Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 46
46 1. febrúar 2019 B andaríska amman Betty Neumar var annaðhvort forhert „svört ekkja“ eða einstaklega óheppin hvað eiginmenn áhrærði. Ólíklegt er að nokkurn tímann verði hægt að fullyrða um hvort var að ræða. Betty, sem fæddist árið 1931 í Ohio, giftist sínum fyrsta manni árið 1950 og átti eftir að eiga fimm eiginmenn þaðan í frá. Sjálf dó Betty árið 2011 úr krabbameini, 79 ára að aldri, og þegar þar var komið sögu biðu hennar rétt- arhöld vegna dauða fjórða eigin- manns hennar, Thomasar Harolds Gentry. Skotinn eftir að hjónabandi lauk Fyrsti eiginmaður Betty hér Clarence Malone. Þau gengu í hjónaband árið 1952, þau eignuð- ust einn son, Gary, og skildu árið 1952. Clarence gekk tvisvar sinn- um í hjónaband eftir að hann og Betty skildu. Löngu síðar, í nóvem- ber 1970, var hann skotinn til bana fyrir utan biffeiðaverkstæði sitt í Cleveland. Um morð var talið að ræða, en ekki hvað, en Betty var, kannski eðlilega, ekki talin tengj- ast því. Morðinginn fannst aldrei. Skotinn eða fraus í hel Ekki er ljóst hvenær Betty giftist öðrum eiginmanni sínum, James Flynn, en hann gekk Gary í föð- urstað og ættleiddi hann. Litlum sögum fer af því hjónabandi, en þó liggur fyrir að þau eignuðust dóttur, Peggy. Hjónabandinu lauk þegar Flynn var skotinn til bana á ónefndri bryggju í New York árið 1955. Reyndar segir sagan að síð- ar meir hafi Betty haft nokkrar útgáfur á takteinum um dauða Flynn; hann hafi einfaldlega dáið á bryggju, hann hafi dáið í bifreið á óljósum stað og að hann hafi fros- ið í hel. Rifrildi og sjálfsvíg Þá var röðin komin að þriðja eigin manninum, Richard Sills. Betty kynntist honum einhvern tímann upp úr 1960 þegar hún vann á snyrtistofu í Jacksonville í Florída. Sills var sjóliði í banda- ríska sjóhernum. Í apríl, 1967, var lögreglan kölluð að heimili hjón- anna í Big Coppitt Key. Þá var Sills liðið lík í svefnherbergi heimilis- ins, skotinn til bana. Betty sagði að þau hefðu verið ein heima, rif- ist og hún hefði ekki vitað fyrr en hann greip byssu og skaut sjálfan sig. Dauði hans var úrskurðaður sjálfsvíg. Væn líftrygging Eiginmaður númer fjögur var Thomas Harold Gentry. Betty giftist honum árið 1968 og þegar Gentry, sem var í bandaríska hern- um, settist í helgan stein, undir lok áttunda áratugarins, fluttu þau til Norður-Karólínu. Að sögn Als, bróður Gentry, einkenndist hjónabandið af stöð- ugu rifrildi. Gentry fannst skotinn til bana á heimili þeirra hjóna árið 1986. Hann hafði verið skotinn mörgum sinnum. Al sagði að áður en bróðir hans var myrtur hefði Betty beðið hann að flytja af heimilinu, en hvað sem því líður þá fékk hún greidda út líftryggingu hans, 20.000 dali. Morðinginn fannst aldrei. Brenndur þrátt fyrir önnur plön Talandi um líftryggingu; fimmti og síðasti eiginmaður Betty, John Neumar, var einnig líftryggður. Þau giftust árið 1991 en Betty hafði kynnst honum eftir að hún flutti til Augusta í Georgíu-fylki. Að sögn fjölskyldu Neumar þá einangraði hún John frá öll- um hans ættingjum. Svo hart gekk Betty fram í því, að ættingj- ar Neumar lásu um andlát hans í blöðunum. Talið var að banamein Neumar hefði mátt rekja til blóðeitrun- ar, blóðþurrðar í görnum og stíflu í þörmum, en við nánari skoðun þá gátu einkennin einnig bent til arsenikeitrunar. Þegar sá grunur vaknaði var ekki hægt að ganga úr skugga um það, því þrátt fyrir að Neumar hefði gert ráðstafanir til að verða grafinn, og meira að segja tryggt sér legstað, þá var lík hans brennt. Leitaði til leigumorðingja Al, bróðir Thomasar Harolds Gentry, og John Neumar yngri, sonur síðasta eiginmanns Betty, grunuðu báðir Betty um græsku varðandi dauðdaga annars vegar bróður síns og hins vegar föður. Þeir höfðu viðrað þær grunsemd- ir sínar við lögreglu. Slíkt hið sama hafði Michael Sills, sonur þriðja eiginmanns Betty gert. Það eina sem kom út úr því öllu saman var að Betty var ákærð fyrir að hafa í þrígang reynt að ráða einhvern til að bana Harold. Í júlí, 2008, var Betty einnig ákærð fyrir að hafa reynt að ráða leigu- morðingja til að koma Neumar fyrir kattarnef. Betty hafði meðal annars sett sig í samband við fyrr- verandi lögreglumann og einnig nágranna sinn með það fyrir aug- um. Sem fyrr segir þá var aldrei rétt- að yfir Betty og ólíklegt að sann- leikurinn komi nokkurn tímann í ljós. n 27. september, 2002, lýsti Ástralinn Robert Joe Wagner sig sekan um þrjú morð. Hann var ákærður fyrir tíu morð sem óstjórnlegt hatur í garð samkynhneigðra hafði fengið hann til að fremja. Þegar upp var staðið var hann einnig sakfelldur fyrir hin sjö morðin. Upp komst um morðin 20. maí, 1999, þegar líkamsleifar átta fórnarlamba fundust í sýrubaði í tunnum í leiguhúsnæði, í Snowtown, sem fyrr meir hafði hýst banka. Wagner hafði ekki verið einn að verki og þrír vitorðsmenn hans voru ákærð- ir og fengu einnig dóma fyrir morð, eða aðstoð við slíkt. Wagner fékk tífaldan lífstíðardóm án möguleika á reynslu- lausn þann 8. september 2003. SAKAMÁL Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN FIMM MANNA MAKI n Fimm eiginmenn n Fimm dauðsföll n Var Betty óheppin eða klók? „Hjónabandinu lauk þegar Flynn var skot- inn til bana á ónefndri bryggju í New York árið 1955 Harold Gentry Betty entist ekki líf til að standa skil á dauða hans. Betty Neumar „Svört ekkja“ eða einstak- lega óheppin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.