Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  205. tölublað  106. árgangur  56 SÍÐNA SÉR- BLAÐ UM SJÁVARÚTVEG SPUNNIÐ Í STÍL VIÐ TÓNLISTINA JAZZHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 44200 MÍLUR 140 bíða eftir rafbílum  Meiri drægni rafbíla í fjölskyldubílastærð virðist vekja áhuga fleiri viðskiptavina hundrað kílómetra, en um nokkurs konar jepplinga er að ræða. Að sögn sölustjóra Hyundai og Kia er beggja bíla beðið með mikilli eftir- væntingu. Tæplega 100 eru á bið- lista vegna Hyundai Kona og 40 manns hafa þegar greitt staðfest- ingargjald fyrir Kia Niro. Hlutfall rafbíla eykst „Síðustu tvö ár hefur aukningin verið mikil. Fólk sér að þetta er að virka og er ekki eins hrætt við þetta í dag eins og það var,“ segir Ragnar Sigþórsson, sölustjóri Hyundai hjá bílaumboðinu B&L. „Við höfum aldrei fundið fyrir svona áhuga á rafmagnsbíl áður,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá bílaumboðinu Öskju. Hlut- fall nýskráðra rafbíla fer vaxandi og það sem af er ári stendur það í 4,6% af heildarnýskráningum en það hlutfall nam 3,3% í fyrra. Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Mikill áhugi virðist vera á hreinum rafbílum um þessar mundir og eru 140 manns á biðlista vegna tveggja nýrra tegunda sem búa yfir tölu- vert meiri drægni en áður þekkist ef bílar frá Tesla eru undanskildir. Annars vegar er um að ræða Hyundai Kona EV og hins vegar Kia Niro EV. Báðir bílar hafa drægni sem nær vel á fimmta Vinsælir rafbílar » Tæplega 140 manns eru á biðlista eftir rafbílunum Hyundai Kona og Kia Niro. » Báðir bílar hafa drægni vel á fimmta hundrað kílómetra. » 4,6% af nýskráningum bíla í ár eru rafbílar. MNýir rafbílar afar eftirsóttir »22 Góð stemning var á æfingu kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu í gær. Mikil spenna ríkir fyrir leik Íslands og Þýskalands á Laugardagsvelli í dag, en bú- ist er við um 10 þúsund manns á vellinum. Uppselt er á leikinn. Með sigri getur íslenska liðið tryggt sér þátttökurétt á heims- meistaramótið í Frakklandi á næsta ári, í fyrsta sinn í sögu kvennalandsliðsins. Upphitun mun hefjast um tveimur tímum fyrir leik og boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði á svæðinu í að- draganda leiks. Í Þýskalandi er mikill áhugi fyrir leiknum og verður þýska ríkissjónvarpið með um 70 starfsmenn á leiknum. Ítarlegt viðtal er við Gunn- hildi Yrsu Jónasdóttur, lands- liðskonu í knattspyrnu, í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins. »6 og Íþróttir Morgunblaðið/Valli Létt yfir stelpunum okkar Ísland mætir Þýskalandi í undankeppni HM í dag Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gísli Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Árborgar, segir sveitarfélagið munu skoða hugmyndir um nýjan al- þjóðaflugvöll á Árborgarsvæðinu af alvöru. Einkaaðilar hafi unnið að verkefninu undanfarið. Hann segir höfnina í Þorlákshöfn geta styrkt nýjan flugvöll og öfugt. Þá myndi nýr flugvöllur styrkja ferðaþjónustuna á Suðurlandi og létta á Keflavíkurflugvelli. Stefna á 30 þúsund íbúa Íbúum Árborgar fjölgar hratt og áætlar sveitarfélagið að þeir verði jafnvel orðnir um 11 þúsund 2021. „Ég held að á næstu 20 árum muni Árborg telja einhverja tugi þúsunda íbúa. Að við séum að stefna í kannski 30 þúsund íbúa á tíma- bilinu. Ég tel að við séum í góðu færi til þess að byggja upp borgarmenn- ingu,“ segir Gísli Halldór, sem telur mikil tækifæri felast í nýju mið- bæjarskipulagi. Hann segir hraða fjölgun íbúa kalla á nýja innviði. Meðal annars þurfi að byggja nýja skóla. »10 Skoða alþjóða- flugvöll  Árborg skoðar valkost við Keflavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Selfoss úr lofti Rætt er um nýjan alþjóðaflugvöll á Árborgarsvæðinu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Enn eru mörg handtök eftir við smíði Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs í skipasmíðastöðinni í Pól- landi. Stefnt er að afhendingu 15. nóvember en heimildarmenn blaðs- ins sem til þekkja telja það óraun- hæfa dagsetningu og telja vel sloppið ef skipið fæst afhent á árinu. Það gæti jafnvel dregist frekar. Pólska skipasmíðastöðin Crist hefur tilkynnt Vegagerðinni að hún muni ekki afhenda nýja Vest- mannaeyjaferju fyrr en í nóvember og hefur nefnt 15. nóvember í því sambandi. Vegagerðin vonast til þess að sú tímasetning standi. Upp- haflega var stefnt að afhendingu í lok júlí en drátturinn er bæði vegna breytinga sem Vegagerðin og sam- gönguráðherra hafa óskað eftir og að hluta til óútskýrðra tafa hjá skipasmíðastöðinni. Sigla þarf skipinu heim og búa það undir áætlun. Ljóst er að sigl- ingar hefjast ekki fyrr en í desem- ber í fyrsta lagi. Slæmt veður yfir háveturinn og aðstaða í Landeyja- höfn geta hamlað því að það komi að fullum notum í vetur, eins og stefnt var að. »18 Ljósmynd/Crist Í smíðum Verkpallar eru um allt skip, innanborðs og utan. Starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar stefna að afhendingu skipsins í nóvember. Mörg handtök eftir í Herjólfi  Afhendingu seinkað og getur hugsanlega dregist enn lengur Alexander Sakartsjenkó, leiðtogi úkraínskra aðskilnaðarsinna í al- þýðulýðveldinu Donetsk svokallaða, lést í sprengjutilræði á kaffihúsi í gær. Sakartsjenkó hafði verið for- seti hins yfirlýsta lýðveldis í austur- hluta Úkraínu frá árinu 2014. Lýð- veldið viðurkennir ekki stjórnvöld Úkraínu sem sitja í Kænugarði. Stjórnvöld Rússlands, sem hafa veitt aðskilnaðarmönnunum stuðn- ing, sökuðu úkraínsk yfirvöld um að standa að baki drápinu á Sakartsj- enkó. Vladimír Pútín lýsti því yfir á vefsíðu sinni að hann byggist við því að sökudólgarnir yrðu sóttir til saka. Úkraínsk stjórnvöld neita sök og telja að annaðhvort Rússland eða innanflokksdeilur hafi orðið Sak- artsjenkó að bana. Sakartsjenkó var myrtur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.