen Amarok verð frá 8.290.000 kr. Hannaður með þarfir iðnaðar- manna að leiðarljósi og með átta þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur. Fjöldi útfærslna á hleðslurými, farþegarými og aðstoðarkerfi. Volkswagen Crafter verð frá 6.270.000 kr. Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár. Áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum, fjórhjóladrifinn og í fjölda útfærslna. Volkswagen Caddy verð frá 2.720.000 kr. Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðan- legum vinnuþjarki. Fullkomin stöðugleikastýring, spólvörn og sjö þrepa sjálfskipting. Volkswagen Transporter verð frá 4.390.000 kr. BADMINTON Til þess að ætlunarverk hans, að komast á Ólympuleikana, takist þarf hann að vera í einu af 80 efstu sætunum á heimslistanum í maí á næsta ári. Þá er Kári með sem markmið að komast inn á heims- meistaramótið sem haldið verður í ágúst síðar á þessu ári, en til þess þarf hann að vera á meðal 110 efstu á heimslistanum í maí á þessu ári. Kári ætlar svo að fara á Evrópuleik- ana sem verða haldnir í annað skipti í júní í sumar í Hvíta-Rússlandi. Eins og staðan er núna er nánast öruggt að hann verði á meðal þátttakenda á því móti. „Ég hef sett stefnuna á að fara á Ólympíuleikana árið 2020 og það eru haldin mót sem gefa stig til þess að hækka á heimslistanum og er undankeppni Ólympíuleikanna á tímabilinu frá maí á þessu ári fram í maí á næsta ári. Það er svo staða á heimslistanum í maí á næsta ári sem ákvarðar það hvort ég kemst á leik- ana eður ei,“ sagði Kári í samtali við Fréttablaðið um komandi misseri. Eftir að hafa verið í námi síðustu ár einblínir Kári nú alfarið á bad- mintonleikinn og æfir og keppir sem atvinnumaður í greininni í Madrid á Spáni þar sem hann æfir með spænska landsliðsmanninum Pablo Abian sem er í kringum 40. sæti á heimslistanum. Þegar Kári setti sér það markmið að komast á Ólympíuleika var hann í 1.000. sæti á heimslistanum, en hefur síðan þá klifrað upp í 170. sæti og þarf að klifra upp um um það bil 90 sæti í viðbót til þess að ná markmiði sínu. Það er um það bil ár síðan hann ákvað að taka badmintonið fastari tökum og setti sér það markmið að komast á Ólympíuleikana. Til þess að það takist þarf Kári að vera iðinn við að keppa á mótum á þessu ári og því næsta, en hann mun keppa á um það bil 25 mótum um allan heim næsta eina og hálfa árið. „Þetta er vissulega mikil vinna að koma sér upp heimslistann, en markmiðið er aftur á móti vel raun- hæft. Ég æfi með spilurum sem eru á topp 100 og á góðum degi vinn ég besta spilarann í hópnum sem er í 40. sæti á heimslistanum. Ég æfi 5-6 tíma á dag og er stöðugt að bæta mig. Ég er að gera alla réttu hlutina og mér finnst eðlilegt að stefna á það að vera í 80. sæti á listanum eftir rúmt ár,“ segir Kári. Kári er fæddur og uppalinn í Dan- mörku þar sem mikil hefð er fyrir badminton og landið hefur alið af sér afar sterka badmintonspilara. Nýverið flutti hann til Spánar, en þar er hann að elta ástina og ekki skemmir fyrir að hann getur æft við góðar aðstæður með góðum badmintonspilurum. „Það er þægileg tilfinning að vera kominn á þann stað að vera með þátttökurétt á þeim mótum sem veita stig og eru í undankeppni Ólympíuleikanna og heimsmeist- aramótsins og að vera búinn að klífa metorðastigann á það svæði sem mér finnst ég eiga heima á. Það að þurfa ekki lengur að spila mig inn á þessi mót er gott fyrsta skref. Ég hef aldrei lagt jafn mikla vinnu og varið jafn miklum tíma í badmin- tonið og ég finn fyrir því að ég er búinn að bæta mig töluvert undan- farið. Ég hugsa mikið um andlega þáttinn og hef núna tíma til þess að leikgreina minn leik með því að skoða leiki mína, læra af mistökum mínum og skoða hvernig ég get gert betur. Mér finnst vopnabúrið mitt fjölbreyttara núna en það var áður og það kannski vantar helst stöðug- leika í leikjum mínum gegn sterkum andstæðingum,“ segir hann um stöðu sína á þessari stundu. „Það er mér mikil hvatning að fara á mótið fyrir Íslands hönd, en það voru átta einstaklingar sem kepptu fyrir þjóðina á síðustu sumarólymp- íuleikum. Það fyllir mig alltaf miklu stolti að keppa með merki Íslands á bakinu og að sjá íslenska fánann meðan ég keppi. Ég vona innilega að ég bætist í þann flotta flokk afreks- íþróttafólks sem fer til Tókýó,“ sagði hann um framhaldið. hjorvaro@frettabladid.is  Rær öllum árum í átt til Tókýó  Kári Gunnarsson freistar þess að verða fyrsti íslenski badmintonspilarinn til þess að taka þátt í Ólympíu- leikunum þegar leikarnir verða haldnir í Tókýó árið 2020 síðan Ragna Ingólfsdóttir gerði það árið 2012. Kári Gunnarsson er staddur á Íslandi þessa dagana en hann lék á Reykjavíkurleikunum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég hef sett stefnuna á að fara á Ólympíu- leikana árið 2020. Það er vissulega mikil vinna fram undan en markmiðið er aftur á móti vel raunhæft. Kári Gunnarsson FÓTBOLTI Berglind Björg Þorvalds- dóttir, landsliðskona í knattspyrnu, samþykkti í gær að ganga til liðs við PSV Eindhoven í Hollandi, en hún mun leika þar út þetta keppnistíma- bil á láni frá Blikum. Hún hyggst leika þar fram í maí seinna á þessu ári og snúa svo aftur í Breiðablik áður en tímabilið hefst hér heima og stefnir á að vera komin aftur í Kópavoginn fyrir fyrsta leik í Pepsi-deildinni. Hún verður annar íslenski leik- maðurinn í hópnum á eftir Önnu Björk Kristjánsdóttur sem samdi við hollenska félagið á dögunum. Hin 27 ára gamla Berglind var markahæst í Pepsi-deildinni á síðasta ári þegar Blikar urðu Íslands- og bikarmeist- arar. – kpt Berglind orðin leikmaður PSV   Berglind Björg í leik með Breiðabliki. HANDBOLTI Þrír leikir fara fram í 14.  umferð Olísdeildar kvenna í handbolta í kvöld. Valur, sem er á toppnum með 21 stig, sækir HK heim. HK er í næst- neðsta sætinu með sjö stig og er þremur stigum á undan Selfossi sem vermir botnsætið. Fram, sem er í elt- ingaleik við Val um toppsætið og er í öðru sæti með 19 stig, fær KA/Þór í heimsókn. KA/Þór hefur 13 stig í fimmta sæti, en Haukar sem leika við Stjörnuna eru í fjórða sæti með 16 stig. Efstu fjögur liðin fara í úrslitakeppnina í vor. Stjarnan sem er með níu stig í sjötta sæti freistar þess að fjarlægjast fallbaráttu deildarinnar. – hó    Barátta um sæti í úrslitakeppni 2 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 B -A 2 7 C 2 2 2 B -A 1 4 0 2 2 2 B -A 0 0 4 2 2 2 B -9 E C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.