Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 45
FÓKUS 451. febrúar 2019 EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Í LEIT AÐ GÖMLU REYKJAVÍK Rakarastofa feðganna Ragnars og Harðar stend- ur við Vesturgötu 48 í húsi sem er orðið meira en aldar gamalt. Stofan var stofnuð árið 1957 og hét þá Rakarastofa Harðar og Trausta. Ragnar Heið- ar Harðarson tók við rekstrinum fyrir tólf árum. „Stofan hefur ekki tekið miklum breytingum en hún sneri öðruvísi þá. Stólarnir eru uppruna- legir og innréttingin, en vitaskuld hefur verið skipt um spegla og aðra smáhluti.“ Faðir hans, Hörður Þórarinsson, var þekktur rakari og hafði marga fastakúnna, ráðherra og fleiri. „Hann byrjaði sextán ára og stóð við stólinn í sextíu ár,“ segir Ragnar. Hvað var hér áður? „Hér var eitt sinn saumastofa, búð Silla og Valda var hérna líka. Á stríðsárunum var hérna kaffihús eða sjoppa. Þessi hluti af húsinu er byggður 1915 eða 1916 og það hefur alltaf verið rekstur hérna.“ Rakarastofa Ragnars og Harðar Ráðamenn og fleiri hafa verið fastagestir. Upprunalegt Innréttingarnar frá 1957. Við Laugaveg 76 stendur ein af langlífustu verslunum landsins, Vinnufatabúðin. Hún var stofnuð af Þórarni Kjart- anssyni fyrir 75 árum og hefur haldist í fjölskyldunni síðan. Síðan 1997 hefur Þorgeir Daníelsson, barnabarn Þórarins, rekið verslunina. „Hann byggði húsið sjálfur, með tíu börn og allt saman,“ segir Þorgeir. Í upphafi seldi verslunin fatnað fyrir vinnu en hefur síðan fært sig yfir í fatnað af ýmsum toga. Sjálfur hefur Þorgeir staðið við búðarborðið í meira en hálfa öld. Margt hefur þó breyst innan búðarinnar, svo sem innréttingarnar. „Þetta er með eldri búðunum hérna. Guðsteinn er að- eins eldri og Brynja.“ Það eru einhverjar ástæður fyrir því að verslun getur lif- að svo lengi? „Já, sjálfsagt margar,“ segir Þorgeir. Áður en Þórarinn stofnaði Vinnufatabúðina rak hann gúmmívinnustofu og um tíma voru Liverpool og Höfði með rekstur á jarðhæðinni. 75 ár við Laugaveg 76 Stofnuð af Þórarni Kjartanssyni. Vinnufata- búðin Selja nú alls kyns fatnað. UPPRUNALEGIR STÓLAR OG INNRÉTTING AFI BYGGÐI HÚSIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.