Fréttablaðið - 29.01.2019, Side 36
E ftir lítinn vöxt á síðasta ári í smíði og sölu flutninga-bíla sem drifnir eru áfram
af rafmagni er búist við meira
en 10% vexti í framleiðslu
slíkra bíla á þessu ári og veldis-
vaxandi vexti eftir það. Búist
er við því að sexföldun verði á
sölu rafdrifinna trukka frá 2019
til 2025. Það þýðir frá sölu á
180.000 rafdrifnum trukkum,
eins og spáð er fyrir árið í ár, til
1,2 milljóna slíkra árið 2025.
Þegar talað er um trukka eða
flutningabíla tekur það til minni
og stærri flutningabíla, vörubíla
og fólksflutningabíla. Það sem
drífa mun áfram þessa þróun
verður gríðarleg eftirspurn eftir
rafdrifnum trukkum í Kína og
sífellt strangari reglur sem settar
eru um mengun í Asíu og Evrópu.
Það mun einnig mikil áhrif hafa
á þessa þróun að trukkabransinn
gerir sér grein fyrir hve mikill
rekstrarsparnaður fylgir rafdrifn-
um trukkum í formi eldsneytis-
og viðhaldskostnaðar.
Hægari þróun vestanhafs
Lækkandi verð á rafdrifnum
trukkum mun flýta þessari
þróun og það meira að segja
líka í bensín landinu Bandaríkj-
unum, þar sem hlutfall rafdrifinn
trukka er enn mjög lágt. Þróunin
mun verða talsvert hægari í
Bandaríkjunum en í Evrópu og
Asíu og á lágt eldsneytisverð þar
mestan þátt, en einnig minni
kröfur um minnkun mengunar.
Því er búist við því að rafdrifnir
trukkar muni aðeins seljast í 1%
hlutfalli þar árið 2025 á móti 5%
á heimsvísu.
Minnkun í Kína í fyrra
Sú undarlega þróun átti sér stað
í fyrra að 12% færri rafdrifnir
trukkar seldust en árið áður, eða
155.000 í stað 175.000 árið 2017.
Skýringarinnar er að leita í minni
stuðningi kínverskra yfirvalda
til handa slíkum trukkaframleið-
endum og áhyggjum af efnahags-
ástandinu í Kína og tollastríðinu
við Bandaríkin. Hið þveröfuga átti
sér hins vegar stað í öðrum heims-
hlutum þar sem varð 63% vöxtur
í sölu rafdrifinna trukka í fyrra.
Þessar tölur sýna hve markaður-
Daimler,
móðurfyrirtæki
Mercedes Benz
hefur sett mikið
fjármagn í þróun
á trukkum sem
ganga fyrir raf-
magni. Hér sést
ein frumgerð
slíks trukks frá
Mercedes Benz.
Einn af framúr-
stefnulegri
sendibílum sem
drifinn verður
áfram með raf-
magni, en þessi
er úr smiðju
Mercedes Benz.
Tími rafmagnstrukka að renna upp
Það er ekki eingöngu á fólksbílamarkaði sem rafmagnið mun leysa af hólmi jarðefnaeldsneytið,
þróunin í framleiðslu rafmagnstrukka er á fleygiferð og vænst er gríðarlegs vaxtar til ársins 2025.
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
inn í Kína skiptir miklu máli fyrir
heiminn allan.
Miklar fjárfestingar og þróun
Miklir fjármunir verða settir í
þróun rafdrifinna trukka sem
ganga að hluta eða öllu leyti fyrir
rafmagni á næstu árum. Daimler,
móðurfyrirtæki Mercedes-Benz,
segist ætla að fjárfesta fyrir 410
milljarða króna á næstu árum
og Volkswagen Group, sem á
trukkafyrirtækin MAN, Scania
og Volkswagen Commercial
Vehicles, ætlar að fjárfesta fyrir
220 milljarða til hins sama. Öll
þekktustu trukkafyrirtæki heims
eru að róa í þessa átt, þó svo sum
þau bandarísku dragi í fyrstu lapp-
irnar. Volvo mun ekki láta sitt eftir
liggja. Þar sem rafhlöður í svona
stærri bílum eru stórar og eiga
það til að missa afl með tímanum
er búist við því að nýr markaður
skapist fyrir aflagðar rafhlöður úr
þessum bílum sem notaðar verða
í ýmsa starfsemi til að geyma raf-
magn og eru þær mjög brúklegar
í þeim tilgangi þó afl þeirra og
geymslugeta hafi minnkað.
20 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
VIÐGERÐIR
VARAHLUTIR
ÞJÓNUSTA
SÍMI
555-6670
www.velras.is
BIFREIÐA- OG VÉLAVERKSTÆÐI - ÁLHELLU 4, HAFNARFIRÐI
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
B
-A
C
5
C
2
2
2
B
-A
B
2
0
2
2
2
B
-A
9
E
4
2
2
2
B
-A
8
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K