Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 16
16 FÓKUS 1. febrúar 2019 GODDI.IS Auðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550 Sauna- og gistitunnur ásamt viðarkyntum pottum Sjáðu úrvalið á goddi.is Margar gerðir Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð aðeins 58.500 kr. Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð frá 58.500 kr. „Meikuðu“ það án menntunar Bubbi Morthens, einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar, hlaut sína menntun í skóla lífs­ ins en að loknum grunnskóla tók við verbúðalíf og ýmis önn­ ur störf áður en hann haslaði sér völl á tónlistarsviðinu. Bubbi hefur áður greint frá því í viðtölum að hann sé skrifblind­ ur en honum gekk að eigin sögn „hræðilega“ í barnaskóla. Styrkleikar hans hafa augljós­ lega fengið að njóta sín á öðrum svið­ um. Í síðustu viku tók DV saman helstu dúxa sem hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í gegnum árin. Eins og vænta mátti höfðu þeir allir komið ár sinni vel fyrir borð. Það er þó ekki sagt að menntunarleysið sé hamli framgangi fólks í lífinu. DV tók því saman þjóðþekkta Íslendinga sem hafa látið skyldu- námið duga. Þrír alþingismenn hafa aðeins lokið grunnskólaprófi. Það eru Sjálf­ stæðismaðurinn Ásmundur Friðriksson, Píratinn Helgi Hrafn Gunnarsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri grænna. Ásmundur og Helgi Hrafn eru á sínu öðru kjörtímabili sem alþingismenn en Lilja Rafney á sínu þriðja. Jón Gnarr, fyrrverandi borgar­ stjóri, er annað dæmi um stjórnmálamann sem gekk ekki menntaveginn. Reyndar er Jón marg­ hamur og því ef til vill ósanngjarnt að setja hann undir hatt stjórnmál­ anna. Undanfarið hefur Jón tekið upp þráðinn að nýju varðandi framleiðslu á skemmtiefni. Hann var einn af höf­ undum áramótaskaupsins, stendur fyrir útvarpsþáttunum Tvíhöfða á RÚV og stígur á svið með uppistand víða um bæ. Óhætt er að fullyrða að kjaramál verði áberandi í þjóðfélags­ umræðunni á næstunni. Tveir verkalýðsleiðtogar luku eingöngu grunnskólanámi, en það eru þau Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akra­ ness. Einn fremsti rappari þjóðar­ innar er án efa Gísli Pálmi Sig­ urðsson. Lítið hefur farið fyrir kappanum undanfarin miss­ eri og bíða aðdáendur spennt­ ir eftir meira efni. Gísli Pálmi er einn þeirra sem fetuðu ekki menntaveginn en hefur ekki látið það stöðva sig í að gera það sem stendur hjarta hans næst og hljóta aðdáun fyrir. Þórhall „Ladda“ Sigurðsson þarft vart að kynna en hann hefur komið víða við á ferli sín­ um sem spannar fimm áratugi. Hann er ef vill þekktastur sem leikari og skemmtikraftur en hann hefur einnig látið til sín taka sem söngvari, tónskáld, handritshöfundur og síðast en ekki síst sem myndlistarmaður. Laddi lauk aldrei leiklistarnámi en í ævisögu sinni Laddi sem kom út árið 1991 rifjar hann upp stopula skólagöngu í leik­ listardeild UCLA í byrjun ní­ unda ára­ tugarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.