Fréttablaðið - 29.01.2019, Qupperneq 37
Meirihluti landsmanna, eða 56,1 prósent aðspurðra, er frekar eða mjög and-
vígur hugmyndum um að veggjöld
verði innheimt til að fjármagna
uppbyggingu helstu stofnleiða
samgöngukerfisins samkvæmt
könnun sem Zenter gerði að beiðni
Fréttablaðsins en greint var frá
niðurstöðunum í Fréttablaðinu
23. janúar. Einn af hverjum þremur
er frekar eða mjög hlynntur slíkum
hugmyndum.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur fram að 32,6 prósent eru
mjög andvíg hugmyndum um
veggjöld en aðeins 9,8 prósent eru
mjög fylgjandi veggjöldum. Mestur
er stuðningurinn meðal íbúa á
Vesturlandi, Vestfjörðum og á
Norðurlandi, eða á bilinu 39 til 41
prósent. Flestir eru mótfallnir veg-
gjöldum á Suðurlandi og á Reykja-
nesi eða 74 og 70 prósent hvort um
sig. Rétt rúmlega helmingur íbúa
höfuðborgarsvæðisins er mótfall-
inn hugmyndum um veggjöld, eða
54 prósent, en 34 prósent höfuð-
borgarbúa sögðust hlynnt slíkum
hugmyndum.
Niðurstöðurnar leiða jafnframt
í ljós að fólk sem lokið hefur fram-
haldsnámi í háskóla er marktækt
hlynntara veggjöldum en aðrir
menntunarhópar, eða 45 prósent.
Könnun Zenter var netkönnun sem
gerð var dagana 18. til 22. janúar.
Úrtakið var 3.100 manns og var
svarhlutfallið 41,5 prósent.
Könnun um
stuðning við
veggjöld
Vegagerðin ákvað í byrjun árs að lækka hámarkshraða í 50 km/klst. við allar ein-
breiðar brýr á þjóðvegum þar sem
umferð er meiri en 300 bílar á dag
að jafnaði alla daga ársins. Það eru
75 brýr en um helmingur þeirra er
á Hringvegi.
Á sama tíma var ákveðið að yfir-
fara hámarkshraða á þjóðvegum í
dreifbýli og lækka hann ef þörf er
á, eða fjölga merkingum um leið-
beinandi hraða. Einnig verður gerð
úttekt á vegriðum á öllum brúm á
stofn- og tengivegum.
Heildarfjöldi brúa á þjóðvegum
sem teljast til stofn- og tengivega
er 892. Af þessum brúm teljast
423 vera einbreiðar, eru því fimm
metrar að breidd eða mjórri.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
að fækka þessum einbreiðu brúm,
þá hefur undanfarið staðið yfir
átak í að bæta merkingar við ein-
breiðar brýr, til dæmis með upp-
setningu blokkljósa. Nú hafa allar
brýr á Hringvegi verið merktar á
sambærilegan hátt og sama gildir
um nokkrar brýr utan Hringvegar.
Heimild: Vegagerðin
Lækka
hámarkshraða
Bubbi byggir, eða Bob the Builder, eins og þættirnir heita á frummálinu, hafa
lengi verið vinsælir meðal barna
um allan heim og þar eru íslenskir
krakkar meðtaldir. Þættirnir fjalla
um Bubba og félaga hans, gröfuna
Skófla, ýtuna Moka, steypuhræri-
vélina Hringlu, kranann Loft og
valtarann Valta, en í sameiningu
hjálpast vinirnir að við að leysa
alls kyns erfið verkefni með
aðstoð aðstoðarkonu Bubba,
Selmu, og kettinum Snotru. Óhætt
er að segja að þættirnir hafi vakið
áhuga barna á ólíkum vinnuvélum
og nytsemi þeirra.
Verkefni hópsins eru af ýmsum
stærðum og gerðum og reyna
á samvinnu félaganna, ólíka
styrkleika þeirra, nákvæmni og
úrræðasemi.
Þættirnir voru fyrst sýndir í
bresku sjónvarpi árið 1999 og ári
síðar varð titillaga þáttarins, Can
We Fix It?, mest selda smáskífan
þar í landi og sat m.a. þrjár vikur
í röð í efsta sæti breska vinsælda-
listans.
Það var
Örn Árnason
leikari
sem
talaði
inn á
íslensku
útgáfuna fyrir
Bubba.
Bubbi byggir hefur áhrif á ungdóm landsins
ÞEGAR ÁLAGIÐ ER MIKIÐ
3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI
SAMSKIPTAMÖGULEIKI VIÐ 2 SÍMA,
ÚTVARP OG UMHVERFISHLJÓÐNEMI.
Kemi ehf | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is
KYNNINGARBLAÐ 21 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
B
-9
D
8
C
2
2
2
B
-9
C
5
0
2
2
2
B
-9
B
1
4
2
2
2
B
-9
9
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K