Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 40
40
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 29. maí 1981
1. febrúar 2019
SIGLDU SAMAN ÚT Í OPINN DAUÐANN
n Efnilegasta skáld þjóðarinnar n Samdi textann við Hvíta máva n Líkin fundust eftir mánuð
E
ina nótt í maí árið 1963 hurfu
tveir ungir menn í Reykjavík,
þeir Björn Bragi Magnús
son og Jón Björnsson. Björn
Bragi var eitt efnilegasta skáld
þjóðarinnar sem einnig hafði getið
sér gott orðspor sem textahöfund
ur dægurlaga. Þar á meðal fyrir hið
vinsæla sjómannalag Hvítir mávar.
Þessa sömu nótt hvarf trilla úr fjöru
borðinu á Granda og síðar kom í ljós
að þeir höfðu haldið á henni út á sjó.
Trillan var botnfleka og stýrislaus
sem gefur til kynna að Björn Bragi
og Jón hafi vitað að þeir sigldu út í
opinn dauðann. Mánuði síðar fund
ust lík þeirra rekin á fjörur og spurn
ingar hafa vaknað um hvað hafi leg
ið fyrir þeim.
Ungskáld
Björn Bragi Magnússon var aðeins
sextán ára gamall þegar hann lét á
sér kræla sem skáld. En sjö ára hóf
hann að yrkja. Björn var fæddur
árið 1940 og haustið 1956 gaf hann
út ljóðabókina Hófatak. Björn var
sonur Magnúsar Ástmannssonar,
bæjar fulltrúa og forstjóra Gutenberg
prentsmiðjunnar. Starfaði Björn
hjá föður sínum sem prentari sam
fara námi og að því loknu. Á sextíu
ára afmæli Hins íslenska prentara
félags, árið 1957, kom hann fram í
útvarpinu og flutti eigin skáldskap.
Þetta sama ár giftist hann Jóhönnu
Ragnarsdóttur sem starfaði við bók
band hjá Gutenberg.
Björn var í einstakri aðstöðu til
að koma skáldskap sínum á fram
færi og setti hann yfirleitt á prent
um leið og hann hafði ort. Björn
naut þess einnig að þekkja Þórberg
Þórðarson, eitt besta skáld Íslands
sögunnar. Eiginkona Þórbergs, Sól
rún Jónsdóttir, var frænka Björns og
þau hjónin bjuggu í næsta nágrenni.
Áður en Björn gaf út Hófatak fékk
hann Þórberg til að lesa hana yfir. Í
viðtali við Alþýðublaðið vorið 1957
sagði Björn Þórberg hvorki hafa
hvatt hann né latt til útgáfunnar. En
hann hafi viljað koma sér á fram
færi. „Mér finnst ég hafa sloppið vel
frá þessu,“ sagði Björn.
Í sama viðtali sagðist Björn hafa
ort um eiginkonu sína.
„Kvæðið Hanna, sem kynnt var
í útvarpinu fyrir nokkrum vikum
er einmitt um hana. Ég hef ort ansi
mikið um konur. Til dæmis get ég
nefnt kvæðið Klara. Það birtist í bók
inni og byrjar svona:
Hví siturðu hljóð við hafið blátt?
Með hendur í skauti og mælir fátt.
Hví vakirðu fram á niðdimma nátt?
Til norðurs þín augu stara.
Þú veist, að hug minn þú allan átt,
og ást mína, ljúfa Klara.“
Lokaerindið hljómar svo:
„Og hafrænan okkur á bylgjum bar,
til brennandi ástarheima.“
Björn leit fyrst og fremst til
seinni tíma skálda og í mestu
uppáhaldi voru helstu öndvegis
skáld þess tíma, Davíð Stefáns
son frá Fagraskógi og Tómas
Guðmundsson. En að einhverju
leyti leit hann upp til eldri skálda
svo sem BóluHjálmars. Sjálfur
orti Björn stuðluð kvæði með
höfuðstöfum. Magnús var odd
viti Alþýðuflokksins í Reykjavík
og sonur hans fékk því góðan að
gang að síðum Alþýðublaðsins til
þess að birta verk sín. Einnig var
hann með reglulegan tónlistar
dálk í Tímanum.
Hvítir mávar
Árið 1958 gaf hann út aðra ljóða
bók, Dögg í grasi. Fékk hann
kvæði úr henni víða birt, bæði á
síðum dagblaðanna og upples
in í útvarpinu. Árið eftir kom út
lag sem átti eftir að gera Björn
Braga þekktan, nefnilega Hvítir
mávar í flutningi hinnar sautján
ára gömlu Helenu Eyjólfsdóttur.
Var lagið þýskt að uppruna en
með texta Björns. Lagið sló í
gegn bæði sem dægurlag og sjó
mannalag. „Hvítir mávar segið
þið honum, að mitt hjarta slái
aðeins fyrir hann,“ var textabrot
sem allir kunnu. Þetta ár eign
uðust Björn Bragi og Jóhanna
einnig dóttur.
Björn Bragi skrifaði fleiri
dægur lagatexta á þessum árum.
En hans aðalstarf var sem setjari
hjá Gutenberg. Um tíma starfaði
hann einnig erlendis, í Noregi,
Danmörku og í Finnlandi.
Tveir menn og ein trilla
Fimmtudaginn 16. maí var greint
frá því í dagblöðum að trillubát
hefði verið stolið úr fjöruborðinu
við Eiðsgranda tveimur dögum
fyrr. Þar sem öskuhaugarnir
voru. Var þetta fimm metra lang
ur norskur bátur, svartur að neð
an en hvítur að ofan og með
grænan borðstokk. Miðað við
vegsummerki hafði hann verið
sjósettur á spýtum og var leitað
með fram sjó að honum. Einnig
var lýst eftir bátnum til Akraness,
Borgarness og Keflavíkur.
Laugardaginn 18. maí var
greint frá því í útvarpi að tveir
ungir menn hefðu horfið spor
laust sömu nótt og báturinn. Var
hvarf þeirra sett í samhengi við
trilluhvarfið. Lýsingin á þeim var
eftirfarandi:
„Jón Björnsson, Blönduhlíð
12, tvítugur; var klæddur mó
brúnum jakka og gráleitum bux
um, berhöfðaður og frakkalaus.
Jón er með skolleitt hár, meðal
maður á hæð en grannvaxinn.
Hinn er Björn Bragi Magnússon,
Granaskjóli 26, 23 ára gamall,
meðalhár, grannur, dökkhærður
með lítið yfirvaraskegg. Lýsing á
fatnaði var ekki fyrir hendi hjá
lögreglu.“
Jón hafði starfað sem skrif
stofumaður hjá Mjólkursam
sölunni en hafði hug á tann
læknanámi. Hann var einnig
mikill knattspyrnuáhugamað
ur og þjálfaði yngri pilta hjá
Val. Hann fór af heimili foreldra
sinna klukkan eitt þessa nótt
og sömu nótt var heimafólk hjá
Birni vart við að hann fékk heim
sókn frá ungum manni. Þekkti
heimafólk þar ekki manninn.
Björn Bragi og Jón Vísir 21. maí 1963.
Helena Eyjólfsdóttir Söng lagið Hvítir
mávar árið 1959.
Björn Bragi Magnússon Gaf út ljóða-
bók sextán ára.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Sérsmíðum eftir
óskum hvers og eins
Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is