Litli Bergþór - 01.07.2016, Síða 47
Litli-Bergþór 47
Aðsókn að Slakka í Laugarási hefur aukist mikið
og því stendur til að fjölga bílastæðum þar. Hefur
sveitarstjórn tekið vel í erindi um að leigja fyrirtækinu
tímabundið lóðina Holtagötu 6 í þessu skyni.
í Aratungu þar sem þær Þórhildur Lilja á Spóastöðum
og Margrét á Brautarhóli sungu fyrst þrjú lög, síðan
flutti Unnur Malín Sigurðardóttir frumsamin lög og að
því loknu söng og spilaði meistari KK sig inn í hug og
hjörtu viðstaddra.
Firmakeppni Hestamannafélagsins Loga var haldin
í Hrísholti laugardaginn 18. júní og þótti takast vel.
Þess má geta að það fóru 11 hross frá Loga á Landsmót
hestamanna á Hólum 2016.
Björn með Fálkaorðuna ásamt börnum sínum Ólafi og Hjördísi.
Froðupartí 17. júní.
Andlát:
Sighvatur Arnórsson frá Miðhúsum lést þann 24.
febrúar. Útförin fór fram frá Skálholtskirkju 5. mars.
Jarðsett var í Haukadal.
Jón Karlsson frá Gýgjarhólskoti lést föstudaginn 11.
mars. Útför hans fór fram frá Skálholti laugardaginn
26. mars. Jarðsett var í Haukadal.
Gunnar Haraldsson sem bjó í Kistuholti í Reykholti
lést föstudaginn 11. mars. Útförin fór fram frá Skál-
holtskirkju laugardaginn 19. mars. Jarðsett var að
Stóru-Borg í Grímsnesi.
Bjarni Helgason frá Helgastöðum lést föstudaginn
8. apríl. Útför hans fór fram frá Skálholtskirkju
föstudaginn 22. maí. Jarðsett var að Ólafsvöllum á
Skeiðum.
Ragnhildur Magnúsdóttir frá Gýgjarhólskoti
lést laugardaginn 14. maí. Útförin var gerð frá
Skálholtskirkju mánudaginn 30. maí. Jarðsett var í
Haukadal.
Pollarnir skemmtu sér vel í Firmakeppni Loga.
Vinkonurnar Dagmar og Hildur.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi
Björn Sigurðsson í Úthlíð fálkaorðu þann 17. júní
fyrir félagsmálastörf og uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Þjóðhátíðarpistill: 17. júní var haldinn með pompi
og prakt í Reykholti með hefðbundnu ávarpi fjallkonu,
sem að þessu sinni var Elíza Óskarsdóttir frá Helgastöð-
um, söng grunnskólabarna undir stjórn Unnar Malín-
ar og veðlaunaafhendingu í ljósmyndakeppninni
þar sem Álfheiður Bridde á Bjarkarbraut í Reyk-
holti átti bestu myndina. Menningarverðlaun Blá-
skógabyggðar voru afhent og komu að þessu sinni
í hlut Gullkistunnar á Laugarvatni, þeirra Öldu
Sigurðardóttur og Kristveigar Halldórsdóttur. Alda
veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Sigríðar
Jónsdóttur. Úti var kassabílarallí og „froðudiskó“
slökkviliðsins og á eftir kaffihlaðborð 10. bekkinga,
sem tókst einstaklega vel. Voru það tæplega 200 gestir
sem drukku kaffi og eru krakkarnir þakklátir fyrir
stuðninginn. Á meðan unglingarnir skemmtu sér í
sundlaugardiskói um kvöldið voru haldnir tónleikar