Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 1. febrúar 2019
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Í LEIT AÐ GÖMLU REYKJAVÍK
Miðbær Reykjavíkur er stöðugt að breytast og
stækka samfara auknum ferðamannastraumi.
Sífellt verður erfiðara að finna „gömlu Reykjavík“
innan um nýtísku hótel og verslanir. Þó er enn hægt
að finna anda gamla tímans á stöku stað. DV fór í
miðbæjarferð til að finna þessa staði.
Við Klapparstíg 25–27 stendur
fornbókaverslunin Bókin og
við búðarborðið eigandinn Ari
Bragason. Bókin er um hálfrar
aldar gömul og ein langlífasta
fornbókaverslun landsins. Þegar
Ari var á menntaskólaaldri voru
fornbókabúðirnar um fimmtán
talsins.
„Við pabbi störfuðum hérna
saman en Bókina keypti ég árið
1997 eða 1998,“ segir Ari. Faðir
hans er Bragi Kristjónsson, sem
landsmönnum er að góðu kunn-
ur úr þáttunum Kiljunni. Versl-
unin hefur verið starfrækt á ýms-
um stöðum í Reykjavík. „Plássið
hérna á Klapparstígnum fékk ég
árið 2001 og Bókin hefur ver-
ið hér síðan. Um tíma var búðin
á Grundarstígnum og eitt sinn á
Laugavegi 1.“
Ari segist hafa haldið búðinni í
hinum gamla stíl.
„Ég held mig við þessa upp-
runalegu þrjátíu efnisflokka og
hef ekki túristavætt búðina. En þó
kemur gríðarlega mikið af túrist-
um hingað.“
Leggja rithöfundar og skáld
ekki leið sína í búðina?
„Jú, jú. Þetta er fjölbreyttur
hópur sem kemur hingað og
skemmtilegur þverskurður af
mannlífinu. Andinn hérna er
góður.“
Um tíma var verslun Otto
A. Michelsen í rýminu. Einnig
barnavöruverslunin Fífa.
„Hér var einnig Sparisjóður-
inn Pundið og stór manngengur
peningaskápur. Þetta var nokkurs
konar lána- og eignaumsýslu-
sjóður Hvítasunnusafnaðarins.“
Ari Bragason Tók við rekstrin-
um fyrir rúmum 20 árum.
Vinsæl meðal rithöfunda
Hýsti áður Sparisjóðinn Pundið.
Mokka-kaffi á Skólavörðustíg 3a er miklu
meira en venjulegt kaffihús í Reykjavík.
Staðurinn er menningarstofnun í sjálfri
sér enda hafa þar ávallt verið settar upp
myndlistarsýningar. Hjónin Guðmundur
Baldvinsson og Guðný Guðjónsdóttir stofn-
uðu Mokka fyrir rúmum sextíu árum, árið
1958. Áður var í húsnæðinu veitingastaður-
inn Vega. Guðný er enn þá eigandi og dóttir
þeirra Oddný rekur staðinn í dag. Hún segir
staðinn hafa lítið breyst í gegnum árin:
„Pabbi fór út til að læra óperusöng á
Ítalíu. Þar umgekkst hann marga listamenn
sem urðu vinir hans. Þegar hann opnaði
Mokka við heimkomuna sóttu þeir í veggina
og þannig byrjaði þessi hefð. Það hafa alltaf
verið sýningar hérna.“
Oddný segir að staðurinn hafi alltaf haft
fastagesti úr listaheiminum.
„Margir sem eru orðnir nöfn í dag byrj-
uðu að sýna hjá okkur. Við höfum alltaf haft
dyrnar opnar fyrir þekkta sem óþekkta lista-
menn.“
Söluturninn Vitinn við Laugaveg 62
er ein af síðustu sjoppunum í mið-
bæ Reykjavíkur. Við búðarborðið
standa Hrafnhildur Egilsdóttir og
maður hennar, Halldór Bergdal
Baldursson, og hafa gert undan-
farin átta ár. Vitinn var stofnaður á
þessum stað fyrir 42 árum.
Halldór segir að Vitinn sé þekkt-
astur fyrir góða þjónustu, rúnn-
stykki og samlokur á góðu verði og
svo auðvitað pulsurnar.
„Þetta er eina sjoppan hérna
á stóru svæði, fyrir utan Vikivaka
sem er á Barónsstíg. Svo er reyndar
önnur í Bankastræti en hún hefur
verið stíluð inn á túristana.“
Þannig að fólk kemur til ykkar
til að komast í þessa gömlu stemn-
ingu?
„Já, fólk gerir það. Sérstaklega
eldra fólkið úr hverfinu sem kemur
á morgnana, les blöðin, spjallar og
fær sér kaffi.“
Vitinn Ein af síð-
ustu sjoppunum í
miðbænum.
Söluturn í 42 ár Eldra fólkið í
hverfinu leitar gamla tímans.
EIN SÍÐASTA
FORNBÓKABÚÐIN
ATHVARF
LISTAMANNA
FRÆG FYRIR
PULSURNAR
Mokka
Sextíu ára
síðastliðið
vor.
Athvarf listamanna Stofnandinn
kynntist listafólki í óperunámi.