Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 32
32 Litli-Bergþór
Það hefur verið góður gangur í starfi Lionsklúbbsins
Geysis í Biskupstungum að undanförnu. Við leggjum
mikla áherslu á að njóta góðra samverustunda við
leik og störf. Ef afrakstur þeirra stunda og verkefna
er samfélaginu nær og fjær til gagns, þá er tilgangi
starfsins okkar náð. Aðalverkefni okkar eru að afla
fjár sem síðan er útdeilt til góðra mála, þar sem
stuðnings er þörf. Reglulegir fundir okkar eru haldnir
tvisvar í mánuði frá september fram í maí. Á fundina
koma gjarnan fyrirlesarar sem færa okkur fróðleik.
Oft bregða klúbbfélagar undir sig betri fætinum og
fara af bæ, oftast innan uppsveitamarkanna. Þá hefur
atvinnurekstri á ýmsum sviðum verið gerð góð skil,
þau fyrirtæki sem við höfum heimsótt eru orðin býsna
mörg. Klúbbfélagar eru því orðnir nokkuð fróðir um
atvinnulífið á svæðinu. Dæmi um það eru heimsóknir
í mars síðastliðnum í Límtrésverksmiðjuna á Flúðum
og í tæknivætt fjós á Reykjum á Skeiðum. Það er
dýrmætt fyrir okkur hve viðtökurnar eru ávallt góðar
þar sem við leitum eftir að tekið verði á móti okkur.
Atburðir og fjáröflun
Árviss atburður í starfi klúbbsins er að koma saman
kvöldið fyrir þorraþrælinn í Aratungu til að borða
hrossaket og njóta söngs og skemmtunar. Það kvöld
ber heitið Villimannakvöld. Nafngiftin er til komin
vegna þess að menn taka þar svo hraustlega til matar
síns að það flokkast undir villimennsku. Þarna hafa
komið saman á annað hundrað karlar. Auk okkar sjálfra
mæta þar vinir og félagar úr öðrum Lionsklúbbum.
Þessi samkoma er stærsta fjáröflunarverkefnið
okkar. Færum við öllum þeim sem hafa gefið okkur
happdrættisvinninga og stutt okkur með öðrum hætti,
bestu þakkir.
Á hverju hausti förum við með mökum í
dagsferð og fórum síðastliðið haust um Flóann.
Innansveitarsímaskrá kemur út um þessar mundir rétt
eins og tíðkast hefur á tveggja ára fresti í rúm tuttugu
ár. Við höfum selt í hana auglýsingar með góðum
árangri.
Í mörg ár hafa klúbbfélagar og fjölskyldumeðlimir
þeirra farið í Rótarmannatorfur undir Bláfelli á
Tungnamannaafrétti. Þessi ferð hefur verið farin í
byrjun júní og gróðursettar trjáplöntur, oftast birki
sem Landgræðslufélag Biskupstungna hefur látið
okkur í té. Árangur af því starfi er nokkuð sem við
erum drjúgir yfir og er hann meiri en við bjuggumst
við í upphafi. Annað hefðbundið vorverk hjá okkur
er að hreinsa rusl meðfram vegum eftir endilöngu
sveitarfélaginu, auk þess höfum við gripið í að vinna
tilfallandi verkefni fyrir sveitarfélagið og aðra. Á
árum áður var aðalfjáröflunin sú að gengið var í hús
og boðnar ljósaperur og klósettpappír, sá siður hefur
verið aflagður.
Lionsstarf í Tungunum
Frá Villimannakvöldi í Aratungu.