Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 26
Kærkominn vetur 1. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ Bónstöðvar koma og fara en bónstöðin Hjá Jobba hefur verið starfandi í yfir 30 ár. Hvernig er slíkt hægt þegar með- alaldur í bransanum eru nokkur ár? Svarið er: Gæði, lágt verð og ánægðir viðskiptavinir. Þeir sem fara með bílinn sinn til Jobba vita að þeir munu fá toppþjónustu. Bónstöðin vex enn og dafnar og er núna elsta starfandi bónstöð landsins. Reynsla Jobba í bransanum nær reyndar enn lengra aftur í tímann en hann starfaði hjá Sveini Egilssyni frá árinu 1982 og stýrði deild sem sá um standsetningu, skráningu og þrif á nýjum bílum. Hann hefur síðan verið sjálfstætt starfandi frá árinu 1986. Helstu þjónustuþættir sem í boði eru hjá Jobba eru eftirtaldir: Alþrif, þrif að innan, þrif að utan og bónun, teflonbónun, djúphreinsun teppa og sæta, tjöruþvottur, vélarþvottur, ryksugun, lakkmössun, blettun, lakkviðgerðir og ýmislegt fleira. Ítar- legar upplýsingar um þjónustuliðina er að finna á vefsíðunni hjajobba.is. Þar eru einnig greinargóðar upplýs- ingar um verð. Fólksbílar almennings eru vit- anlega algengustu verkefni Jobba en stöðin tekur líka meðal annars að sér hreinsun og bónun á rútum, flutningabílum og öðrum vinnu- tækjum. Enn fremur þrífur Jobbi og bónar bíla fyrir Suzuki bíla ehf. og fleiri þekkt fyrirtæki. Hjá Jobba er staðsett í Skeif- unni 17. Stöðin er opin virka daga frá kl. 9 til 17.30 nema föstudaga, þá er opið til kl. 17. Tímapantanir eru í síma 568-0230. Þá er einnig tilvalið að senda töluvpóst á net- fangið hjajobba@simnet.is ef þú vilt bætast í ört vaxandi hóp ánægðra viðskiptavina stöðvarinnar. Því eins og Jobbi segir: „Við gerum gott betra.“ Heimsíða er hjajobba.is. n Hjá Jobba er elsta starfandi bónstöð landsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.