Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 43
1. febrúar 2019 43 F æstir velkjast væntanlega í vafa um að hnattræn hlýnun er staðreynd og verður sífellt meira áberandi. Þessi hlýn­ un byggir á einfaldri eðlisfræði sem mannkynið hefur vitað af síð­ an um miðja nítjándu öld. Þessi hlýnun væri miklu meiri og verri ef við hefðum ekki heims höfin en þau drekka í sig 90 prósent af þeim hita, sem einhvers konar sæng gróðurhúsaáhrifanna held­ ur á jörðinni. Hitinn sem heims­ höfin drekka í sig svarar til þess að nokkrar kjarnorkusprengjur séu sprengdar á hverri sekúndu allt árið. Það munar því um minna. Þetta er allt saman farið að hafa áhrif á heimshöfin því eins og við höfum áttað okkur á þá á máltæk­ ið: „Lengi tekur hafið við,“ ekki við rök að styðjast. Það eru takmörk fyrir öllu og þar með því magni sem hafið getur tekið við. Nýlega voru birtar, í vís­ indaritinu Science, niðurstöður nýrrar rannsóknar sem staðfesta að staða heimshafanna er mjög alvarleg og verri en talið hafði ver­ ið. Samkvæmt niðurstöðum rann­ sóknarinnar hitna heimshöfin 40 prósentum hraðar en fram kom í nýjustu stóru loftslagsskýrslu lofts­ lagsráðs Sameinuðu þjóðanna, IPCC. Um 93 prósent af orku­ ójafnvæginu enda í hafinu. Vís­ indamennirnir komust einnig að þeirri niðurstöðu að það gefi mun betri sýn á áhrif mannkyns á lofts­ lagið að mæla hita heimshafanna en lofthita. En þeir komust einnig að þeirri niðurstöðu að þessi hlýn­ un hafi haft alvarlegar afleiðingar. Zeke Hausfather, hjá Berkeley­há­ skóla, er einn aðalhöfunda rann­ sóknarinnar. Hann segir að síðasta ár hafi aðeins verið fjórða hlýjasta ár sögunnar síðan skráningar hófust en það hafi verið hlýjasta ár sögunnar fyrir heimshöfin og hafi slegið 2017 og 2016 við en þau ár áttu fyrri met. Hann segir að það sé mun auðveldara að uppgötva hnattræna hlýnun á heimshöfun­ um en í andrúmsloftinu. Katherine Richardson, prófess­ or í lífrænum sjávarrannsóknum við Kaupmannahafnar háskóla, segir að þessar niðurstöður stað­ festi að hnattræn hlýnun hafi meiri áhrif á hafið en við getum ímyndað okkur. „Hafið er einfaldlega lykillinn að þessu öllu. Hafið er okkur ókunnugt og þess vegna hugsum við ekki út í þetta. En það er ótrú­ lega mikilvægt fyrir okkur og allt líf á jörðinni.“ Heitt vatn er rúmfrekara en kalt vatn Hlýnun heimshafanna hefur áhrif á nær alla þætti loftslags á jörðinni. Ein fyrsta afleiðingin er að yfirborð sjávar hækkar því vatn er rúmfrekara þegar það hitn­ ar. Þessi hlýnun sjávar veldur því að yfirborð sjávar mun hækka um 30 sentimetra fram til næstu aldamóta. Auk þess hefur hlýrri sjór í för með sér að ís og jöklar, sem komast í snertingu við hann, bráðna hraðar. Hafstraumar geta líka breyst. Hlýrri sjór breytir einnig grund­ vallareiginleikum hafanna. Hlýrra vatn getur ekki geymt eins mikið af lofttegundum og er því ekki eins gott í að geyma CO2. Það sama á við um súrefni sem hverfur sam­ hliða þessu úr höfunum því hlýrri sjór hefur í för með sér hraðari rotnunarferli sem aftur leiðir til minna magns súrefnis í höfunum og fleiri hafsvæða þar sem súrefn­ isskorts verður vart. Ekki má síð­ an gleyma að hlýrri sjór þýðir að meiri orka er í höfunum, orka sem knýr veðurkerfi heimsins áfram. Öflug óveður, sem við upplifum meðal annars hér á landi, eiga upptök sín yfir hafi, þangað sækja þau orku sína. Hver kannast ekki við fréttaflutning af felli byljum þar sem veðurfræðingar útlista að þeir missi mikið afl þegar þeir koma yfir land því þá fá þeir ekki leng­ ur orku úr hafinu. Hlýrri sjór hef­ ur einnig aukna úrkomu í för með sér, til dæmis á borð við þá sem íbúar í austurrísku Ölpunum og Bæjaralandi í Þýskalandi þurftu að þola í byrjun árs þegar allt fór á kaf í snjó. Gríðarleg orkuupptaka Nýlega var önnur ný rann­ sókn birt en að þessu sinni í vís­ indaritinu PNAS. Í þessari rann­ sókn reiknuðu vísindamenn út þá heildarorku sem heimshöfin hafa drukkið í sig síðan 1871. Hér er ekki um neitt smáræði að ræða og eiginlega erfitt að lýsa því hversu mikil orka þetta er. Um er að ræða 436 x 1021 júl. Blaðamenn The Guardian reiknuðu þetta yfir í skiljanlega tölu fyrir almenning en samkvæmt því sem þeir segja þá svarar þessi orka til þess að orka úr 1,5 kjarnorkusprengjum, af sömu stærð og var varpað á Hiroshima í síðari heimsstyrjöldinni, hafi end­ að í hafinu á hverri sekúndu síð­ ustu 150 ár! Þar með er sagan ekki öll sögð því hlýnunin hefur auk­ ist mikið á síðustu 150 árum og svarar nú til þess að hafið taki við orku úr þremur til sex kjarnorku­ sprengjum á sekúndu. Þetta svar­ ar til þess að á undanförnum 150 árum hafi heimshöfin tekið 1.100 sinnum meiri orku í sig en heildar­ orkuframleiðsla heimsbyggðar­ innar var á þessum tíma. „Ég reyni að framkvæma ekki svona útreikninga. Einfald­ lega af því að það vekur alltof miklar áhyggjur. Þess í stað líkj­ um við þessu við orkunotkun,“ sagði Laure Zanna, prófessor við Oxford­ háskóla, um þessar niðurstöður The Guardi­ an. Höfin eru svo góð í að halda hitan­ um í sér að það munu líða margir áratugir þar til þróunin snýst við, jafnvel þótt við myndum stöðva losun gróðurhúsalofttegunda í dag. Þau munu samt sem áður drekka hita í sig því magn gróður­ húsalofttegunda í andrúmsloftinu er miklu meira en það var fyrir 150 árum en það er nú næstum tvö­ falt meira en það var áður en iðn­ byltingin hófst. Meiri rannsóknir Það er ekki ýkja langt síðan vís­ indamenn fóru að rannsaka og átta sig á hlutverki heimshafanna í hnattrænni hlýnun. Meðal annars vegna þess hversu erfitt er að mæla sjávarhita. En nú hefur verið gerð bragarbót á því en 4.000 baujum, sem tilheyra eft­ irlitskerfinu Argo, hefur verið komið fyrir í hafinu og mæla þær sjávarhita í sífellu. Þær mæla hita efstu tveggja kílómetra sjávar og senda niðurstöðurnar í gegnum gervihnött. Með þessu er hægt að mæla á margan hátt og mörgum stöðum samtímis. Þau miklu gögn sem hafa fengist með þessu staðfesta því miður það sem loftslagslíkön hafa sýnt. Stöðug hlýnun er óhugnanleg áminning um að við eigum mikið verk fyrir höndum því ef við náum ekki að stöðva hnattræna hlýnun förum við inn í áður óþekkt ástand sem enginn getur spáð fyrir um hvern­ ig endar. n PRESSAN Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum „Hafið er okkur ókunnugt og þess vegna hugsum við ekki út í þetta Laure Zanna Prófessor við Oxford.Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Heimshöfin hitna sífellt meira Taka í sig hita á við margar kjarnorkusprengjur á hverri sekúndu Hafið Hitnunin samsvarar sex kjarnorku- sprengjum á sekúndu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.