Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Page 31
Kærkominn vetur1. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Ertu komin/nn með ógeð á skamm-deginu? Finnst þér lýsi vont? Gleymirðu ítrekað að taka inn
D-vítamín perluna á morgnana? Vantar
þig kannski bara smá hita í kroppinn?
„Við tókum við rekstrinum hjá sólbaðs-
stofunni Stjörnusól í fyrra og gerðum
nokkrar þarfar breytingar. Í dag sækist
fólk í auknum mæli eftir fleiru en sól-
brúnku þegar það leggst inn í ljósabekk.
Ljósabekkir í dag eru líka svo miklu
meira en þeir voru í gamla daga. Sumir
vilja klassíska sólbrúnku, aðra vantar að
auka náttúrulega D-vítamín framleiðslu
líkamans og enn aðrir sækjast eftir
hitaáhrifunum til þess að lina sársauka
vegna vefjagigtar eða vöðvabólgu,“
segir Páll Ágúst Aðalheiðarson, eigandi
Stjörnusólar.
Megasun Alpha Deluxe: D-vítamínbúst
í skammdeginu
„Við erum með tvo nýlega bekki frá
Megasun Alpha Deluxe. Bekkurinn býður
upp á valmöguleika á að stilla ljósatí-
mann algerlega eftir þörfum hvers og
eins. Í bekkjunum eru sérstakar perur
sem gefa frá sér aukna UVB-geisla,
sem eru þeir geislar sólarinnar sem eru
nauðsynlegir til D-vítamín framleiðslu.
Einnig eru öflugar Ruby-Collagen-
-Booster LED-perur staðsettar um-
hverfis andlitið. Þær gefa frá sér geisla
sem vinna gegn öldrun húðar, veita
aukinn raka, auka blóðflæði um húð-
ina og hjálpa til við slökun og hreinsun.
Bekkurinn er með stillingum fyrir hita-
stig, gerð sólargeisla, þ.e. UVA eða UVB
eftir því hvort sóst er eftir sólbrúnku eða
aukinni D-vítamín framleiðslu, og margt
fleira. Bekkurinn getur gefið frá sér
slakandi aroma-ilmefni, eða spreyjað
þægilegum vatnsúða yfir líkamann verði
manni of heitt. Svo er rúsínan í pylsu-
endanum sú að það er hægt að hlusta
á tónlist meðan á tímanum stendur. Þú
getur m.a. hlustað á slökunartónlist sem
er innbyggð í bekkinn eða tengst bekkn-
um með símanum gegnum Bluetooth
og notið eigin tónlistar,“ segir Páll.
Kollagen: undraefni líkamans
Stjörnusól er með tvo kollagenbekki sem
gefa frá sér geisla sem auka kollagen-
framleiðslu húðarinnar. Áhrifin eru þau
að slit minnkar og húðin verður stinnari
sem gefur unglegra útlit. Einnig geta
geislarnir dregið úr verkjum vegna slit-
gigtar. Kollagen er algengasta prótínið í
líkamanum og er það efni í húðinni sem
veitir unglegt og frísklegt útlit.
Innrauð sauna fyrir mjúka liði og aukna
brennslu
„Það allra nýjasta á stofunni hjá okkur
er svo Infrared sauna, eða innrauð
þurrgufa. Það er engin gufa inni í klef-
anum heldur hitalampar sem gefa frá
sér innrauða ljósgeisla og hita klefann
upp í 50–60°C. Geislarnir hjálpa til við
svefnvandamál, sársauka vegna vefja-
gigtar, vatnslosun, þyngdartap og auka
brennslu. Einnig mýkja þeir liðina og
strekkja á húðinni. Tíminn er um 20–30
mínútur og mælt er með tvöföldum
tíma í hvert skipti fyrir hámarksárangur,“
segir Páll.
Drottningin
Fyrir þá sem sækjast aðallega eftir
sólbrúnku og/eða hita er Stjörnusól
með fimm klassíska sterka ljósabekki
frá Luxura X10. „Luxura X10 er rétt-
nefndur drottning ljósabekkjanna
enda er hann stór og þægilegur með
nóg af plássi. Það er unun að láta
sólargeislana leika um sig. Bekkurinn
getur gefið frá sér slakandi ilmolíur,
maður getur spilað tónlist að eigin
vali, spreyjað hressandi misturúða
eða blásið köldu lofti til kælingar,“ segir
Páll.
Nánari upplýsingar á stjornusol.is
og á Facebook-síðunni: Stjörnusól
Hægt er að bóka tíma hjá
Stjörnusól á netinu á stjornusol.is/
hafnarfjordur/boka-tima.
Það er hægt að kaupa tímakort hjá
okkur í Stjörnusól, Fjarðargötu 17, 220
Hafnarfirði.
Þess má geta að tímakortin renna
ekki út á milli ára.
Sími: 555-7272
Netfang: hafnarfjordur@stjornusol.is
Opið alla daga frá 10–22
Tilboð á sunnudögum: Stakur tími
eingöngu 1.200 kr. n
STJÖRNUSÓL:
Skelltu þér í sólina
án flugmiða